Fréttablaðið - 14.10.2010, Blaðsíða 67

Fréttablaðið - 14.10.2010, Blaðsíða 67
FIMMTUDAGUR 14. október 2010 47 Úrslit næstu Eurovision-keppni verða haldin í Düsseldorf í Þýska- landi á næsta ári. Fjórar borgir sóttu um að halda keppnina og bar Düsseldorf sigurorð af Berl- ín, Hamborg og Hannover. Um þrjá viðburði í beinni útsendingu verður að ræða. Undanúrslitin verða 10. og 12. maí og úrslitin sjálf verða síðan 14. maí í Esprit- höllinni. Lagið Satellite með Lenu Meyer-Landrut sigraði síðustu Eurovision-keppni sem var haldin í Ósló og náði það í framhaldinu miklum vinsældum víða um Evr- ópu. Hera Björk endaði í 19. sæti í keppninni með lagið Je Ne Sais Quois. Eurovision í Dusseldorf HERA BJÖRK Næsta Eurovision-keppni verður haldin í Düsseldorf á næsta ári. Lögreglan í Los Angeles handtók í gær hjólreiðagarpinn James Rainford eftir að hann fór í leyfisleysi inn á lóð Parisar Hilton. Rainford læddist fram hjá öryggisvörðum, braut sér leið í gegnum rammgerð öryggishlið og bankaði upp á hjá erfingj- anum. Hann hitti hana þó ekki þar sem hann var varla búinn að banka þegar öryggisverðir Hilton tóku eftir honum og upphófst þá eltingaleikur sem endaði ekki fyrr en lög- reglan mætti á svæðið. Rainford var á reiðhjóli og því reyndist erfitt að ná í hann. Rainford var færður á lögreglustöð í yfirheyslu, en ekki er vitað hvað vakti fyrir honum eða hvort atvik- ið tengist hnífamanninum sem braust inn til Parisar fyrir skömmu. Rainford hefur verið ákærður og er enn í haldi lögreglu. Gavin Rossdale, söngvari hljómsveitar- innar Bush og eiginmaður Gwen Stef- ani, hefur viðurkennt að hafa átt í ást- arsambandi við karlkyns klæðskipting á níunda áratugnum. „Ég vildi ekki að þetta myndi hafa áhrif á Bush,“ sagði hann nýlega í viðtali. Boy George sagði fyrst frá sambandi Rossdale og klæðskiptingsins Marilyn í sjálfsævisögu sinni Take it Like a Man. Þá hefur Marilyn látið hafa eftir sér að sambandið hafi varað í fimm ár og að Rossdale hafi verið ástin í lífi hans. „Ég var 17 ára og þá er ekkert skrýtið við neitt. Maður er bara að finna sig og fullorðnast. Þannig er það,“ sagði Rossdale. Ég kyssti gaur SPILAR FYRIR BÆÐI LIÐ Gavin Rossdale er kvæntur Gwen Stefani en átti í ástarsambandi við karl- mann á níunda áratugnum. Aftur brotist inn hjá Hilton-erfingjanum ÓHEPPIN Paris Hilton fær ekki að vera í friði. Tónleikagestir á Iceland Air- waves geta í fyrsta sinn í ár feng- ið að fylgjast með ýmsu sem tengist þessari tónlistarhátíð í gegnum símann sinn. Þeir geta fylgst með biðröðum í gegnum farsímann sinn, fengið strika- merki í símann sem geymir upp- lýsingar um hljómsveitir, við- burði og fleira, notað smáforrit sem leiðir þá á réttan tónleika- stað og fengið áminningu í sím- ann áður en tónleikar hefjast. Allir tónleikagestir með snjallsíma, hvort sem þeir eru viðskiptavinir Ring eða ekki, hafa aðgang að þessari tækni sem verður í boði undir merkjum Ring. Airwaves í símanum EVERYTHING EVERYTHING Everything Everything spilar á Airwaves. Hægt er að fylgjast með hátíðinni í gegnum snjallsíma.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.