Morgunblaðið - 21.09.2009, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 21.09.2009, Blaðsíða 28
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 21. SEPTEMBER 2009 FRÁSAM RAIMI LEIKSTJÓRA EVIL DEAD OG SPIDER MAN ENTERTAINMENT WEEKLY - 100/100 LOS ANGELES TIMES - 100/100 WALL STREET JOURNAL - 100/100 WASHINGTON POST - 100/100 FILM THREAT - 100/100SÝND Í ÁLFABAKKA OG KEFLAVÍK BÓ THE PSÝND Í ÁLFABAKKA HHHH – IN TOUCH HHH „HITTIR Í MARK.“ -S.V. MBL SÝND Í ÁLFABAKKA, KRINGLUNNI, AKUREYRI OG KEFLAVÍK FRÁ FRAMLEIÐANDANUM PETER JACKSON KEMUR EIN BESTA MYND ÞESSA ÁRS! HHHH “DISTRICT 9 ER EIN AF ÞESSUM MYNDUM SEM ÞÚ VERÐUR AÐ SJÁ Í BÍÓ.” “KEMST Á BLAÐ MEÐ ALLRA SKEMMTILEGUST VÍSINDASKÁLDSÖGUM Á HVÍTA TJALDINU FRÁ UPPHAFI.” BIO.BLOG.IS HHHHH „MADLY ORIGINAL, CHEEKILY POLITICAL, ALTOGETHER EXCITING DISTRICT 9.“ ENTERTAINMENT WEEKLY HHHH “IT’S A GENUINELY EXCITING AND SURPRISINGLY AFFECTING THRILLER.” EMPIRE HHHH „EIN AF BESTU MYNDUM SEM ÉG HEF SÉÐ Á ÞESSU ÁRI.“ „ÞRÆLSKEMMTILEG... SVARTUR HÚMOR... OG STANSLAUS SPENNA.“ T.V - KVIKMYNDIR.IS HHHHH „A GENUINELY ORIGINAL SCIENCE FICTION FILM THAT GRABS YOU IMMEDIATELY, NOT LETTING GO UNTIL THE FINAL SHOT.“ THE HOLLYWOOD REPORTER HHHHH SAN FRANCISCO CHRONICLE HHHHH WASHINGTON POST HHHHH „DISTRICT 9 IS A TERRIFIC ACTION THRILLER, IT’S A BLAST. . . .“ LOS ANGELES TIMES ATH. ALLR A SÍÐUST U SÝNING AR TILBOÐ 350 KR. - EKKI MISSA AF VINSÆLUSTU MYND ÁRSINS EINHVER FYNDNASTA MYND SÍÐARI ÁRA YFIR 61.000 MANNS SÝND Í ÁLFABAKKA / ÁLFABAKKA DISTRICT 9 kl. 5:50 - 8 - 10:30 16 BANDSLAM kl. 5:45 - 8 - 10:20 L DISTRICT 9 kl. 8 - 10:30 LÚXUS VIP UP m. ensku tali kl. 8 - 10:20 L REYKJAVÍK WHALE WAT... kl. 10:30 16 UPP (UP) m. ísl. tali kl. 5:503D DIGITAL 3D L DRAG ME TO HELL kl. 10:30 16 UPP (UP) m. ísl. tali kl. 5:50 L THE PROPOSAL kl. 8 L HARRY POTTER kl. 5 10 THE PROPOSAL kl. 5:50 LÚXUS VIP THE HANGOVER kl. 8:20 12 / KRINGLUNNI DISTRICT 9 kl. 8:10 - 10:30 16 FINAL DESTINATION4 kl. 8:303D - 10:303D 16 DIGITAL 3D BANDSLAM kl. 6 L DIGITAL 3D REYKJAVÍK WHALE.. kl. 8:30 - 10:30 16 UP m. ensku tali kl. 63D L DIGITAL 3D UPP (UP) m. ísl. tali kl. 63D L DIGITAL 3D HINN lítt reyndi Suður-Afr- íkumaður Neill Blomkamp sannar fyrir áhorfendum að það þarf engar stórstjörnur, engar milljarðabrellur eða fúlgur fjár til að gera spennandi og vel lukkaða mynd um ógnir fram- tíðar og þau dularöfl í geimnum sem við höfum látið okkur dreyma um um aldir. District 9 er frumleg, ógnvekjandi og blessunarlega allt öðruvísi en þær fokdýru heimsóknir utan úr geimn- um sem við höfum fengið í boði Hollywood á síðustu áratugum. Vissulega minnir illúðlegt geimfarið og staðsetning þess á Independence Day, en annað ekki. (Aukinheldur er sú ágæta mynd ein besta geimveru- fantasía sem komið hefur að vestan í háa herrans tíð.) Til að byrja með fer atburðarásin fram á óvenjulegum slóðum, fjarri þeim hefðbundnu heimsborgum sem yfirleitt koma við sögu undir kring- umstæðum sem í District 9, heldur er það Jóhannesarborg í Suður- Afríku sem nýtur þess vafasama heiðurs. Þegar myndin hefst eru geimverur búnar að vera stranda- glópar í borginni í 20 ár, eða frá því að geimskipið þeirra birtist yfir borginni. Það hefur verið upp úr 1990, forsagan er rakin með viðtölum úr fjölmiðlum þar sem kemur í ljós að jarðarbúar hafa sett í laggirnar stofnunina MNU til að annast geim- farið og geimverurnar, sem minna í útliti á gangandi rækjur. MNU gerði innrás í geimfarið, stjórnhluti þess féll til jarðar og hefur ekki fundist, en geimverurnar, sem skipta millj- ónum, eru veikar og vannærðar. Hef- ur þeim verið komið fyrir í subbuleg- um flóttamannabúðum þar sem þær þrífast einkum á kattamat sem þær kaupa af nígerískum herstjóra. MNU hyggst flytja geimverurnar um set og er framkvæmdin sett í hendur Wikus (Copley), sem er ekk- ert of glúrinn, en er tengdasonur stjóra MNU. Hann finnur hylki í eigu geimveranna (sem hafa ekkert nafn), úr því spýtist vökvi sem smitar Wilkes, sem byrjar að breytast í geimveru og taka á sig rækjulíki. Í vísindafantasíuna er fléttað ást- arsögu Wilkes og konu hans og vin- áttu Wilkes við Christopher (Cope), sem að öllum líkindum er einn af hin- um „týndu“ stjórnendum geimskips- ins. Hliðarsögurnar gefa annars kaldranalegri myndinni tilfinn- ingalega dýpt og lokaatriðið er sann- arlega rómantískt þegar hinn um- breytti Wikus kemur skilaboðum til konu sinnar. Lokin segja okkur líka að það er ástæða til að reikna með a.m.k. einni framhaldsmynd til að loka þessu ævintýri. Sem skapar sér sérstöðu því hér er ekki spurningin hvernig okkur reiðir af í höndum geimvera, heldur erum við, jarðar- búar, fantarnir. Dauðhræddir við það sem við þekkjum ekki komum við skammarlega fram við gestina okkar utan úr geimnum. Myndin vekur fjölmargar spurningar sem fæstum er svarað, líkt og hvað kom fyrir um borð, í hvaða tilgangi skipið kom til jarðar, fyrir utan krossgöt- urnar sem geimfarar og jarðarbúar eru staddir á í lokin, þegar loðnar fréttaskýringar ráða í gáturnar um afdrif Wilkes og geimveranna Blomkamp lætur sér ekki nægja vísindaskáldsöguhrollinn, heldur kryddar frásögnina með aft- urgöngum og náætum í sinni bráð- snjöllu og kraftmiklu líkingasögu, því Blomkamp staðsetur hana örugglega ekki af tilviljun; Suður- Afríka var jú síðasta vígi aðskiln- aðarstefnunnar (apartheid). Hroða- legar, líffræðilegar tilraunir á geim- verunum, framkvæmdar af MNU, minna einnig á annan óglæsilegan kafla úr sögu mannkynsins frá öld- inni sem leið. Blomkamp kemur hugmyndum sínum einstaklega ásættanlega fyrir á tjaldinu. District 9 virkar á þúsund vegu; er kaldhæðin stríðsádeila, hrollur, frábær spennumynd með til- komumiklum stríðsatriðum og brellumynd þar sem andi Peters Jacksons svífur yfir vötnunum, en hann er framleiðandinn. En tökum ekkert af Blomkamp, svo virðist sem nýr snillingur sé mættur á bak við myndavélarnar. Gestakoma úr geimnum Sambíóin District 9 bbbbn Leikstjóri: Neill Blomkamp. Aðalleik- arar: Sharlto Copley, David James, Jas- on Cope, Vanessa Haywood, Louis Minnaar. 111 mín. Bandaríkin/Nýja Sjá- land. 2009. SÆBJÖRN VALDIMARSSON KVIKMYND Frábært „District 9 er frumleg, ógnvekjandi og blessunarlega allt öðruvísi en þær fokdýru heimsóknir utan úr geimnum sem við höfum fengið í boði Hollywood á síðustu áratugum,“ segir Sæbjörn Valdimarsson, hæstánægður. „ÚR því að Enya gat þetta, þá hlýt ég að geta það líka,“ hefur Tori Amos ábyggi- lega hugsað þeg- ar ákveðið var að henda í eitt stykki jólaplötu. Téð Enya og listamenn eins og Josh Groban hafa halað inn milljónatugi í jóla- sokkinn sinn með viðlíka útgáfum og kannski Amos sé að horfa til þess, en síðustu plötum hennar hef- ur verið fremur fálega tekið, jafnt af gagnrýnendum sem kaupendum. Platan kallast Midwinter Graces og inniheldur blöndu af staðal- lögum og frumsömdu efni. Amos segist vona að glamur hennar á orgelið í kirkju föður síns í barn- æsku – en hann var prestur – hafi hjálpað henni að ná að miðla hinum sanna anda hátíðanna. Eigum við þá ekki bara að vona það sama? Jóla-Tori Amos Jólabarn Tori Amos. Kvæðamannafélagið Ið- unn hélt upp á 80 ára af- mæli sitt með stæl í Gerðubergi um helgina. Tónleikar og umræður voru í forgrunni og skáld á borð við Guðmund Andra Thorsson og Þór- arin Eldjárn ræddu um afstöðu sína til rímna- formsins. Þá fluttu Stein- dór Andersen, Páll á Húsafelli, Hilmar Örn Hilmarsson og félagar úr Sigur Rós brot úr verk- inu Hrafnagaldri Óðins og ræddu eftir flutning- inn við gesti um hug- myndafræðina á bak við verkið. „Komdu nú að kveðast á …“ Húsfyllir Gunnsteinn Ólafsson og Steindór Andersen, kampakátir. Morgunblaðið/Kristinn Seiður Hrafnagaldurinn dýrkaður upp. Skrafað Páll á Húsafelli og Kjartan Sveinsson úr Sigur Rós ræða við gesti.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.