Morgunblaðið - 16.02.2009, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 16.02.2009, Blaðsíða 7
Íþróttir 7 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 16. FEBRÚAR 2009 REAL Madríd sýndi mátt sinn þegar liðið rúll- aði Gíjon upp í gærkvöld, 4:0. Gulldrengurinn sem verður þó 32 ára á þessu ári og tæpast drengur lengur, skoraði tvö mörk fyrir Real og hefur nú skorað 11 mörk í deildinni á leiktíð- inni. Hollendingurinn Klaas-Jan Huntelaar og Marcelo skoruðu hin mörk Real Madríd í leiknum. Með sigrinum saxaði Madrídarliðið örlítið á forystu Barcelona sem missteig sig lítillega og gerði jafntefli við Real Betis, 2:2. Skoruðu liðs- menn Betis fyrstu tvö mörk leiksins og komust í 2:0 áður en markahrókurinn Samuel Eto’o tók til sinna ráða, skoraði tvö mörk og sá til þess að Barcelona færi nú ekki alveg tómhent heim úr för sinni frá Manu- el Ruiz de Lopera leikvangi Betis í Sevilla. Barcelona er sem fyrr á toppi spænsku 1. deild- arinnar með 60 stig að lokn- um 23 umferðum en Real Madríd er nú 10 stigum á eftir Katalóníuliðinu með 50 stig í 2. sæti. Sevilla er svo í 3. sætinu með 41 stig. Sevilla vann góðan útisigur á Esp- anyol í gær, 2:0 þar sem Freddy Kanoute skor- aði bæði mörk Sevilla á síðustu 6 mínútum leiksins. thorkell@mbl.is Stórsigur hjá Real Madríd Raúl LANDSLIÐSFYRIRLIÐANUM Hermanni Hreiðarssyni tókst að skora fyrir lið sitt, Portsmouth annan deildaleikinn í röð þegar Portsmouth lagði Manchester City að velli, 2:0 í ensku úrvalsdeildinni á laugardag. Glen Johnson kom Portsmouth yfir á 70. mínútu en Hermann innsiglaði sigur sinna manna með góðu skallamarki á 75. mínútu leiksins þegar hann stangaði knöttinn í netið eftir hornspyrnu. Er þetta því annar leik- urinn í röð þar sem Hermann skorar í úrvals- deildinni því hann skoraði einnig gegn Liver- pool helgina á undan. Hermann sem lék í stöðu vinstri bakvarðar fékk fína dóma fyrir frammistöðu sína og var meðal annars með næst- hæstu einkunn allra að mati lesenda íþróttavefs BBC, með 7,38 í einkunn, næstur á eftir Glen John- son sem fékk einkunnina 7,73. David James, markvörð- ur Portsmouth, skráði nafn sitt í sögubækur ensku úr- valsdeildarinnar en hann lék í sinn 536. leik í deild- inni og komst þar með upp fyrir Gary Speed. Portsmouth er í 15. sæti með 27 stig. thorkell@mbl.is Glæsilegt skallamark hjá Hermanni Hermann Hreiðarsson Eftir Þorkel Gunnar Sigurbjörnsson thorkell@mbl.is „Loksins kom að þessu. Ég er bú- inn að spila vel í vetur en ég hafði samt ekkert skorað. Það var því gaman að geta loksins glatt stuðn- ingsmennina með því að skora mark,“ sagði Aron Einar þegar Morgunblaðið talaði við hann. „Við fengum hornspyrnu og úr henni barst boltinn einhvern veginn til mín rétt fyrir utan vítateig eftir smá þóf. Ég rétt kom við knöttinn áður en hann lá í loftinu og ég hamraði honum bara á rammann. Þegar ég hitti boltann þá vissi ég að hann væri á leiðinni í markið, ég hitti hann svo vel. Ég var eiginlega byrjaður að fagna áður en hann var kominn alla leið í netið.“ Skemmdi ekki fyrir „Það er alltaf gaman að skora. En það skemmdi sko ekki fyrir, loksins þegar fyrsta markið mitt fyrir Coventry kom, að það skyldi vera í líkingu við þetta og það gegn úrvalsdeildarliðinu Blackburn á þeirra heimavelli. Ég sé ákveðin tækifæri í því að fá annan leik við Blackburn og það núna á okkar eigin heimavelli. Þeir eru í botnbaráttu í úrvalsdeildinni og gætu þurft að hvíla einhverja leikmenn og einbeita sér að deild- inni, en við komum hins vegar bara dýrvitlausir í þennan leik staðráðnir í að fá að taka á móti stórliði Chelsea í næstu umferð á eftir í bikarnum,“ en í gær var dregið í 8 liða úrslit ensku bikarkeppninnar og ljóst að liðið sem hefur betur í slag Coventry og Blackburn á Rioch Arena í Coventry fær heima- leik við Chelsea í 8 liða úrslitunum. „Við eigum vel að geta unnið næsta leik við Blackburn, ég er ekki í nokkrum vafa um það,“ sagði Aron. Gerði veðmál við Coleman Nýlega fékk Aron Einar að máta glæsilegt og rándýrt úr knatt- spyrnustjóra síns, Chris Coleman, þar sem Aron hafði látið heillast að úrinu. Í kjölfarið á því gerðu þeir Aron og Coleman með sér sam- komulag um að ef Coventry hafnar í einu af 10 efstu sætum ensku 1. deildarinnar þegar yfir lýkur í vor og Aron nær að skora 5 mörk megi Aron Einar eiga úrið. „Þetta er skemmtilegt veðmál og ég held ég hafi gert hann stress- aðan þegar ég skoraði þetta mark. Núna á ég bara fjögur eftir. Það yrði fyndið að fá eitthvert rosalegt úr frá knattspyrnustjóranum ofan á allt annað í lok leiktíðar. Til þess að vera fyrir ofan miðju í deildinni þurfum við samt að spila alla leiki eins og þegar við mætum þessum úrvalsdeildarliðum í bikarkeppn- unum. Við höfum spilað vel í þeim leikjum en höfum núna upp á síð- kastið verið að tapa dýrmætum stigum í deildinni. Næsti deildaleikur er gegn Burn- ley og verðum að vinna hann. Von- andi verður Jói Kalli [Jóhannes Karl Guðjónsson] með í þeim leik. Það er alltaf gaman að fá að taka á honum,“ sagði knattspyrnumað- urinn Aron Einar Gunnarsson sem gekk til liðs við Coventry í sumar frá hollenska félaginu AZ Alkmar. Hirðir Aron úrið af Coleman?  Aron Einar Gunnarsson skoraði sitt fyrsta mark fyrir Coventry um helgina  Mæta Chelsea á heimavelli vinnist sigur á Blackburn í síðari leiknum Morgunblaðið/Golli Nagli Aron Einar Gunnarsson skoraði sitt fyrsta mark fyrir Coventry um helgina gegn Blackburn Rovers. Í HNOTSKURN »Aron Einar Gunnarsson er19 ára knattspyrnumaður frá Akureyri. »Hann þótti einnig liðtækurí handknattleik og lék sinn fyrsta meistaraflokksleik í handbolta 15 ára gamall. »Bróðir Arons er Arnór ÞórGunnarsson, handknatt- leiksmaður í Val. AKUREYRINGURINN Aron Einar Gunnarsson skoraði sitt fyrsta mark fyrir Coventry frá því hann gekk til liðs við knattspyrnufélagið í sumar á laugardag. Var markið sannkallaður þrumufleygur rétt fyrir utan vítateig þar sem Aron smellti boltanum í vinstra markhornið og jafnaði metin, 1:1, í ensku bikarkeppninni gegn Blackburn Rovers á heimavelli Black- burn. Leiknum lauk með jafntefli, 2:2, og þurfa liðin því að mætast á nýjan leik á heimavelli Coventry til að fá úr því skorið hvort liðið komist áfram. Rússneskaíþróttakon- an Jelena Is- inbajeva setti í gær nýtt heims- met í stang- arstökki kvenna innanhúss þegar hún stökk yfir 5 metra á móti í Donetsk í Úkraínu, sem haldið er til heiðurs Sergei Bubka, heimsmethafa í stang- arstökki karla.    Isinbajeva, sem er 26 ára, átti sjálffyrra heimsmetið, 4,95 metra. Þetta er sjötta árið í röð sem hún setur heimsmet innanhúss á mótinu í Donetsk. Hún á einnig heimsmet kvenna utanhúss, 5,05 metra.    Inter Mílanófór með sigur af hólmi gegn erkifjendum sín- um í AC Milan, 2:1 í ítölsku A deildinni í knatt- spyrnu í kvöld. Inter komst í 2:0 með mörkum Adriano og Dejan Stankovic en Alexandro Pato lag- aði svo stöðuna fyrir AC Milan í 2:1 og þar við sat.    Framherjinn Dean Ashton hjáWest Ham í ensku knattspyrn- unni mun ekki leika meira með fé- laginu á leiktíðinni vegna meiðsla á ökkla. Hefur vinstri ökklinn verið kappanum óþægur ljár í þúfu í gegn- um tíðina því Ashton brotnaði á sama ökkla haustið 2006 og var frá meira og minna alla leiktíðina 2006- 2007.    Emil Hallfreðsson lék sinn fyrstadeildaleik með Reggina í ítölsku A deildinni í knattspyrnu síð- an 29. október þegar hann kom inn á sem varamaður á 63. mínútu í markalausu jafntefli við Palermo í gær. Emil hefur ekki verið í náðinni hjá þeim fjölmörgu sem stjórnað hafa Reggina á leiktíðinni, en þar eru tíð stjóraskipti.    Úkra-ínumað- urinn Andriy Vor- onin sem stuðningsmenn Liverpool ættu að kannast við var á skotskónum um helgina þegar hann skoraði bæði mörk Herthu Berlínar í 2:1 sigri liðsins á Bayern München í þýsku knattspyrnunni. Voronin er í eigu Liverpool en var leigður til Herthu Berlínar.    Frakkland sigraði Írland, 2:0, ívináttulandsleik kvenna í knattspyrnu sem fram fór í Blois í Frakklandi á fimmtudag. Franska liðið er með því íslenska í riðli í úr- slitakeppni EM í Finnlandi síðsum- ars, og Ísland vann írska liðið í um- spilinu um sæti á EM í haust. Fólk sport@mbl.is Eftir Þorkel Gunnar Sigurbjörnsson thorkell@mbl.is Þegar 20 mínútur voru eftir af leik Chelsea og Watford leit út fyrir að 1. deildar lið Watford væri á leið í 8-liða úrslit ensku bikarkeppn- innar í knattspyrnu, þar sem liðið hafði yfir 1:0 eftir mark Tamasar Priskins. Frakkinn Nicolas Anelka hrökk þá í gang og skoraði þrennu áð- ur en leiknum lauk og tryggði bláklædda Lundúnaliðinu áframhaldandi veru í keppninni. Manchester United vann einnig öruggan sigur á Derby County, 4:1 þar sem Nani, Darron Gibson, Cristiano Ro- naldo og Danny Welbeck skoruðu mörk United. Ever- ton tryggði sig líka áfram með 3:1-sigri á Aston Villa. Öðrum leikjum lauk með jafntefli og því ekki ljóst hver hin fimm liðin sem leika í 8-liða úrslitum keppninnar verða. Það er þó enn ekki klárt hvort Arsenal eða Cardiff mætir Burnley í 16-liða úrslitum keppninnar, því endurteknum leik Arsenal og Cardiff í 32-liða úrslitum var frestað til dagsins í dag. Í gær var svo dregið um það hvaða lið mæt- ast í 8-liða úrslitum og varð bikardrátturinn á þessa leið: Blackburn/Coventry – Chelsea Swansea/Fulham – Manchester United Cardiff/Arsenal/Burnley – Sheffield Utd./Hull Everton – West Ham/Middlesbrough. Er ráðgert að viðureignirnar í 8-liða úrslit- unum fari fram laugardaginn 7. og sunnudag- inn 8. mars. Aðeins þrjú lið komin áfram  Chelsea, Manchester United og Everton komin áfram í ensku bikarkeppninni FJÖGUR jafntefli litu dagsins ljós í leikjunum sjö sem fram fóru í ensku bikarkeppninni í knatt- spyrnu um helgina og aðeins þrjú lið örugg áfram. Nicolas Anelka

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.