Morgunn - 01.12.1920, Blaðsíða 139
MORGrUNN
217
Eg vék að því í upphafi þessarar greinar, að dr. Á.
H. B. hefði verið með árásir á Sálarrannsóknafélag ís-
lands. Ekki kemur þar fram meiri þekking hjá prófess-
ornum en annarstaðar á þessu sviði. Hann er að bera
S. R. F. í. saman við brezka Sálarrannsóknafélagið. Hann
leggur islenzka félaginu það mjög illa út, að það tekur það
fram í lögum sínum, að það starfi »á grundvelli þeirrar
sannfæringar, að samband hafi fengist við framliðna
menn«. En um brezka félagið segir hann, að það muni
hafa sama álit á sönnunum fyrir sambandi við framliðna
menn eins og frú Sidgwick.
Samkvæmt þeim ummælum frúarinnar, sem bent
hefir verið á hér að framan, væri það enginn ósigur fyrir
S. R. F. I. En af hverju ræður hann þetta ? Hann færir
það til, að frú Sidgwick hafi verið forseti félagsins. En
ekki hefir hún ein verið það. F. W H. Myers, Sir William
Crookes, Rayleigh lávarður, Sir Oliver Lodge og Sir W.
F. Barrett hafa allir verið forsetar þess líka, svo að eg
nefni 5 menn, sem allir vita að hafa sannfærst um sam-
bandið, og enginn þeirra ómerkari en frú Sidgwick.
En sannleikurinn er sá, að brezka félagið hefir ekk-
ert »álit« á neinu. Það afneitar öllu »áliti«. Það aug-
lýsir ár eftir ár, að höfundarnir beri alla ábyrgð bæði á
þeim staðreyndum og þeim ályktunum, sem birtar séu í
skýrslum félagsins (Proceedings) Alt tal Á. H. B. um »álit«
félagsins stafar því af engu öðru en vanþekking.
Aftur á móti getum vér að sjálfsögðu talað um »álit«
einstakra félagsmanna. Um það efni liggja fyrir framan
mig ummæli eftir einn af meðlimum brezka Sálarrann-
sóknafélagsins. Hann heitir J. Arthur Hill. Hann er af.
öllum talinn einkar glöggur rannsóknamaður Og að 8ama
skapi varkár í ályktunum sínum. Áreiðanlega veit hann
meira um brezka félagið en dr. Á. H. B. Hann kveður
svo að orði:
„Það virðist þ4 bvo sem það sé viðurkent af flestum rannsóknar-
mönnum, aö aðalkenning spiritistanna um áfrarahald mannlífsins sé rétt