Fréttablaðið - 22.08.2011, Blaðsíða 20
FLÍSAR...TEPPI...PARKET...DÚKAR...FLÍSA
KET...DÚKAR...FLÍSAR...TEPPI...PARKET...D
TEPPI...PARKET...DÚKAR...FLÍSAR...TEPPI...P
FLÍSAR...TEPPI...PARKET...DÚKAR...FLÍSA
KET...DÚKAR...FLÍSAR...TEPPI...PARKET...D
TEPPI PARKET DÚKAR FLÍSAR TEPPI P
KET...DÚKAR...FLÍSAR...TEPPI...PARKET...D
TEPPI...PARKET...DÚKAR...FLÍSAR...TEPPI...P
Þúsundir fermetra
af flísum með
20 -70% afslætti
Eikar plankaparket
kr 4.990 m2
Allar baðherbergisvörur
25% afsláttur
ÚTSALA
Fæst í Bónus og Inspired,
Keflavíkurflugvelli
HOLLUR
BITAFISKUR
+ 80% prótín
Fiskneysla er góð
fyrir heilabúið
FRÉTTIR VIÐSKIPTI ÍÞRÓTTIR LÍFIÐ UMRÆÐAN
Meiri Vísir.
„Ég byrjaði seint í skóla, orðin
36 ára, en útskrifaðist með BA-
gráðu frá leirlistadeild Listháskóla
Íslands árið 2000,“ segir Ingibjörg
Klemensdóttir leirlistamaður.
Listaáhuginn hefur þó fylgt henni í
langan tíma. „Ég sótti leirnámskeið
hjá Steinunni Marteins, var í Mynd-
listaskóla Kópavogs og lærði teikn-
ingu og málun í mörg ár,“ upp-
lýsir Ingibjörg, sem var
því komin með all góðan
grunn þegar hún skellti sér
loks í Lista háskólann.
Eftir útskrift var hún
með vinnustofu heima. Í maí í
fyrra var komið að þáttaskilum.
Þá flutti hún verkstæði sitt niður á
Geirsgötu þar sem hún er nú bæði
með vinnustofu og gallerí undir
nafninu Gallerí Dunga.
Ingibjörg vinnur mikið með
postulín sem henni þykir
mjúkt og yndislegt efni en
einnig vinnur hún með gler.
„Þá hef ég einnig verið að raku-
brenna töluvert, en það geri ég
í gasofni í skúr á Eyrarbakka,“
segir hún glaðlega.
Úrvalið í munum Ingibjargar
er mikið, allt frá skúlptúrum
af kvenlíkamanum til
nytjahluta á borð við
skálar og lampa.
Ferðamenn
eru
tíðir gestir
hjá Ingibjörgu
og hei l last
þeir mest af
landslagslínu
hennar úr ker-
amik. „Ég
hef ver ið
með þá línu
lengi og túristarnir
segja stundum að þeim
finnist þeir vera komnir inn í
íslenska náttúru.“ Í Gallerí Dungu
eru þó ekki aðeins
munir Ingibjargar
heldur einnig munir
og fatnaður eftir aðra
hönnuði.
Ingibjörg segir
góðan anda ríkja
í gömlu verbúðunum við
höfnina. „Tengslin við sjóin
gerir hverfið svo sjarmerandi.
Gömlu karlarnir sem voru með
verbúðirnar hér áður eru með
annan fótinn hérna hjá okkur,
sem lífgar upp á tilveruna,“ segir
hún og telur gott samstarf vera
milli nágrannanna í grænu hús-
unum. „Við erum öll samstíga um
að byggja upp hverfið og gera
það að sjarmerandi hverfi í jaðri
borgar innar enda minnir and-
inn hér svolítið á Nyhöfn í Kaup-
mannahöfn,“ segir Ingibjörg
glaðlega. solveig@frettabladid.is
Sjarmerandi við sjóinn
Ingibjörg Klemensdóttir leirlistamaður rekur Gallerí Dungu í notalegu húsnæði við gömlu höfnina í
Geirsgötu. Þar er hún bæði með vinnustofu og gallerí þar sem hún selur verk sín af margvíslegum toga.
Ingibjörg rakúbrennir mörg verka sinna í
gasofni í kofa á Eyrarbakka.
Ingibjörg hannar bæði skúlptúra og nytjahluti á borð við lampa, sem hafa verið mjög
vinsælir. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
Gott skipulag í barnaherbergi gerir það að verkum að börnin una sér betur. Ef þau geta
gengið að böngsum í einum kassa, bílum í öðrum og kubbum í þeim þriðja eru meiri
líkur á að þau sæki í að leika í eigin herbergi. Þau kynnast um leið kostum þess að
hafa hlutina í röð og reglu.
Þú færð Fréttablaðið á kostnaðarverði á 120 stöðum um land allt.