Ægir - 01.01.1986, Síða 48
Flateyri
Trúnaðarmenn
Fiskifélags íslands
Að þessu sinni verða kynntir
trúnaðarmenn í Stykkishólmi, á
Þingeyri, Flateyri, Suðureyri og í
Bolungavík.
Þetta er 5. kynningarþátturinn
en hina þættina er að finna í 5.,
7., 10. og 11. tbl. Ægis 1985. Í5.
tbl. fylgdu upphafsorð, sem sér-
staklega skal bent á.
Stykkishólmur
Trúnaðarmaður Þórhildur
Pálsdóttir, Lágholti 4 s.h. 93-
8194. V. 93-8136.
Þórhildur er fædd í Stykkis-
hólmi 14. október 1942. For-
eldrar Áslaug Ingibjörg Þorvalds-
dóttir og Páll Gísli Jónsson.
Eiginmaður Þórhildar er
Kristján Lárentsínusson skip-
stjóri.
Þórhildur hóf störf á skrifstofu
Stykkishólmshrepps í janúar
1977. Flún vinnur þar m.a. við
gerð hafnarskýrslna og reikninga
vegna hafnarvogar er hreppurinn
rekur.
Þórhildur tók við starfi trúnað-
armanns Fiskifélagsins eftir and-
lát Haraldar ísleifssonar í apríl
1985, en Haraldur hafði gegnt
því starfi í áraraðir.
Þingeyri
Trúnaðarmaður Leifur Þor-
bergsson Fjarðargötu 10, s. 94-
8118. Leifur er fæddur 21. des-
ember 1915 á Þingeyri. Foreldrar
Þorbergur Steinsson skipstjóri og
bóksali á Þingeyri og Jónína
Benjamínsdóttir. Eiginkona Leifs
er Áslaug Árnadóttir. Leifur lauk
farmannaprófi frá Stýrimanna-
skólanum í Reykjavík 1944.
Hann starfaði fyrst sem stýri-
maður en síðar sem skipstjóri á
bátum til 1975. Hann rekur nú
bókabúð. Leifur varð trúnaðar-
maður Fiskifélagsins 1972.
Trúnaðarmaður Guðbjörn Páll
Sölvason Ólafstúni 5, s. 94-
7798. Guðbjörn er fæddur á Flat-
eyri 18. okt. 1945. Foreldrar
Fanney Árnadóttir og Sölvi
Ásgeirsson, skipstjóri. Eiginkona
Guðbjörns er Áslaug Ár-
mannsdóttir kennari. Guðbjörn
lauk námi frá fiskimannadeild
Stýrimannaskólans í Reykjavík
1966. Hann byrjaði sjómennsku
ungur og hefur verið stýrimaður
og skipstjóri á fiskiskipum. Guð-
björn tók við starfi trúnaðar-
manns af föður sínum 1976 en
Sölvi var trúnaðarmaður Fiskifé-
lagsins um mörg ár.
Suðureyri
Trúnaðarmaður Friðjón
Guðmundsson Hlíðarvegi 2. S.
94-6165. Friðjón er fæddur 3.
mars 1934 á Suðureyri. Foreldrar
Elín Lára Jónsdóttir og Guð-
mundur Jón Markússon. Eigin-
kona Friðjóns er Fanney Guð-
mundsdóttir. Friðjón byrjaði
ungur að beita línu og stunda
sjóinn. Hann var við þau störf í 3
ár á Akranesi, ásamt síldveiðum.
1974 hóf hann starf sem fiskmats-
40-ÆGIR