Íslendingur - 03.03.1977, Page 4
Otgefandi: íslendingur hf.
Ritstjðri og ábyrgöarmaður: Gísli Sigurgeirsson.
Auglýsingastjóri: Sólveig Adamsdóttir.
Dreifingarstjóri: Jóna Árnadóttir
Ritstjórn og afgreiðsia: Ráðhústorgi 9, sími 21500.
Prentun: Prentsmiðja Björns Jónssonar.
Áskriftargjaid: 150 kr. á mánuði.
Lausasala: 50 kr. eintakið.
Það er fólksins
að velja og hafna
Eins og sagt var frá í íslendingi sl. fimmtudag, hefur bæjar-
stjórn Akureyrar samþykkt að veita 400 þús. kr. starfsstyrk
til Alþýðuleikhússins. Þar er stigið skref í þá átt, að stiðja ein-
hæfan pólitískan áróður, sem gefur ekki gott fordæmi. Burt
séð frá öllum yfirlýstum tilgangi leikhússins, verður ekki séð
hvaða skyldum Akureyrarbær hefur að gegna gagnvart um-
ræddum leikhóp. Aðeins örfáar af sýningum á vegum leikhúss-
ins hafa verið á Akureyri, en flestar í Reykjavík. Það er því
síst I verkahring ráðamanna Akureyrarbæjar að styðja þessa
starfsemi, ef einhver á að gera það. Það skal tekið fram, að það
er skoðun þessa blaðs, að óeðlilegt sé, að styðja einhæfa áróð-
ursstarfsemi með almannafé. Gildir þar einu hvort um er að
ræða áróður með eða á móti sósíalisma, eða öðrum þjóðfélags-
stefnum. Það mun líka vera einsdæmi, að jafn lítið bæjarfélag
og Akureyri sjái sér fært að styrkja tvö leikfélög.
í sumar kom fram í bæjarstjórn styrkbeiðni frá Alþýðu-
leikhúsinu. Þá var hún felld með mótatkvæðum Sjálfstæðis-
manna og hjásetu framsóknarmanna, Vals Arnþórssonar og
Stefáns Reykjalíns. Þeir tvímenningarnir hafa hins vegar skipt
um skoðun og greiddu atkvæði með styrkveitingunni, sem um
er rætt. Valur Arnþórsson gerði grein fyrir skoðanaskiptum
sínum í þessu máli við umræðurnar í bæjarstjórn. Sagði Valur,
að samkvæmt viðtali, sem útvarp hefði átt við leikstjóra leik-
hópsins, væri Alþýðuleikhúsið horfið frá fyrri pólitískri stefnu.
Því bæri að fagna þeim sem týnda syninum og slátra kálfinum
og veita þeim veglegan styrlr.
Þessi rök eru harla léttvæg á metunum, þegar litið er til
raunveruleikans. Alþýðuleikhúsið hefur haft tvö verk til sýn-
inga, Krummagull og Skollaleik, bæði eftir sama höfundinn,
Böðvar Guðmundsson, sem ekki hefur vitanlega skipt um
skoðun. Böðvar er gott skáld og góður hagyrðingur, sem væri
verðugur skáldalauna. Það breytir ekki því, að óeðlilegt er að
styrkja fjölmiðil verka hans af almannafé. „Skollaleikur“ var
fyrra verk Alþýðuleikhússins og hefur verið til meðferðar hjá
leikhúsinu til skamms tíma. Það getur því í rauninni ekki verið
um neina stefnubreytingu að ræða hjá Alþýðuleikhúsinu. Það
kom raunar fram hjá einum bæjarfulltrúa meirihlutans, Frey
Öfeigssyni, að hann hafði ekki einu sinni séð sýningu hjá Al-
þýðuleikhúsinu. Er kannski þannig farið um fleiri bæjarfull-
trúa sem veittu styrkveitingunni atkvæði sitt?
Óneitanlega ber þetta mál lykt af því, að átt hafi sér stað
einhver hrossakaup innan meirihlutans í bæjarstjórn, sem stend-
ur með einu umframatkvæði. Voru framsóknarmenn, að greiða
Soffíu gerðan eða ógerðan greiða? Þeirri spurningu verður
aldrei svarað svo óhrekjanlegt sé, en óneitanlega bera skoð-
anaskipti Vals og Stefáns keim af slíku.
Það má segja með sanni, að hér er ekki um störafjárfúlgu
að ræða, en hitt vegur þyngra á metunum, að með þesari
styrkveitingu hefur núverandi meirihluti í bæjarstjórn markað
ákaflega varhugaverða stefnu. Það kæmi kannski til með að
vefjast fyrir vinstri meirihlutanum í bæjarstjórn, ef annars-
konar öfl settu á fót leikhús og færu fram á styrk til starf-
seminnar úr sjóðum bæjarbúa.
Það er hlutverk bæjarfulltrúa, að gæta hagsmuna umbjóð-
enda sinna, bæjarfélaginu til heilla og framfara. Það er ekki
í þeirra verkahring að veita einhæfum pólitískum áróðri braut-
argengi með styrkveitingu. Hafi almenningur eitthvað að sækja
til Alþýðuleikhússins, þá fer hann á sýningar þess. Verði þær
fjölsóttar þarf leikhúsið ekki á styrkveitingu að halda. Það
er fólksins, að velja og hafna. Hér er ekki lagt listfræðilegt
eða menningarlegt mat á starfsemi Alþýðuleikhússins, heldur
boðskap þess og þann einhæfa áróður, sem það flytur.
Ferðaáætlun Ferðafélags Akureyrar:
IVIIKIÐ LIVI GÖIMG
Ferðafélag Akureyrar hefur nýlega sent frá sér ferðaáætlun
sína og nær hún allt fram í september. Gert er ráð fyrir 35
ferðum á þessum tíma, frá 5. mars til 4. september. Það sem
eftir er vetrar verður mest um gönguferðir í nágrenni Akur-
eyrar, en í sumar verður farið í Jengri ferðir. Má þar m. a.
nefna ferðir í Herðubreiðarlindir, Snæfellsskála, Fjallabaks-
leið syðri, Lónsöræfi, Kverkfjöll — Brúaröræfi — Snæfell,
Strandir ofl. ofl., sem nánar má sjá í áætluninni, sem birtist í
heild hér á eftir. Um sl. helgi var farið í gönguferð í Bíldsár-
skarð. 9 félagar tóku þátt í gönguferðinni og fengu þeir
mjög gott veður og göngufæri var gott. Magnús Kristinsson,
formaður Ferðafélags Akureyrar, tók meðfylgjandi myndir í
þeirri ferð. Eins og sjá má af myndunum var útsýni ekki dóna-
legt, en Magnús lét þess samt getið, að hann hefði verið búinn
með filmuna þegar að því kom að útsýnið var stórkostlegast.
Um næstu helgi er ráðgert að efna til aukaferðar og fara þá
gangandi á skíðum á Glerárdal.
Ferðaáætlun Ferðafélags
Akureyrar frá 5. mars til
4. september 1977 —
2. 5/3 Hlíðarfjall, gönguferð.
3. 13/3 Sólarfjall, gengið í spor Helga magra.
4. 19-20/3 Kerling, gönguferð með gistingu í Lamba.
5. 26/3 Skíðagönguferð.
6. 3/4 Bóndi, gönguferð.
7. 7-9/4 SnjóbíMerð í Laugarfell. Bkið verður á Hofs-
jökul eða annað eftir því sem aðstæður leyfa.
8. 17/4 Strýta, gönguferð.
9. 24/4 Hólafjall, öku- og gönguferð.
10. 1/5 Súlur, gönguferð.
11. 7/5 Möðrufellshraun.
12. 15/5 Hrossadalur. Ekið upp í Steinsskarð og gengið
þaðan í Víkurskarð.
13. 2H/5 Hraunsvatn og Þverbrekkufjall, gönguferð.
14. 30/5 Fuglaskoðunarferð.
15. 4/6 Fjöruferð.
16. 11/6 Blámannshattuir, gönguferð.
17. 17-19/6 Herðubreiðarlindir — Askja. Kostur1 mun gefast
á Herðubreiðargöngu fyrir þá sem vilja, ef veður
leyfir.
18. 25-26/6 Drangey — Sauðárkrókur — Hegranes.
19. 26/6 Ingjaldur, gengið úr Skíðadal.
20. 1-3/7 Þorljótsstaðir — Hraunþúfuklaustur — Merkigil.
21. 9-17/7 Strandir — Ingólfsfjörður — Tröllatunguheiði —
Dalir — Skógarströnd -—• S'tykkishólmur —
Grundarfjörður — Ólafsvík -— Hellissandur —
Arnarstapi — Staðarsveit — Borgarfjörður —
Kaldidalur — Kjölur.
22. 10/7 Svarfaðardalur og Skíðadalur.
23. 15-17/7 Fjölskylduferð í Laugafelli.
24. 17/7 Heljardalsheiði, gönguferð.
25. 22-24/7 Þeistareykir. Kostur gefst á göngu að Vítum og
um Gjástykki.
26. 22-24/7 Vinnuferð í Snæfellsskála með Ferðafélagi Fljóts
dalshéraðs. Gert er ráð fyrir að fairið verði í jepp-
um og sameinast hópi austanmanna á leiðinni. Ef
veður leyfir mun gefast tækifæri til Snæfells-
göngu.
27. 30/7-1/8 Þjófadalir — Hveravellir.
28. 6-14/8 Kver'kfjöll — Brúaröræfi — Snæfell, í samfloti
með Perðafélagi íslands.
29. 6-14/8 Lónsöræfi með Ferðafélagi íslands. Gert er ráð
fyrir að þátttaikendur sjái sér sér sjálfir fyrir fari
til Hornafjarðar, en þar verður sameinast hópi frá
Ferðafélagi íslands.
30. 19-21/8 Laugafell — Gæsavötn — Laufrönd — Öxnadal-
ur — Aldeyjarfoss — Stóratunga.
31. 21/8 Sveppatinsluferð
32. 23-28/8 Fjallabaksleið syðri — Hvanngil — Emstrur, með
Ferðafélagi íslands. Flogið verður til Reykjavíkur
að kvöldi þess 23. og sameinast hópi frá Ferðafé-
lagi íslands. Flogið til baka að kvöldi þess 28. eða
eftir hentugleikum hvers og eins.
33. 27-28/8 Berjaferð í Héðinsfjörð. Reynt verður að fá bát
frá Ólafsfirði.
34. 2-4/9 Hljóðaklettar og Jökulsárgljúfur í haustlitum.
35. 4/9 Gljúfurárjökull. Gengið úr Skiðadal.
Skrifstofa félagsins að Skipa-
götu 12 verður opin frá 26.
maí til 1. september á mánu-
dögum og fimmtudögum kl.
18—19. Sími 2-27-20.
í helgarferðir sumarsins
skal taka farmiða á fimmtu-
dagSkvöld, en í lengri ferðir
með 14 daga fyrirVara nema
annað sé auglýst. í lengri ferð
um á vegum FFA er heitu.r
matur, mjólk, kaffi og te
venjulega innifalið í fargjaldi.
Annað nesti og viðleguútbún-
að þurfa þátttakendur sjálfir
að leggja sér til.
Upplýsingar um ferðir
fr'am til 20. maí gefur Aðal-
steinn Valdimarsson í síma
2-36-92 kl. 19—21 kvöldið fyr
ir hverja auglýsta ferð og tek
ur hann á móti pöntunum á
sama tíma. Auk þess eru ferð
ir auglýstar í bæjarfréttadálk
um Akureyrarblaðanna. Þótt
veðurútlit sé slæmt eða aug-
lýstur brottfarartími henti
ekki, er sjálfsagt fyrir þá sem
áhuga hafa að gefa sig fram,
því oft er hægt að færa til
skemmri ferðir.
Farmiðar í ferð nr. 7 verða
afhentir í skrifstofu félagsins
laugardaginn 2. apríl kl.18—
19.
Þeir sem ætla sór að gista
í Lamba, skála félagsins í Gler
árdal, eru beðnir að hafa sam
band við skrifstofuna eða for-
mann félagsins, Magnús Krist
insson, í síma 2-39-96, til þess
að eiga etoki á hættu að koma
að skálanum fullsetnum. Enn-
fremur er vakin afhygli á því,
að á hluta upplagsins af ís-
landskorti Ferðafélags íslands
er skálinn sýndur norðvestan
Glerár í stað suðaustan. Þeir
sem ekki hafa komið að
Lamba áður, ættu að fá ná-
kvæmar upplýsingar um stað
setningu hans áður en lagt er
af stað.
Frá gönguferð Ferðafélags A1