Uppeldi og menntun - 01.01.2003, Page 85

Uppeldi og menntun - 01.01.2003, Page 85
KRISTÍN UNNSTEINSDÓTTIR Þegar áhrifa óbeinnar hugsunar gætir hvað ríkast birtast þau í sterkum táknum sem standa fyrir djúpstæðar kenndir og geðshræringar sem oft tengjast kynþroskanum. 1 framsetningu verka barnanna er hins vegar ráðandi bein hugsunargerð, hér að fram- an kölluð ímyndun, sem miðlar tilfinningum i formi órofa heildar. Þess ber einnig að geta að án rökhugsunar væru sögugerð og munnleg svör ekki möguleg. I ævintýrum barnanna eins og í sígildum ævintýrum er því öllum þremur hugsanagerðunum beitt en rökhugsun er ekki eins ráðandi og í flestum öðrum tegundum frásagna. ÆVINTÝRAFORMIÐ OG SÍGILD MINNI í MEÐFÖRUM NJARÐAR I lok fyrri heimsóknar minnar fengu börnin tækifæri til að semja eigin ævintýri. Sú vinna hófst á því að börnin drógu um gripi sem ég hafði safnað úr ýmsum áttum. Þau voru hvött til að halda á viðkomandi hlut í hendi sér og láta hugann reika með lokuð augun í nokkrar mínútur. Þeim var sagt að þau gætu notað gripinn á einhvern hátt í sögunni ef þau kysu. Mörg barnanna komu að ævintýragerðinni nokkrum sinnum áður en þeim tókst að ljúka við ævintýrið. Eitt þessara barna var Njörður sem átti í verulegum erfiðleikum með að skrifa ævintýrið og gerði margar tilraunir áður en honum tókst að semja áhrifaríka sögu um drenginn Jón. Njörður notaði skeifu, hlutinn sem hann dró, í ævintýri sínu og gæddi hana töframætti. Jón og drengimir fjórir Einu sinni var kóngur og drottning í ríki sínu. Þau áttu einn son og dóttur og konungsríki þeirra var mjög stórt. En einn dag veiktist drottningin og dó. Kóngur var mjög dapur og börnin líka. Svo leið eitt ár, þá giftist hann annarri konu sem var vond stjúpa. Henni var illa við börnin. Hún setti Jón og Láru sem voru börnin í stóra kistu og læsti og henti lyklinum. Svo dró hún kistuna út að strönd og henti henni ofan í sjóinn. Börnin voru mjög hrædd. Þá sagði Jón við Láru: „Vertu ekki hrædd, okkur rekur bráðum að landi." íþví rákust þau á stein og það kom risagat á kistuna sem þau fóru út um. Svo þegar þau komu út sáu þau land í fjarska og syntu af stað. En stelpan var orðin svo þreytt að hún gat ekki synt lengur. Þá sagði Jón: „Farðu upp á bakið á mér. Ég syndi meðþig á bakinu." Viðströndina sá hann að hún hafði dáið úr kulda en hann gat ekki breytt neinu um það. En hann grófhana nálægt ströndinni. Þegar hann var búinn að labba smástund sá hann lítinn dreng sem bað um mat. Þá klifraði Jón upp í næsta tré og náði íbanana oggaf stráknum. Þá sagði barnið: „Égfæri þér þessa gjöf" sem var hestaskeifa „og í hvert sinn sem þig vantar hjálp skaltu láta skeifuna detta, þá birtist ég og bræður mínir." Svo hvarfhann beint fyrir framan nefið á honum. En nú þarf hann að leita að næturstað. Þá datt honum í hug að fara inn í skóginn og þar sá hann lielli og þar var stór pottur á hlóðum. Hann var svo- lítið smeykur en læddist inn. Hann sá að það var enginn þarna. Hann ákvað 83
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164

x

Uppeldi og menntun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Uppeldi og menntun
https://timarit.is/publication/581

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.