Árbók Háskóla Íslands

Årgang

Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1961, Side 87

Árbók Háskóla Íslands - 01.01.1961, Side 87
85 lögfræðinni. I ritum hans gætir mjög félagslegra og hagrænna sjónarmiða og viðhorfa, svo og tillitsins til þess, sem sanngjarnt er og eðlilegt um samskipti manna. 1 réttarsögu ritaði próf. Ólafur tvær bækur, Grágás og lög- bækurnar, sem er fylgirit með árbók háskólans 1921—22, og svo kennslubókina Yfirlit yfir íslenzka réttarsögu. Þessi rit bæði eru reist á víðtækum og traustum rannsóknum, og er mér kunnugt um, að þeir menn, sem reynt hafa eftirleit á slóðum þessara rita, hafa ekki hlotið mikla eftirtekju. Því miður nær yfirlitsrit hans um réttarsögu aðeins yfir brot úr íslenzkri rétt- arsögu. Enginn maður hefði þó verið honum færari um að rita slíkt yfirlitsrit, jafn fjölfróður og glöggskyggn og hann var um það efni, hvar sem niður var gripið. Dugir nú ekki um að sakast, en vissulega er fordæmi hans, elja og kostgæfni við vísindaleg vinnubrögð yngri mönnum hvöt til að takast á við þetta megin- verkefni, sem nú bíður úrlausnar. Bót er þó í máli, að próf. Ólafur hefur skrifað margar merkar ritgerðir um einstök rannsóknar- efni i íslenzkri réttarsögu. Er mörgum þeim ritgerðum hans, svo og ýmsum ritgerðum í fjármunarétti, safnað saman í eina heild, í ritgerðasafni hans, Lögum og sögu, er Lögfræðingafélag Islands gaf út 1958, og kom það rit út sama dag og Háskóli íslands að tillögu laga- og viðskiptadeildar sæmdi hann doktorsnafnbót 25. október það ár. öll ritverk prófessors Ólafs í lögfræði og réttarsögu eru geysi- vönduð. Þau auðkennast af skírleik í framsetningu, sem aldrei skeikar, skarpskyggni, traustri dómgreind og hófsemi í ályktun- um. Þau eru reist á rannsóknum, sem eru svo vandaðar og traust- ar, að oft sýnist ógerlegt að bæta um eða hnekkja. Ritin lýsa miklum lærdómi höfundar og jafnframt fágætri, vísindalegri vandvirkni og hugkvæmni. Málfar hans var vandað og meitlað, laust við tyrfni og tildur, og yfir allri framsetningunni er ein- stök heiðríkja. Hér verður ekki vikið að ritstörfum hans í sagnfræði og mann- fræði. Á hitt skal bent, að hann var skiptur milli lögfræði og sagnfræði, og þó jafnvígur á báðar. Get ég þessa fyrir þá sök, að engan mann hef ég þekkt, sem var jafnheilsteyptur persónuleiki
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140

x

Árbók Háskóla Íslands

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Árbók Háskóla Íslands
https://timarit.is/publication/588

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.