19. júní


19. júní - 19.06.1964, Page 11

19. júní - 19.06.1964, Page 11
(VLa U ím u n cla rdóttit': NÓTT Á ETNU íslenzkar konur hafa gert fremur lítið af því hingað til að leggja stund á jarðfræði og aðrar greinar náttúrufræði, en væntanlega mun það breytast á næstu árum. 1 flestum menningarlönd- um hafa konur haslað sér þar völl. Ég hef orðið þess vör, að starfsval mitt hefur vakið mörgum furðu hér á landi. Menn virðast hugsa sér störf jarðfræðinga sem þrotlausa glímu við hin óbliðu náttúruöfl þessa lands, og þurfi meira þrek og þor í þeirri baráttu en einum konu- vesalingi sé gefið. Þetta kann að stafa af því, að jarðfræðinga og starfa þeirra er fremur getið í sambandi við eldgos, jökulhlaup og aðra æsilega náttúruviðburði en í sambandi við sín hversdags- legu viðfangsefni, sem eru síður til þess fallin að vera meðal forsíðufrétta dagblaðanna. Að vísu koma ferðalög mjög við sögu jarðfræðinga, en þau eru yfirleitt ekki erfiðari en svo, að hverjum sæmi- lega hraustum manni, karli eða konu, séu bjóðandi. Ég hef átt þess kost að ferðast töluvert bæði í námi og starfi, og ætla ég að freista þess að segja nokk- uð frá einni slíkri ferð. Haustið 1962 efndi Bergfræðideild (Mineralo- giska Institutet) háskólans i Stokkliólmi, þar sem ég hef stundað nám, til fræðsluferðar um Italíu. Aðalmarkmið ferðarinnar var að kynna sér ítölsk eldfjöll og hverasvæði og aðrar jarðeldamyndanir. Við vorum 17 þátttakendur í þessari ferð, ýmist fullfjaðraðir jarðfræðingar eða jarðfræðinemar, en aðeins þrjú okkar höfðu áður komizt í kynni við eldfjöll, enda eru engar ungar jarðeldaminjar í Svíþjóð eða nálægum löndum. Það má ef til vill spyrja, hvað Islendingur sé að vilja í önnur lönd til þess að skoða eldfjöll, þar sem af nógu er að taka hér heima í þeim efnum, en þá er því til að svara, að fátt er betur til þess fallið að auka skilning manns á náttúrunni en samanburður á henni við sjálfa sig. Það er margt líkt með ítölskum og íslenzkum jarðeldamyndun- um, en einnig margt ólíkt, og mætti skrifa um það langt mál, en það verður ekki gert í þessari ritsmíð, heldur hef ég kosið að segja nokkuð frá kynnum mínum af mesta eldfjalli Italíu, Etnu á Sikiley. Við komum til Sikileyjar siðla dags í september- lok í þrumuveðri og stórrigningu og héldum til Kataníu, sem er litil borg, er stendur við rætur Etnu að sunnanverðu út við Jóníska hafið. Við gerðum ráð fyrir vikudvöl á Sikiley, og ætluðum að freista þess að komast á Etnutind á því tíma- bili. En það getur verið stórviðrasamt í háhlíðum Etnu, þótt logn og blíða sé við ströndina, og gát- um við vænzt þess, að bið yrði á gæftum. Við völdum Kataníu að dvalarstað, vegna þess að hún er sú borg, er beinast liggur við samgöngum til Etnu. Auk þess er þar við háskólann alþjóðleg eld- fjallarannsóknardeild, og veitir henni forstöðu einn þekktasti eldfjallafræðingur sem nú er uppi, pró- fessor Rittmann. (Á sinum yngri árum vann hann að eldfjallarannsóknum hér á landi, einkum i Mývatnssveit). Hugsuðum við okkur gott til glóð- arinnar að njóta fræðslu og leiðsögu þessa merka vísindamanns og samstarfsmanna lians, meðan við dveldumst á Sikiley. Er við vöknuðum okkar fyrsta morgun í Kat- aníu, var óveðrinu slotað og komin sól og blíða, en okkur var sagt, að allt of hvasst væri í Etnuhlíð- um, til þess að ráðlegt væri að leita uppgöngu. 19. JÚNl 9

x

19. júní

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: 19. júní
https://timarit.is/publication/671

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.