19. júní - 19.06.2005, Page 18
vert að minnast á kvennaári
25 ár
frá kjöriVic
„Þessi dagur var guðs
náð!“ sagði Vigdís Finn-
bogadóttir í útvarpsviðtali
sem tekið var við hana rétt
fyrir innsetningardag
hennar í embætti sem for-
seti íslands, 1. ágúst
1980. Þar átti hún ekki við
daginn þegar hún var
fyrsta kona í heiminum til
að verða þjóðkjörinn for-
seti lýðræðisríkis, heldur
Kvennafrídaginn. Ein af
áhrifum dagsins voru þær
hugarfarsbreytingar sem
höfðu það í för með sér að
þegar kjósa átti forseta
fimm árum síðar, var ekki
annað hægt en hafa konu
meðal frambjóðenda og
hinn 30. júní eru liðin 25
ár frá því Vigdís var kosin
forseti lýðveldisins.
Barátta kvenr.a á sjöunda áratugn-
um lagði grunninn að opinberri jafn-
réttispólitík og skilaði okkur sannar-
lega betra samfélagi. Undir lok ára-
tugarins var svo komið að því að láta
verkin tala, upphefja konur og fjölga
þeim svo um munaði sem fulltrúum í
pólitískum áhrifastöðum.
Eins og allir vita var kjör Vigdísar
sögulegt og kjör hennar er einn af
helstu viðburðum í íslenskri kven-
réttindasögu og hafði það gífurlega
mikið að segja fyrir íslenskar konur á
öllum aldri að kona sæti í virðuleg-
asta embætti þjóðarinnar. Öllum var
ljóst að kjör Vigdísar ruddi veginn
fyrir íslenskar konur og aðrar konur í
heiminum og eins og flestir vita geg-
ndi hún embætti forseta íslands í 16
ár við miklar vinsældir. Vigdís hefur
sjálf lagt áherslu á jafnrétti kynjanna
í starfi sínu og með störfum sínum og
fordæmi verið helsti brautryðjandi
og fyrirmynd kvenna hér á landi sem
víðar. Ferill Vigdísar er glæsilegur
en ekki verður hann rifjaður upp hér
18
Vlgdís stendur með Ástrlði dóttur slnnl á svölum heimllls þeirra. Þangað streymdi mikill mannfjöldi til
að hylla nýkjörin forseta sinn kvöldlð 30.júní 1980