Morgunn - 01.12.1920, Blaðsíða 131
MORGUNN
209
leysa hafi aldrei verið sett saman um spiritismann en sá
ritlingur er. Og það kynlegasta er, að enginn hefir gefið
ljósari bendingu um, hve lítið vit er í þeim ritlingi en
einmitt dr. Á. H. B. sjálfur.
Hann hélt því fram í þessum ritlingi, að fyrirbrigðin,
sem spíritisminn er reistur á, væru ekkert annað en blekk-
ingar og svik. »Það hefir komið í ljós«, segir hann þar
meðal annars, »að miðlarnir eða skósveinar þeirra hafa
alt af leikið andana sjálfir*. Um alla verulega nafnkunna
miðla átti það að vera víst, að þeir væru afhjúpaðir svik-
arar, »nema ef vera skyldi stúlku eina í Ameríku, Miss
Piper að nafni«. Með þessari »stúlku« átti hann víst við
frú Piper, sem þá hafði reyndar verið í hjónabandi ára-
tugum saman og átti fullorðin börn. Hann spáði
því, að hún yrði innan skamms afhjúpuð eins og allir
aðrir. Meðal þeirra, sem hann talar þat' um að hafi látið
»flekast« af miðlum, er franski lífeðlisfræðingurinn pró-
fessor Riehet, sem fékk afarmerkilegar manngerfingar
suður í Algier. Það sé nú orðið uppvíst, að ökumaður
einn hafi leikið »anda« þann, sem prófessorinn hafi glæpst
á. Þessi ökumaður hafði verið rekinn, fyrir óknytti, úr
vistinni frá húsbændunum, sem miðilliun og prófessorinn
voru gestir hjá, þegar þessi fyrirbrigði gerðust. Iiann
reyndi að hefna sín með þessu. Prófessorinn skoraði á
hann að gera þess grein, hvernig hann hefði farið að því.
ökumaðurinti er ekki farinn til þess enn. En prófessor
Richet færði sönnur að þvi, að ökumaðurinn hefði þetta
ekki getað vcrið. Enda kom engum það til hugar, sem
við tilraunirnar hafði verið.
En svo kom eftirleíkurinn. Átta árum siðar, 1914,
flutti dr. Á. H. B. aðra tölu og lét prenta hana í Andvara.
Þá er hann búinn að fræðast um hvorki meira né minna
en það, að manngervingar (materialisationir) gerist. Það
sé sannað af þýzltum vísindamanni, meðal annars með
mörgum Ijósmyndavélum, og að þessum vísindamanni hafi,
meira að segja, tekist að hirða nokkuð af efninu, sem sé
14