Morgunn - 01.12.1920, Blaðsíða 39
M 0 R G U N N
117
tókst það nokkurum sinnum, og einhyerjum varð að orði,
að hún mundi geta orðið góður miðill. Tilraunin virtist
ganga nærri henni, og þegar hún kom heim, var hún eitt-
hvað veikluleg. Móðir hennar spurði hana, hvað hún
hefði verið að gera. Og nú var henni bannað af nýju
að fást nokkuð við slik efni. Móðir hennar leitaði stuðn-
ings hjá sóknarprestinum sínum, bað hann að tala við stúlk-
una um það, hvað þetta væri syndsamlegt. En sú mála-
leitun hafði ekki þann árangur, sem móðir hennar hafði
búist við. »Eg get ekki gert það«, sagði presturinn. »Eg
held, að i þessu sé meiri sannleikur fólginn en svo, að eg
eigi að gera það«. Þá var þeim stælum lokið um stund.
Um þetta leyti fór hún til dvalar til bæjar eins, sem
var 20 til 30 mílur þaðan sem hún liafði verið. Skömmu
eftir miðnætti 19. des. 1906 vaknaði hún, og sá þá móð-
ur sína greinilega. Daginn eftir fékk hún símskeyti um
það, að móðir hennar hefði andast um nóttina. Hún hafði
verið meðvitundarlaus frá 9.30 og hafði dáið fyrir 2.30.
UladyB sá hana með opnum augum. Eitthvað — hún veit
ekki hvað — hafði vakið hana, og hún sá hana með
hendurnar lagðar yfir brjóstið, og eins og hún héngi uppi
yfir rúminu og horfði niður til dóttur sinnar. Hún var
unglogri en hún hafði verið, þegar dóttir hennar sá hana
síðast, svo að munað hefði getað 10 árum. Hún leit mjög
vingjarnlega til dóttur sinnar. Þetta fékk mjög á Gladys,
og hún ásetti sér að leita sambands við annan heim, hve-
11 ær eem llúll gæti fengið með sér lientuga samverkamenn.
Arið 1910 fór hún að sinna rannsóknunum af alvöru.
Hún hitti, af tilviljun, að því er virtiet, tvær syetur. og
önnur þeirra spurði hana, alveg inngangslaust, hvort hún
væri spíritisti, sagðist halda að hún væri það. Henni
fanst þetta nokkuð kynlegt, en sagðist vera það, og spurði
hina, hvort hún væri það lika. Hún fékk það svar, að
að þær systurnar tryðu á spíritismann, en að þær hefðu
enga reynslu í þeim efnum, og að nú hefði þeim komið
til hugar að spyrja hana, (hvort hún vildi gera tilraunir