Morgunblaðið - 21.09.2009, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 21.09.2009, Blaðsíða 26
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 21. SEPTEMBER 2009 PORTÚGALSKI kvikmynda-gerðarmaðurinn JoãoPedro Rodrigues er í sviðs-ljósinu á RIFF í ár, en þar verða sýnd nokkur af hans umdeildu verkum. João Pedro Rodrigues (1966) hóf afskipti af kvikmyndum ár- ið 1997 og á nú sex verk að baki. Að námi loknu við the School of Theatre and Cinema of Portugal, vann hann sem aðstoðarleikstjóri o.fl. áður en hann leikstýrði sinni fyrstu löngu mynd, The Phantom (2000), sem fjallaði eins og önnur verk hans í framtíðinni um samkynhneigð og vaxandi áhrif hennar í sívaxandi hópi homma, lesbía og transgender-fólks í listamannakreðsum Portúgals. Síðan hafa myndir hans notið aukinna vin- sælda og virðingar og hafa tvær þær síðustu verið sýndar á kvikmyndahá- tíðinni í Cannes. Hjartað í To Die Lika a Man er Tonia (Santos), karl sem kemur fram sem transgender á næturklúbbum. Af trúarlegum ástæðum hefur hún ekki viljað stíga skrefið til fulls, í óþökk Rosário (David), ástmanns síns, en Tonia er heittrúuð og vill ekki breyta sköpunarverki guðs. Líkami hennar er að byrja að hafna horm- ónagjöfunum, Tonia veit að hún á ekki langt eftir og vill fá að deyja í þeirri mynd sem guð skapaði hana, sem karlmaður. Ýmis tilvistarvandamál plaga hina miðaldra Toniu. Vinsældirnar fara minnkandi fyrir yngri draglista- mönnum, samband hennar við fíkil- inn Alexander (David) er ótryggt og sonur hennar frá því að hún var giftur maður er í miklum vandræðum. Til að reyna að ná tökum á lífinu og ástamálunum halda Rosárío og Tonia til vina sinna úti á landi. Þar lenda þau í einhverju sem líkist rauðum sól- myrkva, ofurraunsærri eða yfirnátt- úrlegri lífsreynslu þar sem jarð- bundnar flækjurnar leysast á hinn eina viðunandi hátt. Myndin laðar fram margar tilvist- arspurningar um hætturnar sem leynast í hverju fótmáli samkyn- hneigðra og ekki síður þeim ófrávíkj- anlegu raunum sem fylgja því að lifa og deyja sem slíkur. Á þeim tekur leikstjórinn og handritshöfundurinn af kunnáttusemi og leysir vandamál sinna jaðarpersóna af skilningi og virðingu og ómældum tíma. Ástin er öllu yfirsterkari Háskólabíó, RIFF 2009 Að deyja eins og maður – To Die Like a Man – Morrer como um homem  Leikstjóri: João Pedro Rodrigues. Aðal- leikarar: Fernando Santos, Alexander David, Gonçalo Ferreira De Almeida, Chandra Malatich. 135 mín. Portúgal. 2009. SÆBJÖRN VALDIMARSSON KVIKMYND Þrá Tonia vill fá að deyja í þeirri mynd sem guð skapaði hana. Eftir Arnar Eggert Thoroddsen arnart@mbl.is REYKJAVÍKIN er nú blessunarlega undirlögð af kvikmyndaræmum af öllum stærðum og gerðum, en Al- þjóðlega kvikmyndahátíðin í Reykja- vík, RIFF, er í fullum gangi sem aldr- ei fyrr þegar þetta er lesið. Og ekki verður slegið slöku við næstu daga … Spurt og svarað eftir Amadeus Milos Forman, heiðursgestur há- tíðarinnar, heilsaði upp á forseta vorn í gær á Bessastöðum og eðlilega vant- aði ekkert upp á fjölda fyrirmenna þar. Í kvöld verður mynd hans, Ama- deus, sýnd í stóra salnum í Há- skólabíói og leikstjórinn situr fyrir svörum eftir sýninguna. Þá mun franski tónlistarmaðurinn Olivier Mellano leika eigin tónlist undir mynd Stevens Spielbergs, Duel, í kvöld í Iðnó, en Mellano þessi hefur ástundað þennan einkennilega gjörning – að semja tónlist við uppá- haldsmyndir sínar – undanfarin ár og hefur vakið nokkra eftirtekt fyrir uppátækið. Friðrik Þór poppar! RIFF byrjar grámyglulega vinnu- vikuna með trompi, því auk hefð- bundinnar dagskrá bjóða þrír nafn- togaðir íslenskir leikstjórar fólki heim til sín – til að horfa með þeim á vídeó! Leikstjórarnir eru þeir Friðrik Þór Friðriksson, Hilmar Oddsson og Ragnar Bragason. Hyggjast þeir aukinheldur poppa fyrir gesti sína. Það verður forvitnilegt að sjá tækja- kost þessara manna, er það dýrindis heimabíó – eða gamla góða VHS? Varla þarf að taka fram að um tak- markað sætaframboð er að ræða … Morgunblaðið/Kristinn Heiður Milos Forman með heiðursverðlaun RIFF sem hann tók við úr hendi Ólafs Ragnars Grímssonar forseta. Rífandi gangur í RIFF Gestagnótt Sigurjón Sighvatsson, Ágúst Guðmundsson, Elva Ósk Ólafs- dóttir og Björn B. Björnsson voru á meðal þeirra sem mættu á Bessastaði. FRÁ LEIKSTJÓRA QUENTIN TARANTINO KEMUR HANS MAGNAÐASTA, VILLTASTA OG STÓRKOSTLEGASTA ÆVINTÝRI TIL ÞESSA. HÖRKUSPENNANDI MYND UM METNAÐARFULLAN BLAÐAMANN SEM TEKUR Á SIG SÖK Í MORÐMÁLI TIL ÞESS EINS AÐ UPPLJÓSTRA UM HINN SVIKULA SAKSÓKNARA MARTIN HUNTER(MICHEAL DOUGLAS) Uppgötvaðu ískaldan sannleikann um karla og konur Fyndnasta rómantíska gamanmynd ársins SÝND Í REGNBOGANUM Sími 551 9000 Þú færð 5 % e n d u r g r e i t t í RegnboganumSími 462 3500 Þú færð 5 % endurgreitt í Borgarbíó The Ugly Truth kl. 6, 8 og 10 B.i. 14 ára The Final Destination kl. 6, 8 og 10 B.i. 16 ára The Ugly Truth kl. 5:45 - 8 - 10:15 B.i.14 ára Beyond Reasonable Doubt kl. 5:40 - 8 750 kr. B.i.16 ára Inglorious Bastards kl. 6 - 9 750 kr. B.i.16 ára Karlar sem hata konur kl. 6 - 9 750 kr. B.i.16 ára Halloween 2 kl. 10:20 750 kr. B.i.16 ára HHHHH - H.G.G, Poppland/Rás 2 HHHHH “ein eftirminnilegasta mynd ársins og ein sú skemmtilegasta” S.V. - MBL HHHH „Gargandi snilld allt saman bara.“ Þ.Þ – DV SÝNDUR Í ÍSLENSKU ÓPERUNNI ALLIR ÞEIR SEM FRAMVÍSA LEIKHÚSMIÐA FRÁ HELLISBÚANUM FÁ 25% AFSLÁTT Á BÍÓMYNDINA: MIÐASALAÍ FULLUMGANGI!theuglytruth FRUMSÝND 18. SEPTEMBER SÝND Í SMÁRABÍÓI OG REGNBOGANUM Þú færð 5% endurgreitt í Borgarbíói, Smárabíói og Regnboganum og Háskólabíói ef þú borgar bíómið SÝND Í SMÁRABÍÓI, REGNBOGANUM OG BORGARBÍÓI Þú færð 5% endurgreitt í Háskólabíó RIFF | ALÞJÓÐLEG KVIKMYNDAHÁTÍÐ Í REYKJAVÍK

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.