Fréttablaðið - 12.05.2011, Blaðsíða 34

Fréttablaðið - 12.05.2011, Blaðsíða 34
12. MAÍ 2011 FIMMTUDAGUR Bræðurnir Armend og Dardan Zogaj hafa ferðast um víða veröld, unnið á mörgum pizzastöðum og smakkað á enn fleiri pizzum. Það kom þeim vel þegar þeir ákváðu að ráðast í opnun Castello pizzastaðarins á Dalvegi 2 nánast beint upp úr efnhagshruninu. „Við höfðum fulla trú á verkefninu enda hefur það gengið mjög vel,“ segir Armend. „Við hönnuðum staðinn fyrst aðeins þannig að fólk gat tekið pizzurnar með sér en fljótlega fundum við að viðskipta- vinir okkar vildu setjast niður og fá sér jafnvel vín með pizzunum. Við ákváðum því að opna annan stað, Castello veitingastað, í Dals- hrauni 13 í Hafnarfirði árið 2009 og hann hefur gengið mjög vel. Nú ætlum við að opna stað í Reykjavík og erum að leita að staðsetningu.“ En hvað skiptir öllu máli í pizza- gerð? „Brauðið“, segir Armend og brosir, „brauðið. Eftir öll okkar ferðalög erum við bræðurnir orðnir góðir bakarar og brauðið verður að vera „kríspí“ að utan en mjúkt að innan.“ Hann segir vin- sælustu pizzuna á Castello vera Rucola en hún er með klettasal- ati, parma skinku og parmesan- osti. „Annars eru þær allar vin- sælar,“ segir hann og hlær. „Við erum líka alltaf með tilboð, bæði hádegis- og heimsendingartil- boð en líka ef fólk sækir. Þannig kostar níu tommu pizza með þrem- ur áleggs tegundum og kók í dós ekki nema 1.090 kr. í hádeginu. Það kostar 2.490 kr. að senda heim miðstærð af pizzu með tveim- ur áleggstegundum, litlar brauð- stangir og 1 líter af gosi. Ef fólk vill sækja kostar stór pizza með tveimur áleggjum 1.790 kr. Við reynum þannig að koma til móts við flesta án þess að það komi niður á gæðunum.“ Þeir bræðurnir segja að ef til vill megi rekja áhuga þeirra á pizzum til þess hve heimaland þeirra Kosovo sé nálægt Ítalíu, þar sem flest sé gert úr brauð- deigi. „Pizzagerð hefur orðið okkar líf og yndi og markmið okkar er að búa til fyrsta flokks pizzur úr fyrsta flokks hráefni. Castello á að vera gæðastimpill.“ Castello pizzur hafa slegið í gegn Armend hefur unnið á mörgum pizzustöðum víða um heim. MYND/GVA Pizza Hut fagnar nú 25 ára afmæli sínu, en staðurinn er heimsfrægur fyrir gómsætar pönnupizzur sínar. „Pizza Hut er fyrst og fremst fjöl- skylduveitingastaður þar sem börn eru velkomin með allt sitt æsku- fjör og starfsfólkið sérþjálfað í að veita fjölskyldum góða þjónustu og vellíðan, spjalla við börn og hafa þau hlaupandi í kringum sig án þess að fipast við að bera fram mat og drykk,“ segir Þórdís Lóa Þórhallsdóttir eigandi og fram- kvæmdastjóri Pizza Hut í Smára- lind um heimsfræga veitingahúsa- keðjuna sem opnaði fyrst á Íslandi fyrir aldarfjórðungi síðan. Fyrir- tækið stofnuðu tveir bræður í litlum kofa í Wichita í Kansas árið 1958, en keðjan dregur einmitt nafn sitt af kofanum góða. Þeir bræður byrjuðu smátt og fengu 70 þúsund krónur lánaðar hjá móður sinni en hratt óx orðsporið um pizzurnar góðu og í dag eru yfir tólf þúsund Pizza Hut veitingastað- ir í heiminum og vörumerkið eitt það þekktasta í veröldinni. „Pizza Hut er frægast fyrir leyniuppskrift sína að pönnu- pizzu sem Íslendingar hafa snætt af bestu lyst í 25 ár. Enn panta 9 af hverjum 10 gesta okkar pönnu- pizzu, sem í raun er engu lík í nostur samri deiggerðinni sem tekur heila 8 tíma að gera áður en pizzan má fara í ofninn. Pönnu- pizzur eru þykkar, matarmiklar og gómsætar, en aðall Pizza Hut er hágæða hráefni og erum við eifn fárra staða sem nota 100% mozzarella-ost á pizzurnar,“ segir Þórdís Lóa. Pizza Hut býður einn- ig upp á þunnbotna og hefðbundn- ar ítalskar pizzur og svo pizzur með ostafylltum kanti, sem einnig er þeirra eigin lostæta uppfinning. „Pizzur Pizza Hut eru því ekki skyndibiti, heldur fullkomin mál- tíð í afslöppuðu og skemmtilegu umhverfi þar sem stjanað er við gesti í kósíheitum og kertaljósum.” Á heimasíðu Pizza Hut má sjá fjölbreyttan matseðil, sem og freistandi tilboð sem henta af- mælum og öðrum tilefnum. Þá er ótalinn ísbarinn þar sem börn geta útbúið sinn eigin ísrétt í eftirmat. Pizza Hut er í Vetrargarðinum í Smáralind. Sjá www.pizzahut.is. Frægar pönnupizzur og fjölskyldudekur Þórdís Lóa, eigandi Pizza Hut á Íslandi. Það er ómótstæðilegt að leyfa bragðlaukunum að upplifa pönnupizzur á Pizza Hut. ™ Við bjóðum uppá PÖNNU PIZZUR ............................... ÞUNN BOTNA PIZZUR ............................... KANTFYLLTAR PIZZUR ............................... PASTARÉTTI ............................... SALÖT ............................... HÁDEGISVERÐA HLAÐBORÐ ............................... SUNNUDAGS HLAÐBORÐ ............................... AFMÆLISVEISLUR ............................... HÓPATILBOÐ ............................... PIZZA HUT SMÁRA LIND www.pizzahut.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.