Eimreiðin


Eimreiðin - 01.05.1970, Page 73

Eimreiðin - 01.05.1970, Page 73
GRETTIR ÁSMUNDSSON 137 munir ekki upptefldur fyrir smá sveiflum. Halldór: Þig kveð ég til Hafur bóndi að segja fyrir griðum, ert þú manna málsnjallastur, enda gjarn til sköruglegrar framsögu. Hjalti: Ekki veit ég víst hversu viturlega hér er ráðið gagn- vart ókenndum manni. Þó mun ég ekki jnessu spilla, er þið leggið svo mikið kapp á, og haf þú upp griðmál Hafur Þórarinsson. Hafur: Fús em eg til þess og gangið fram allir og hlýðið til (þeir ganga fram.) Hér set ég allra manna grið í millum einkum gangvart þessum gesti hér viðstöddum og eigi að undanskyldum goðorðsmönn- um og gildum hændum, svo og allri aljrýðu liér að Hegranes- þingi. Handsölum grið og fullan frið komumanni liin- um ókunna, er Gestur nefn- ist til gaman glímu og gleði allra, til hérvistar og heim- ferðar. Sá er griðníðingur er griðinn rífur, rækur og rek- inn frá guði og góðum mönn- um. Nú leggjum við hendur saman (]:>eir gert svo.) og heit- um að halda griðinn að vitni guðs og góðra manna allra, er orð mín heyra. Þorbjörn: Skörulega er fyrir mælt Hafur bóndi og er nú ráð Gestur að dyljast ei leng- ur og ganga til leiks. Grettir: Víst er vel mælt, ef þér spillið ekki síðar. Skal ég og eigi lengur dyljast né það dvelja fram að láta, er ég hef til skennntunar. (Kastar kufl- inum.) Hér megið þið sjá sektarmann yðar Gretti Ás- mundarson. Er ég albúinn til þátttöku í leikjum þeim, er Jrér viljið hér hafa. Hjalti: Hér fór sem eg gat til, að Jjetta var fljótráðið nokkuð. Mun margur ósvinnur á orð- inn í þessu máli, þar sem svo sekur maður sem Grettir er skal friðhelgur á Jnngi voru. Þorbjörn: Misráðið var þetta víst, en vart tel ég skylt að halda grið við slíkan mann. Eða viltu Grettir fara burt úr eynni? Hafa bændur nú lagt hana upp við mig að mestu. Mun ég veita þér verðugt lið- sinni, ef þú gerir að ósk minni í þessu Grettir: Nú kvaðstu það upp, að ég er fyrir það ráðinn í að fara aldrei úr eynni, þar sem þú segist eiga mestan hlut henn- ar.Fer vel, að við deilum kál- inu. Satt er, að mér þótti erf- itt að hafa alla Skagfirðinga á móti mér, en nú er jafnara á komið. Köfnum við vart í vin- sældum og mun hvorugur ann- an til spara. Þorbjörn: Sinnar stundar hiður

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.