Búnaðarrit - 01.01.1920, Blaðsíða 104
98
BÚNAÐARRIT
Alla voru fluttir út 3249 hestar þetta ár, og birti jeg
hjer skýrslu um það:
Keyptir hestar 1919.
Hcstar: Hryssur: Alls:
8 v. 4 v. 5 v. 6 v. 7 v. 8 v. 3 y. 4 v. 5 v. 6 v. 7 v. 8 v.
347 586 207 97 55 35 449 793 327 223 99 61 3279
Útfluttlr hestar 1919.
3 vetra: 4 — 8 vetra:
46—48" 48" og þar yfir 46—48" 48" og þar yfir
184 stk. 690 stk. = 774 stk. 265 stk. 2210 stk. — 2475 stk.
3 vetra: 774 stk.
4—8 — 2475 —
Alls: 3249 stk.
Menn munu hafa veitt því eftirtekt, að í öllu þessu
samningaþrefi lagði jeg mikla áherslu á, að geta selt
4000—6000 hross. Var það mín skoðun, að minni mætti
útflutningurinn ekki verða, ef hann ætti að fullnægja
söluþörf landsmanna. Undanfarið hafði útflutningur hjeðan
verið 3—4l/s þús. hross árlega. Á árunum 1913—1916,
að báðum þeim árum meðtöldum, voru alls flutt út
13586 hross. Af þeim árum var 1916 lang-lakasta út-
flutningsárið, því að þá voru að eins seld 2384 hross
til útlanda, og koma áhrif ófriðarins þar vafaiaust til
greina. Árið 1917 voru fluttir út að eins 6 hestar, en
1918 1093, svo sem áður er sagt. Vafalaust hefir því
vantað 5000—6000 hross upp í venjulegan útflutning
árin 1917 og 1918. Þar að auki voru harðindavetrar og
ljeleg heyskaparsumnr bæði þessi ár, sjerstaklega þó
1918. Af þessum rökum leit jeg svo á, að söluþörfinni
mundi ekki fullnægt til hlítar, nema að flutt yrðu út
alt að 8000 hross. Taldi jeg því sjálfsagt, að leggja alt