Hlín - 01.01.1932, Blaðsíða 130
128
tilín
syn og aðkallandi þörf þess, að heimilin sjeu sem mest
sjálfum sjer næg í þessu efni.
Samband vort hefur gert það að uppástungu sinni,
að byrjað verði á að safna slcýrslum um heimilisiðnað,
of/ að fje þvi, sem lafjt er nú til heimilisiðnaðar, sje
varið á næstu árum til verðlauna fyrir dugnað og at-
orku í heimilisiðnaði. En slík verðlaun eru lítt hugs-
anleg án skýrsluhalds. Enda er þetta sú leið, sem farin
hefur verið í eflingu landbúnaðarins, og reynsían virð-
ist hafa viðurkennt sem eina hina bestu aðferð í því
augnamiði. En auk þess þykjumst vjer sannfærð um
að sjálft skýrsluhaldið verði til hvatningar.
Af þessum ástæðum leyfum vjer oss að fara þess á
leit við háttvirt Kvenfjelagasamband íslands, að það
\ láU útbúa skýrsluform fyrir heimilisiðnað, er fjórð-
'ungssamböndunum sje svo falið að fylla út, og i öðru
lagi, að það veiti samböndunum eitthvert fje til verð-
launa fyrir dugnað í heimilisiðnaði.
Ný leið.
Jeg ætla að byrja á því að þakka »Hlín« fyrir allar
hennar góðu leiðbeiningar um heilbrigðismál, heimilis-
iðnað og garðyrkju. — Það ætti að vera hverri íslenskri
konu metnaðarmál að leggja eitthvað til málanna í
»Hlín«, svo að hún verði sem fróðust um áhugamál
okkar kvenna. Um margt má skrifa, margt sem liggur
í þagnargildi langt inni í fjallasveitunum íslensku, án
þess að það sje dregið fram á sjónarsvið bókmentanna.
En nú, þegar kreppan knýr alla til að nema staðar, þar
sem þeir eru staddir, þá verður mörgum að tala um af-
leiðingar hennar og um yfirstandandi getuleysi ein-
staklingsins.