Búnaðarrit - 01.01.1920, Blaðsíða 51
BÚNAÐARÍtlT
45
íyrir alda og óborna, að þaö sje yrkfc, og vilji vinna að
því markmiði.
Örðugleikarnir eru hjer margir, en þess meira er um
vert að geta unnið sigur á þeim.
Yjer vitum öll, hvernig landið okkar er, og hve ábóta-
vant oss er í mörgu. En hvað ber framtiðin í skauti
sínu. Á þessari þjóð að auðnast það, að eflast og mann-
ast svo, að hún geti hagnýtt sjer gæði landsins, ræktað
það, notað fiskimiðin, breytt vafcnsafli í ljós og hita, og
vinnu; bygt snotur húsakynni, vegi og brýr, — yflr höfuð
að gera það sem þarf, til að efla framleiðsluna og vel-
líðan manna.
Víst getur þetta orðið. En vjer þurfum fyrst að hafa
hugsjónir — hugsjónir, er vjer viljum allir leggja vora
krafta fram fyrir. Hlutverkin eru mörg. Sje hvert þeirra
trúlega unnið, getur það orðið einn steinn í byggingunni.
Hjer er verkefni fyrir alla. Leiðtogarnir eiga að marka
leiðirnar, verkamennirnir að byggja vegina, vel og vand-
lega. Og það á að halda byggingunum áfram, en eigi
að rífa það niður, sem búið er að byggja.
Störfin eru jafn þýðingarmikil, hvort sem þau eru
unnin af háum eða lágum. Starf mjaltakonunnar, fjár-
mannanna og húsmæðranna eru eins þýðingarmikil fyrir
þjóðfj elagið og ráðherrastörfin.
í víngarði þjóðfjelagsins er verkefni fyrir alla — jafnt
unga sem gamla, konur sem karla, fátæka sem ríka. —
Allir þurfa að vinna sameiginlega að framkvæmd ein-
hverra hugsjóna, að einhverju markmiði, sem eflir hag-
sæld þjóðfjelagsins. — Á þennan hátt og í þessum anda
vill Búnaðarfjelag lslands starfa.
S. Sigurðsson,
skölastjóri.