Fréttablaðið - 12.05.2011, Blaðsíða 28

Fréttablaðið - 12.05.2011, Blaðsíða 28
12. maí 2011 FIMMTUDAGUR28 timamot@frettabladid.is Nú í sumar eru fimmtíu ár liðin frá stofnun Grasagarðs Reykjavíkur í Laugardal. Vegleg afmælisdagskrá verður í gangi í allt sumar en auk þess verður almenningi opnaður aðgangur að mun stærri garði en unnið hefur verið að stækkun garðsins upp á 2,4 hektara um nokkurt skeið. Garðurinn er í dag um þrír hektarar og verður því í heild nær tvöfalt stærri. „Þetta er stækkun á svokölluðu trjá- safni garðsins, og verður í sama dúr og það, með grasflötum sem hægt er að setjast á, trjám og runnum. Um þess- ar mundir er verið að vinna að því að gera gönguleiðir upp að nýja svæðinu og tengja það garðinum, en nýi hlut- inn er norðan við núverandi trjásafn garðsins. Formleg opnun á þessari stóru viðbót verður á afmælisdaginn sjálfan, 18. ágúst,“ segir Hildur Arna Gunnarsdóttir, fræðslustjóri Grasa- garðs Reykjavíkur. Núverandi trjásafn var opnað árið 1989 en í grasagarðin- um eru átta safndeildir, Flóra Íslands, fjölærar jurtir, rósir, lyngrósir, skóg- arbotnsplöntur, trjásafn, steinhæð og nytjajurtagarður. Grasagarðurinn var stofnaður árið 1961 með gjöf hjónanna Jóns Sigurðs- sonar, skólastjóra Laugarnesskóla, og Katrínu Viðar píanókennara en þau gáfu borginni safn með 200 plöntum úr íslenskri flóru, sem var komið fyrir í tveimur aflöngum beðum – á 700 fer- metra svæði. Í dag eru um 5.000 teg- undir plantna í Grasagarðinum. „Það eiga allir hlutdeild í Grasa- garðinum og hann á sér stað í hjörtum margra. Fólk á sér jafnvel sína uppá- haldsstaði og uppáhaldsplöntur og við höfum marga fastagesti á öllum aldri. Afmælinu verður því fagnað með fjöl- breytilegum hætti og sumardagskrá- in verður sérstaklega vegleg,“ segir Hildur og bendir gestum garðsins á dagskrána í heild á heimasíðunni gra- sagardur.is. Í dag klukkan 17 er til dæmis boðið upp á fræðslugöngu um Grasagarðinn þar sem hátíðaliljur í blóma verða skoðaðar undir leiðsögn Hjartar Þorbjörnssonar, safnvarðar og forstöðumanns Grasagarðsins. Gangan hefst við aðalinnganginn. „Fyrir utan sjálfan afmælisdaginn í ágúst má af öðrum dagskrárliðum nefna að í júní verður haldið upp á Dag villtra blóma og í júlí er farin svo- kölluð Rósaganga. Tónlistarmennirn- ir Páll Óskar Hjálmtýsson og Monika Abendroth hafa alltaf haldið tónleika á sumarstólstöðum í júnímánuði í Grasa- garðinum en í ár verða tónleikarnir ekki fyrr en í september og eru loka- punkturinn í þessari sumardagskrá,“ segir Hildur og lofar spennandi sumri í Laugardalnum. juliam@frettabladid.is GRASAGARÐURINN Í REYKJAVÍK 50 ÁRA: NÝTT STÓRT TRJÁSVÆÐI TEKIÐ Í NOTKUN Nær tvöfalt stærri garður HJARTFÓLGINN STAÐUR „Það eiga allir hlutdeild í Grasagarðinum og hann á sér stað í hjörtum margra. Fólk á sér jafnvel sína uppáhaldsstaði og uppáhaldsplöntur,“ segir Hildur Arna Gunnars dóttir, fræðslustjóri Grasagarðs Reykjavíkur. FRÉTTABLAÐIÐ//VILHELM 37 SÓLEY TÓMASDÓTTIR borgarfulltrúi er 37 ára í dag.„Við erum einstaklingar og það er alltof mikil einföldun að flokka fólk í tvennt og eigna því ákveðin áhugamál eftir því í hvaða hópi það lendir.“ MOSAIK Ástkær eiginmaður, faðir, tengdafaðir og afi, Þórður Haraldsson skipasmíðameistari, Fjallalind 84 í Kópavogi, lést á heimili sínu þann 5. maí síðastliðinn. Útför hans fer fram frá Seljakirkju þriðjudaginn 17. maí klukkan 13.00. Blóm og kransar vinsamlegast afþökkuð. Þórdís Harðardóttir Sveinbjörn Grétarsson Guðrún Hauksdóttir Þór Þórðarson Sonja Gísladóttir Eva Dís Þórðardóttir Sara Rós Þórðardóttir stjúpbörn og barnabörn. 55 ára afmæli Í tilefni þess að ég verð 55 ára 13. maí nk. býð ég vinum og ætting jum til veislu þann dag að Gjábakka, Fannborg 8, Kópavogi ( jarðhæð), milli kl. 17.30 og 20.00. Sigurður R. Höskuldsson áður til heimilis að Lundi, nú til heimilis að Hamraborg 32, Kópavogi. Ástkær sambýlismaður minn, faðir, tengdafaðir, stjúpfaðir, afi og langafi, Andrés Hjörleifsson sem lést a Hjúkrunarheimilinu Eir fimmtudaginn 5. maí, verður jarðsunginn frá Seljakirkju á morgun, föstudaginn 13. maí, kl. 13.00. Fyrir hönd aðstandenda, Rósa Jóhannesdóttir Ástríður Andrésdóttir Runólfur Þór Andrésson Ólafur Andrésson Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og langafi, Páll Marteinsson Brekkugötu 36, Akureyri, lést laugardaginn 7. maí. Útför hans fer fram frá Akureyrarkirkju fimmtudaginn 19. maí kl. 13.30. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir en þeim sem vildu minnast hans er bent á Heimahlynningu á Akureyri. Ásdís Sigríður Þorsteinsdóttir Sæmundur Örn Pálsson Þóra Ellertsdóttir Þorsteinn Pétur Pálsson Bergþóra Björk Búadóttir Kristinn Sigurður Pálsson Sólveig Alfreðsdóttir Marta Þuríður Pálsdóttir afa- og langafabörn. Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, Jens Jóhannes Jónsson Dalseli 33, Reykjavík, sem lést á Landspítalanum í Fossvogi laugardaginn 7. maí, verður jarðsunginn frá Áskirkju í Reykjavík mánudaginn 16. maí kl. 15.00. Sólveig Ásbjarnardóttir Anna Jensdóttir Sigurður V. Viggósson Ásbjörn Jensson Vilborg Tryggvadóttir Tausen Jón Haukur Jensson Berglind Björk Jónasdóttir Ástríður Jóhanna Jensdóttir Ragnar Kjærnested Erla Sesselja Jensdóttir Gunnar Friðrik Birgisson barnabörn og barnabarnabörn Elskulegur eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, sonur og afi, Haukur Nikulásson, lést á Landspítalanum 9. maí sl. Jarðarförin fer fram þann 18. maí kl. 15.00 í Áskirkju. Aðstandendur vilja færa sérstakar þakkir til starfsfólks deildar 13-E á Landspítalanum við Hringbraut. Nanna Guðrún Waage Marinósdóttir Nikulás Sveinsson Kjartan Reynir Hauksson Ingibjörg Daðadóttir Páll Arnar Hauksson Lára Björg Þórisdóttir Hákon Freyr Waage Friðriksson Einar Nikulásson Herdís Jóhannsdóttir Sveinn Nikulásson Haraldur Daði Þorvaldsson Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, Guðmunda Ögmundsdóttir Tjarnarmýri 39, Seltjarnarnesi, sem andaðist á líknardeild Landspítala Landakoti fimmtudaginn 5. maí, verður jarðsungin frá Fossvogskirkju föstudaginn 13. maí kl. 13.00. Blóm og kransar afþakkað en þeim sem vilja minn- ast hennar er bent á minningarsjóð Flateyjarkirkju á Breiðafirði. Minningarkort fást í versluninni Sjávarborg í Stykkishólmi, s. 438 1121, og hjá Gunnari, s. 824 5651. Guðný Gerður Gunnarsdóttir Ögmundur Gunnarsson Rannveig Stefánsdóttir Gunnar Freyr Gunnarsson barnabörn og barnabarnabarn Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma, langamma og langalangamma, Laufey Guðlaugsdóttir frá Lundi, Grenivík, lést á Sjúkrahúsi Akureyrar miðvikudaginn 4. maí. Jarðarförin fer fram frá Grenivíkurkirkju laugardaginn 14. maí kl. 13.30. Hallgrímur Svavar Gunnþórsson Guðbjörg Herbertsdóttir Þórey Gunnþórsdóttir Guðgeir S. Helgason Guðlaugur Gunnþórsson Stella D. Guðjónsdóttir Hjalti Gunnþórsson Nanna Kr. Jóhannsdóttir Emilía Kr. Gunnþórsdóttir Árni Pálsson og ömmubörnin
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.