Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.10.1985, Síða 13

Tímarit lögfræðinga - 01.10.1985, Síða 13
heimfæra rétt höfundar undir eignarrétt. Hvað sem um það er, þá hefur röksemdafærsla á þeim grundvelli haft sína þýðingu frá réttar- sögulegu sjónarmiði. I íslensku höfundalögunum er haldið tryggð við þessa hefð, en í upphafi 1. gr. þeirra segir: „Höfundur að bók- menntaverki eða listaverki á eignarrétt á því með þeim takmörkunum, sem í lögum þessum greinir.“ Eiginlega hefst saga höfundarréttar hér á landi ekki fyrr en á síð- ari hluta 19. aldar. Er þar fyrst að geta tilskipunar frá 11. desember 1869 um einkarétt til að eftirmynda ljósmyndir o.fl. Á árinu 1889 flutti Jón Ólafsson rithöfundur frumvarp á Alþingi um eignarrétt að sömdu máli og var það að mestu leyti sniðið eftir dönsku höfundalög- unum frá 1857. Alþingi samþykkti frumvarpið með nokkrum breyting- um, en konungur synjaði frumvarpinu staðfestingar. Ástæðan til þess mun fyrst og fremst hafa verið sú, að um þær mundir stóð fyrir dyrum gagngerð breyting á dönsku höfundalögunum á grundvelli gildistöku Bernarsáttmálans frá 1886. Á árinu 1905 lagði ríkisstjórnin fram á Alþingi frumvarp til lága um rithöfundarétt og prentrétt. Fyrirmynd þess voru dönsku höf- undalögin frá 1904. Frumvarpið náði þó aðeins til bókmennta og tón- smíða. Það var samþykkt og tók gildi sem lög nr. 13/1905 um rithöf- undarétt og prentrétt. Giltu þessi lög fram til ársins 1972, er nýju höfundalögin voru sett, en ýmsar mikilsverðar breytingar höfðu samt verið gerðar á þeim lögum áður. Þégar með lögum nr. 11/1912 var gildissvið laganna rýmkað og þau látin ná til hvers konar mynda og uppdrátta. Veigamesta breytingin var síðan fólgin í lögum nr. 49/1943, sem felldu undir höfundalög hvers konar listgreinar, er eigi höfðu áður notið verndar. 2.0. HÖFUNDALÖG NR. 73/1972. Endurskoðun höfundalaganna hófst árið 1959, er menntamálaráð- herra fól Þórði Eyjólfssyni hæstaréttardómara að semja frumvarp til nýrra höfundalaga. Vann Þórður síðan að því verki og var frumvarp hans lagt fyrir Alþingi 1962-1963. Það náði ekki samþykki og var síðar tekið til endurskoðunar af nefnd þriggja manna, sem skipuð var þeim Knúti Hallssyni ráðuneytisstjóra og Sigurði Reyni Péturssyni hæsta- réttarlögmanni auk Þórðar. Frv. var að lokum samþykkt og gekk í gildi sem höfundalög nr. 73/1972. Við samningu höfundalaganna nýju voru í aðalatriðum lögð til grund- vallar norræn höfundalög, sem sett voru á hinum Norðurlöndunum á 83

x

Tímarit lögfræðinga

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.