Samtíðin - 01.05.1934, Page 10

Samtíðin - 01.05.1934, Page 10
S AMTÍÐIN mönnum miklaðist böl sitt svo mikið, að þeir gátu ekki skýrt það fyrir sér á aðra lund en þá, að hin verstu öfl og illvættir stæðu að baki þeirn, heldur brýst þorst- inn eftir mætti og valdi fram í óskinni um að komast í samband við þessar illvættir og fá þær í lið með sér. Eins og ég hefi minst á, þá e’- galdratrúin sameiginíeg öllum Norðurálfubúum á þessu tímabili. En sú trú hefir látið eftir sig dá- lítið aðra tegund af minnisvörð- um með íslenzku þjóðinni en ann- arsstaðar. Vér þekkjum galdra- trúna af æfintýralegum sögnum um einstaka, ákveðna, sögulega menn, sem þjóðin festi augun á og gerði að persónugerfingum þessarar trúar. Mjög lítið er um slíkar sagnir meðal annax-a þjóða, eftir því sem mér hefir skilist. Undantekningar eru eins og sögn- in um Faust, sem Goethe gerði ódauðlega. En það stendur vafa- laust í sambandi við hina óvenju- legu skáldgáfu íslendinga, að þeirra trú fær þennan búning, sem raun hefir á orðið um skáldskap- inn og hina landlægu list að segja sögu. Og hámarki sínu nær þessi tegund af frásögum í sögunni um Galdra-Loft. Ég hefi þegar bent á, hve ímyndunaraflið í sögu Lofts er hamslaust og voðalegt. Maður hefir veður af botnlausum raun- um bak við frásöguna. Þjóð, sem setur þetta saman, er búin að 6 spenna hverja taug, þar til hún er komin að því að bresta. Sagan er ákaflega miskunarlaus við Loft, en þótt þjóðin sé andstæð Lofti, þá dylst það ekki, að bak við frásöguna eru margvíslegir þankar og mikil umhugsun um það, að gaman væri að hafa þetta vald, sem Loftur sótti eftir. „Guð er stundum svo langt í burtu“, lætur Jóhann Sigurjónsson Stein- unni segja í leikritinu um þetta efni. Það er áreiðanlegt, að mönn- um á átjándu öld fanst stundum sem allar hollvættir og góð mögn hefðu falið sig fyrir þeim og þá sveið í lófana eftir að kaupa magn og þrótt með því að selja sig ill- vættum. Og sökum þess, að menn- irnir hafa því nær ótakmarkaða hæfileika til þess að ljúga að sjálfum sér, þá 'þögguðu þeir raddir samviskunnar með því að telja sér trú um, að hið illa vald mætti nota til góðs. Þetta hafa flestir valdasjúkir menn gjört frá upphafi tímanna. Það er svo sem ekki sjálfs sín vegna, sem valda- gráðugir menn siga æskumönnum í ófrið og styrjaldir — það er fyr- ir föðurlandið. Mönnum verður aldrei skotaskuld úr því að finna einhverja svokallaða hugsjón til réttlætingar eigingjörnum hvöt- um sínum. Og það er vegna þess, að bak við söguna um Loft er þorsti máttvana manna eftir þrótti, sem sagan er grimtn. Grimd er ávalt fyrst og fremst sjúkdómur. Og grimdin í frásög-

x

Samtíðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Samtíðin
https://timarit.is/publication/647

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.