Morgunn - 01.12.1920, Blaðsíða 36
114
M 0 ii G U N N
Fyrsti miöill Raymands.
Þeir, sem lesið hafa »Raymond« eftir Sir Oliver Lodge,
eða þá ritling minn »Líf og dauða«, muna sjálfsagt eftir
konunni, sem Raymond, sonur Sir Olivers, gerði fyi'st vart
við sig hjá. Hún heitir fullu nafni Gladys Osborne Leonard,
og er víst sá enskur endurminninga-sannana miðill, sem
nú er í mestu áliti á Englandi. »Raymond« flutti frægð
hemiar, ekki að eins um England, heldur um allan heim.
Að8Óknin að henni fór að verða stórkostleg. Og þær von-
ir brugðust ekki, sem »Raymond« hafði vakið um það, að
þarna væri unt að ná sambandi við framliðna ástvini
sina. Fyrir því varð aðstreymið alt af meira og meira,
og á síðastliðnu ári var ekki nokkur vegur að komast á
fund hjá henni, nema henni væru send tilmæli um það
mörgum mánuðum áður.
Einhver mesti sigurinn. sem hún hefir unnið, er ef til
vill 8á, að brezka Sálarrannsóknafélagið er nú farið að
skifta sér af henni. Það mun vera fyrsta skiftið, sem það
hefir gert menn á fund þeirra enskra manna, sem gera
sér miðilstarf að atvinnu. Mótþrói félagsins gegn þeim
miðluin, sem taka við gjuldi, hefir verið afarríkur, og sjálf-
sagt hefir hann dregið úr árangrinum. Svo virðist, sem
fréttir þær, er af frúnni bárust, hafi að lokum unnið bug
á þessum mótþróa, og tveir fulltrúar frá félaginu, ungfrú
Radclyffe Hall og Lady Troubridge, lögðu út í rannsóknir
með frú Leonard sem miðilinn. Frá árangrinum er skýrt
í síða8ta desemberheftinu af tímariti félagsins (Proceedings).
Auðvitað létu þær frúna ekki vita, hverjar þær voru, og
svo mikil nákvæmni var við höfð, að leynilögreglumaður
var ráðinn til þess að komast eftir því, hvort frú Leonard
hefði nokkurar njósnir í frammi. Dömurnar bera afdrátt-
arlaust vitni um heiðarleik miðilsins og stórmerkilega
hæfileika hennar. Þær sýna fram á það með ljósum dæm-