19. júní


19. júní - 19.06.1964, Page 8

19. júní - 19.06.1964, Page 8
öðru leyti heldur sagan áfram lítið breytt: Lægstu launaflokkamir eru að mestu skipaðir konum. Ef rétt hefur verið raðað í flokka eftir menntun og ábyrgð, er augljóst mál, að það er menntunin, sem konurnar vantar, fyrst þær fást aðallega við þau störf, sem minnst ábyrgð er talin fylgja. Eða eru þessi störf talin ábyrgðarlítil, af því að konur vinna þau? Rótgrónar skoðanir eiga sök á því, að konur afla sér ekki haldgóðrar þekkingar. Þessar rót- grónu skoðanir, ásamt venjum og ýmsum aðstæð- um, sem fylgja í kjölfar þeirra, eru erfiðari við- fangs en svo, að ein eða tvær kynslóðir megni að sigrast á þeim. Tryggingar. 1. Ellilaun almannatrygginganna. Lengi vel voru það embættismenn einir, sem nutu þeirra réttinda að fá laun eftir að þeir voru orðnir óvinnufærir. Á eftirlaunin var litið með nokkurri virðingu, gagnstætt því, sem var um elli- styrk, sem fólk gat fengið af sveit sinni, ef í nauð- ir rak. Nú eiga allir skilyrðislaust rétt á að fá ellilaun frá almannatryggingum, og margir eftirlaun að auki. Því verða allir, sem náð hafa 16 ára aldri, að greiða iðgjald til almannatrygginganna. Iðgjöld kvenna eru nú um 25% lægri en karla. Þetta er ekki jafnrétti, eðlilegra væri að miða við tekjur en kyn, t. d. er þetta mjög ósanngjarnt gagn- vart tekjulágum námsmönnum. Iðgjöld fyrir hjón eru mun lægri en fyrir tvo einhleypa, og ellilaun, sem bæði fá, eru 10% lægri. Á meðan aðeins það hjóna, sem eldra er, fær ellilaun, eru þau greidd að fullu. 2. LífeyrissjöSir opinberra starfsmanna. Ámsar stéttir hafa sérstaka lífeyrissjóði, sem sjóð- félagar fá lífeyri úr ásamt ellilaunum almanna- trygginganna. Starfsmenn ríkisins og sjóðfélagar nokkurra annarra sérsjóða áttu þess hins vegar ekki kost, fyrr en nú um síðustu áramót, að fá líf- eyri frá almannatryggingunum, enda þótt þeir greiddu til þeirra nokkurt iðgjald, og var það áber- andi ósanngjamt gagnvart láglaunuðum starfs- mönnum, en meðal þeirra em konumar flestar. Lífeyrissjóðir starfsmanna rikisins hafa nú sam- ræmt tryggingar sínar og iðgjöld við greiðslur Tryggingarstofnunar ríkisins. Er það mikil réttar- bót fyrir embættismannaekkjur og fyrrverandi embættismenn, sem bjuggu við óeðlilega lág eftir- laun vegna breytinga á verðgildi peninga, en fyrst og fremst em þessar breytingar mikilsverð fram- tíðarréttindi þeirra, sem nú em í starfi. Fullt jafnrétti karla og kvenna er skilyrðislaust í lögum um lífeyrissjóð starfsmanna ríkisins. Iðgjöld greiða konur og karlar jafnt af sömu launaupphæð. Eftirlaun og makalífeyrir reiknast út eftir allflóknum reglum, sem miðast við ára- fjölda og iðgjaldagreiðslur og greiðast algjörlega án tillits til f járhags. Ekkjumaður fær makalifeyri eft- ir konu sína — starfsmann ríkisins — á sama hátt og ekkja fær hann eftir mann sinn, og breytir það heldur engu, þótt bæði hjónin hafi verið starfsmenn ríkisins. Eftirlaun og makalífeyri getur sami mað- ur því fengið, ef svo ber undir. Makalífeyrir er aldrei lægri en 20% af síðustu launum starfsmanns (eða starfs hans á hverjum tíma eftir lát hans eða eftir að hann hætti störfum), en fullur makalif- eyrir er 50% af launum. Makalífeyrir getur raun- ar orðið meiri en 50%, ef sjóðsfélagi hefur verið starfsmaður ríkisins í meira en 30 ár, enda hækka eftirlaunin sjálf af þeim ástæðum, og er sá mögu- leiki fyrir hendi, að eftirlaun verði 100% af laun- um starfsmanns. Nýtt ákvæði var sett inn í lögin við síðustu endurskoðun: Makalífeyri skal skipt eftir tíma- lengd hjúskapar og iðgjaldagreiðslum sjóðfélaga, hafi hann verið giftur oftar en einu sinni. Áður voru slík eftirlaun aðeins ætluð síðari eða síð- asta maka. En oft gæti sá maki átt sök á skiln- aðinum við fyrri maka, sem engin eftirlaun fékk. Fulltrúaráðsfundur Kvenréttindafélags Islands átti nokkurn hlut að réttarbót þessari. Barnalífeyrir vegna barna látinna sjóðfélaga — hvort heldur er móðir eða faðir — er hærri en barnalífeyrir almannatrygginganna, og er hann greiddur til 18 ára aldurs. Aldurshámark starfsmanna ríkisins er sama fyrir konur og karla — 70 ár — og eins hafa þær sama rétt til þess að hætta störfum 65 ára og taka þá eftirlaun. (I ýmsum löndum leggja konur mikið kapp á að fá þetta jafnrétti.) 3. Sjúkratryggingar. Sjúkratryggingar eru réttindi allra þegna þjóð- félagsins og eru iðgjöld karla og kvenna jöfn til sjúkrasamlaga á liverjum stað. Réttindi ættu því að vera jöfn, og það eru þau að því er tekur til læknishjálpar, meðala og sjúkrahússvistar. En gift- ar konur, sem ekki teljast vera fyrirvinna heimilis 6 19. JÚNl

x

19. júní

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: 19. júní
https://timarit.is/publication/671

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.