Ægir

Árgangur

Ægir - 01.04.1997, Blaðsíða 8

Ægir - 01.04.1997, Blaðsíða 8
Nýjar fiskimjölsverksmiðjur hjá Faxamjöli og Haraldi Böðvarssyni hf.: Hátækniverksmiðjur framleiða hágæðamjöl Bylting er að verða í fiskimjölsverksmiðjum á íslandi um þessar mundir. Mikil fjárfest- ing hefur átt sér stað hjá mörgum fyrirtœkj- um í brœðsluiðnaðinum, nauðsynleg end- urnýjun á úr sér gengnum búnaði, ekki síst til að standast þœr kröfur sem íslendingar eru að mœta á heimsmarkaði fyrir mjöl. Gunnlaugur S. Gunnlaugsson, fram- kvæmdastjóri Faxamjöls, segir að nýja verksmiðjan í Örfirisey hafi komið af- skaplega vel út en hún var tekin í gagn- ið í lok janúar. Unnið var úr um 18.000 tonnum af loðnu í verksmiðjunni, sem er nálægt þeim áætlunum sem fyrir- tækið gerði um vinnslu á þessari vertíð. Verksmiðjan í Örfirisey var byggð upp frá grunni en fyrirtækið er með litla verkmiðju fyrir á stabnum og af- kastar hún mun minna en nýja verk- smiðjan og hefur nánast næg verkefni í fiskúrgangi einvörðungu. Gunnlaugur segir að kostnaður við nýju verksmiðjuna hafi verið um 300 milljónir króna. Hún er byggð upp af Héðni hf. en búnaður í verksmiðjunni er frá Stord. Afköst verksmiöjunnar em nálægt 400 tonnum á sólarhring en Gunnlaugur segir hana standa fullkom- lega undir þeirri afkastagetu sem gefin var upp. „Við keyrðum verksmiðjuna í fullri keyrslu og hún stóð undir okkar vænt- ingum. Þetta er verksmiðja sem getur framleitt hágæðamjöl og okkur tókst að ná um þriðjungi af því sem við unnum núna á vertíðinni í hágæðamjöl," segir Gunnlaugur. Meðal tveggja nýuppbyggðra verksmiðja í landinu eru verksmiðjur Faxamjöls í Örfirisey og verksmiðja Haraldar Böðvars- sonar hf. á Akranesi en þœr voru báðar teknar í gagnið á vetrarvertíðinni. Saman- lagt var kostnaður við þessar verksmiðjur á annan milljarð króna. Hann segir staðreynd að nú sé að verða breyting í fiskimjölsverksmiðjun- um á íslandi, tæknibylting og um leið aukin verðmætasköpun. „Vissulega verða til með þessu aukin verðmæti. Þetta er liður í þróuninni, tækjabúnaðurinn í þessum verksmiðj- um er orðinn gamall enda hefur lítið gerst í þeim í áratugi. Bæði eru gæðin meiri, mengunin minni og nýtingin betri í nýju verksmiðjunum. Þetta er fullkomlega eðlileg þróun og að þessu hlaut að koma. Það má segja að fiski- mjölsverksmiðjurnar hafi setið á hak- anum í sjávarútveginum á íslandi. Við höfum verið að tæknivæðast alls stað- Stjórnun á nútíma fiskimjölsverksmiðju er nokkuð ólík því sem áður var. Hér er Per Joensen, keyrslumaður, við tölvuskjáinn í nýju verksmiðjunni hjá Haraldi Böðvarssyni hf. á Akranesi og nánast má segja að tölvubúnaðurinn veiti allar þaer upplýsingar sem á þarf að halda meðan verksmiðjan er ígangi. 8 ÆGIR

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.