Morgunblaðið - 02.10.2009, Blaðsíða 37
Minningar 37
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 2. OKTÓBER 2009
V i n n i n g a s k r á
22. útdráttur 1. október 2009
A ð a l v i n n i n g u r
Kr. 2.000.000 kr. 4.000.000 (tvöfaldur)
5 5 4 6 1
V i n n i n g u r
Kr. 100.000 Kr. 200.000 (tvöfaldur)
1 7 1 7 1 0 9 4 5 3 2 1 7 9 4 4 2 4 0
V i n n i n g u r
Kr. 50.000 Kr. 100.000 (tvöfaldur)
7912 25439 29288 43364 61154 75203
23389 26371 30230 44167 61694 75650
V i n n i n g u r
Kr. 12.000 Kr. 24.000 (tvöfaldur)
3 4 5 1 3 6 6 9 2 7 8 8 7 3 6 9 9 8 4 6 3 7 5 5 6 6 1 9 6 7 4 6 1 7 5 7 4 0
1 6 6 1 1 7 3 4 3 2 8 3 7 6 3 8 2 8 7 4 6 9 2 8 5 8 1 9 5 6 7 6 4 5 7 6 3 1 1
4 6 1 6 1 7 6 6 8 3 0 3 1 6 3 8 3 8 7 4 8 2 8 5 6 0 1 8 7 6 8 5 0 9 7 7 0 4 8
4 8 3 1 1 9 9 8 2 3 1 0 3 2 3 8 7 2 0 4 8 3 6 8 6 0 2 3 6 6 9 3 4 7 7 7 0 6 6
5 0 2 8 2 2 4 0 6 3 1 1 4 1 3 9 2 1 0 4 8 5 0 8 6 1 1 1 9 7 0 0 9 0 7 7 6 0 0
5 5 6 8 2 2 5 7 1 3 2 3 1 1 3 9 9 0 9 5 0 0 9 7 6 1 2 5 2 7 0 3 9 1 7 9 0 1 1
6 4 0 0 2 2 8 7 2 3 3 7 3 9 4 1 0 3 5 5 0 2 2 1 6 1 2 5 8 7 0 6 4 2 7 9 2 4 9
7 2 4 6 2 3 1 7 4 3 3 8 6 5 4 1 2 4 3 5 1 0 2 6 6 1 5 8 9 7 1 4 5 1 7 9 6 8 1
1 1 2 2 9 2 3 7 1 7 3 4 1 7 7 4 2 9 1 3 5 1 7 3 9 6 2 5 4 8 7 1 4 5 6 7 9 7 7 4
1 1 8 2 6 2 3 9 2 7 3 4 2 9 7 4 4 1 5 7 5 2 2 1 6 6 5 1 9 8 7 1 9 3 6
1 1 8 5 4 2 4 7 5 5 3 4 6 5 5 4 4 8 6 8 5 2 3 4 1 6 6 1 5 2 7 2 1 6 3
1 2 0 7 8 2 5 6 0 7 3 5 6 0 6 4 5 5 3 2 5 3 7 8 8 6 6 4 5 3 7 4 0 4 2
1 2 4 1 6 2 7 6 6 0 3 5 9 6 5 4 5 6 0 0 5 4 6 7 4 6 6 5 9 0 7 4 1 6 9
V i n n i n g u r
Kr. 7.000 Kr. 14.000 (tvöfaldur)
4 5 2 1 1 0 8 4 2 1 1 3 6 3 3 7 1 9 4 0 6 3 5 4 9 7 6 4 5 9 6 4 8 7 0 6 9 7
4 8 5 1 1 1 1 9 2 1 8 4 3 3 4 5 8 2 4 0 7 0 2 4 9 9 4 2 6 0 3 0 1 7 0 9 2 7
6 0 1 1 1 3 6 2 2 2 2 9 4 3 4 7 0 9 4 0 7 2 8 5 0 2 8 7 6 0 3 0 7 7 1 1 5 6
6 5 6 1 2 5 2 1 2 2 3 1 4 3 4 7 7 5 4 1 1 6 7 5 0 5 2 6 6 0 4 0 6 7 1 7 5 6
1 2 9 4 1 2 7 6 5 2 2 4 5 7 3 4 7 9 3 4 1 2 0 9 5 0 9 7 6 6 0 5 9 2 7 2 1 7 4
1 3 1 4 1 3 6 7 8 2 3 3 0 4 3 4 9 0 5 4 1 4 2 4 5 0 9 8 3 6 0 8 5 1 7 2 7 8 1
2 5 1 5 1 3 9 3 5 2 3 4 4 7 3 4 9 0 7 4 1 6 5 9 5 1 3 2 1 6 1 0 8 5 7 3 0 1 4
2 8 1 7 1 4 5 5 2 2 4 2 5 2 3 5 0 1 3 4 2 0 2 4 5 2 0 7 6 6 1 2 3 4 7 3 0 8 5
3 0 2 0 1 4 6 8 9 2 4 3 0 2 3 5 3 2 8 4 2 2 1 4 5 2 2 1 0 6 1 7 6 7 7 3 4 0 1
3 3 9 6 1 4 9 0 1 2 4 6 1 0 3 5 4 0 5 4 2 4 1 3 5 2 2 9 5 6 2 3 9 5 7 3 9 8 7
4 3 8 0 1 5 0 5 0 2 4 7 1 7 3 5 6 8 3 4 2 4 7 3 5 3 1 6 2 6 2 6 7 3 7 4 6 5 2
5 8 4 9 1 5 6 6 8 2 4 7 2 7 3 6 2 1 3 4 2 5 9 2 5 3 3 3 6 6 2 8 0 8 7 5 3 4 2
6 1 1 1 1 5 8 1 8 2 5 2 6 0 3 6 5 5 3 4 2 7 1 9 5 3 6 6 0 6 3 6 6 9 7 5 5 9 6
6 7 8 6 1 5 9 4 1 2 5 9 0 8 3 6 7 5 9 4 2 7 9 5 5 3 7 4 4 6 3 6 7 2 7 5 7 4 7
7 0 0 4 1 6 2 3 1 2 6 6 3 4 3 6 8 5 0 4 3 3 2 5 5 3 9 9 7 6 4 3 4 0 7 5 7 6 1
7 3 5 5 1 6 6 8 3 2 6 6 6 5 3 7 4 9 3 4 3 4 0 0 5 4 0 0 6 6 5 3 5 6 7 6 0 1 5
7 3 5 8 1 7 0 7 0 2 6 7 2 1 3 7 8 9 4 4 3 6 0 1 5 4 0 3 6 6 5 5 2 6 7 6 0 8 9
7 9 0 0 1 7 6 2 3 2 7 1 5 9 3 8 0 2 7 4 4 3 2 7 5 4 3 7 6 6 5 7 9 0 7 6 3 7 1
8 0 0 0 1 8 0 6 7 2 7 4 3 7 3 8 0 6 6 4 5 0 4 4 5 4 7 1 3 6 6 0 9 0 7 6 5 5 0
8 1 3 1 1 8 0 8 3 2 7 8 6 4 3 8 4 9 1 4 5 1 9 2 5 5 0 8 2 6 6 1 8 8 7 6 7 0 2
8 3 9 8 1 8 0 9 4 2 8 2 2 9 3 8 5 9 3 4 5 3 7 5 5 5 1 0 7 6 6 3 1 9 7 7 3 0 7
8 5 3 4 1 8 1 3 7 2 8 2 4 3 3 8 8 9 0 4 5 6 5 0 5 5 1 8 2 6 6 5 6 6 7 7 4 8 4
8 5 8 6 1 8 2 7 4 2 8 5 3 0 3 9 0 4 3 4 6 0 7 4 5 5 6 5 9 6 6 7 5 1 7 7 7 4 3
8 5 8 8 1 9 2 9 4 2 8 7 7 4 3 9 2 1 1 4 6 1 5 4 5 5 9 4 1 6 7 5 2 1 7 8 6 0 7
8 6 4 4 1 9 4 4 9 2 8 7 8 2 3 9 2 6 8 4 6 5 3 2 5 7 1 3 3 6 7 5 3 9 7 9 1 1 9
8 6 4 7 1 9 7 4 4 3 0 5 5 3 3 9 4 9 8 4 6 6 0 5 5 7 5 4 3 6 7 5 6 2 7 9 5 9 4
8 9 7 8 1 9 8 1 0 3 0 8 7 6 3 9 5 8 1 4 6 9 4 8 5 7 5 7 9 6 8 4 2 3
1 0 3 3 2 1 9 8 9 2 3 2 0 2 0 3 9 7 0 2 4 7 9 9 3 5 7 5 8 6 6 8 8 7 4
1 0 4 8 8 1 9 9 3 8 3 2 0 8 8 3 9 9 5 5 4 8 1 0 7 5 7 7 7 1 6 9 1 3 3
1 0 5 2 6 2 0 3 7 1 3 2 3 3 7 3 9 9 7 5 4 8 5 4 3 5 8 4 5 3 6 9 7 9 2
1 0 6 5 2 2 0 4 9 7 3 2 4 7 1 4 0 1 2 3 4 8 9 6 7 5 9 2 2 5 6 9 8 4 5
1 0 8 5 0 2 1 1 2 4 3 2 6 2 8 4 0 3 2 5 4 9 3 5 0 5 9 5 0 0 7 0 1 1 8
Næstu útdrættir fara fram 8. okt, 15. okt, 22. okt, & 29. okt 2009
Heimasíða á Interneti: www.das.
✝ Gunnlaugur Sig-urður Sigurðsson
iðnrekandi fæddist í
Sunnuhlíð í Varmahlíð
17. júlí 1953. Hann lést
á Landspítalanum við
Hringbraut aðfara-
nótt 23. september sl..
Foreldrar hans eru
Sigurður Gunn-
laugsson garðyrkju-
fræðingur, f. 24.8.
1929, og Arnþrúður
Margrét Jóhann-
esdóttir sjúkraliði, f.
25.7. 1931. Systur
hans eru a) Aðalbjörg, f. 1951, maki
Gísli Eiríksson, f. 1950, börn þeirra
eru Eiríkur, Greipur og Arnþrúður.
b) Hulda, f. 1957, maki Haraldur
Þorsteinsson, f. 1952, börn þeirra
eru Jóhannes, Þorgeir og Bergþóra
Magnea. c) Sigurlaug, f. 1962, maki
Emil Valgarðsson, f. 1960, börn
þeirra eru Benedikt Sigmar, Ester
Anna, Emil Þorri og Þorkell Óttar.
d) Margrét, f. 1965, maki Eyþór
Rafn Þórhallson, f. 1962, börn þeirra
eru Guðlaugur Garðar, Davíð Ár-
mann og María Margrét.
Gunnlaugur kvæntist hinn 29. des-
ember 1973 Gíslunni Arngríms-
dóttur verslunareiganda, f. 13.11.
1951. Foreldrar hennar voru Arn-
grímur Ingimundarson kaupmaður,
f. 23.11. 1912, d. 16.4.
2009, og Bergþóra Jó-
elsdóttir húsmóðir, f.
29.10. 1913, d. 25.3.
1995. Börn þeirra eru
a) drengur, f. 20.4.
1970, d. 21.4. 1970, b)
Sigurður, f. 21.3. 1973,
c) Bergþóra, f. 1.4.
1975, f.v. maki Gísli
Einarsson, f. 3.12.
1972, sonur þeirra
Birnir Ísar, f. 16.1.
2001, og d) Hulda, f.
24.3. 1986, hennar
sonur óskírður Huldu-
son, f. 19.8. 2009. Gunnlaugur bjó
mestan hluta ævinnar í Kópavogi.
Lauk gagnfræðaprófi og var síðan í
verslunarskóla í Englandi árið 1970-
71. Eftir heimkomuna starfaði hann
hjá Olíuverslun Íslands samhliða því
að reka prjónastofu G.S. Sigurðs-
sonar síðar Janus ehf. Jafnframt rak
hann í samstarfi við fleiri saumastof-
una Tinnu hf. til langs tíma.
Gunnlaugur var vinur vina sinna
sem gott var heim að sækja. Mikill
barnakarl enda nutu afastrákarnir,
systrabörn hans og Gíslunnar góðs
af því.
Útför Gunnlaugs fer fram föstu-
daginn 2. október frá Langholts-
kirkju kl. 11.
Meira: mbl.is/minningar
Kæri Gunnlaugur.
Heldur var þetta skjótur endir á
svo mörgu góðu. Það sem átti að vera
upphafið að nýjum kafla lífsins var
bara allt í einu búið.
Mig langar að þakka þér svo ótal
margt. Einkum góða viðmótið þitt og
hlýhug í minn garð og minnar fjöl-
skyldu í gegnum árin.
Er við vorum ung, hvað það var
gaman er við komum öll saman heima
á Reykjum, eða á Kópavogsbraut-
inni, á jólum og við önnur tækifæri.
Einnig var oft gaman í Úthlíðinni hjá
afa og ömmu. Þau kenndu okkur svo
margt sem kom okkur til góða, seinna
í lífinu. Enda bárum við mikla virð-
ingu fyrir þeim og öllu þeirra.
Ég hef Drottin ætíð fyrir augum, þegar
hann er mér til hægri handar hnýt ég
ekki. Fyrir því fagnar hjarta mitt, hugur
minn gleðst og líkami minn hvílist í friði
(Sálmarnir, 16:8-9)
Góða ferð, frændi.
Gíslunn mín og fjölskylda, Guð
verndi ykkur öll.
Ykkar
Hulda Axelsdóttir og fjölskylda
Ég var 6 ára þegar ég flutti á
Kópavogsbraut 99 og stuttu seinna
flutti Gunnlaugur í hús sem foreldrar
hans voru að byggja aðeins utar á
nesinu. Við urðum fljótt vinir og þó að
sumt væri ólíkt með okkur lynti okk-
ur vel saman. Ég man eftir að um 12
ára aldur eignaðist Gulli þetta forláta
DBS-reiðhjól og ég samskonar hjól
stuttu seinna. Voru þau mikið notuð
og ein eftirminnilegasta minningin
frá þessum tíma er þriggja daga hjól-
reiðatúr austur fyrir fjall. Við gistum
í tjaldi í Þrastarskógi og á Þingvöll-
um, og var þetta mikið og skemmti-
legt ævintýri.
Gunnlaugur kynntist Gíslunni,
konu sinni snemma en það breytti
ekki vináttunni. Síðasta ár mitt í
menntaskóla leigði ég herbergi hjá
þeim þar sem þau bjuggu á Rauð-
arárstíg og var ég þar nánast sem
fjölskyldumeðlimur. Sigurður sonur
þeirra fæddist á þessum tíma og voru
bæði faðir og fjölskylduvinur stoltir.
Ég fór í nám til Noregs og settist þar
að en ég held að ég hafi ekki komið til
Íslands án þess að hitta þau hjónin.
Þar að auki hafa þau verið miðpunkt-
ur fyrir aðra lífsvini mína, æskuvin
okkar, Ólaf, sem er dáinn fyrir nokr-
um árum, og menntaskólavini mína,
Gunnar og Leif, og fjölskyldur
þeirra.
Eftir að foreldrar mínir voru dánir
hefur okkur alltaf staðið til boða að
búa hjá þeim þegar við höfum heim-
sótt landið. Sumarið 2007 fórum við
með 28 manna hóp Norðmanna í
rútuferð um Ísland og var öllum
hópnum boðið í grillveislu hjá Gulla
og Gillu þegar við komum aftur í bæ-
inn. Það voru margir sem höfðu orð á
því hvað ég ætti góða vini á landinu
eftir meira en 30 ára búsetu erlendis.
Gulli átti mun auðveldara með að
veita enn þiggja en vorið 2008 þáði
hann að koma í heimsókn til okkar til
Noregs. Við vorum einstaklega hepp-
in með veðrið og gat ég sýnt þeim
margt frá fjöllum og fjörðum og fal-
legri náttúru Noregs. Við vorum
tæpa viku í húsi við Nordfjord fyrir
norðan Bergen og á kvöldin sátum
við Gulli undir norðurveggnum, rifj-
uðum upp margar gamlar minningar
og horfðum á sólina setjast á bak við
fjöllin hinum megin við fjörðinn.
Ég hitti Gulla síðast um áramótin í
fyrra þar sem ég bjó hjá þeim hjón-
um. Ég þakka fyrir allar þær góðu
minningar sem við eigum saman og
votta fjölskyldu hans okkar innileg-
ustu samúð.
Sigurður Bjarnason.
Fyrir tæpum þrjátíu árum hitti ég
Gunnlaug fyrst er ég kom á prjóna-
stofuna sem þá bar nafn föður hans,
Prjónastofa Sigurðar Gunnlaugsson-
ar. Ég keypti af þeim feðgum afgang-
sullarvoðir sem ég síðan vann úr litlar
peysur og fleira. Nokkrum árum síð-
ar var ég orðin starfandi hönnuður og
leitaði þá ráða hjá Gunnlaugi vegna
ýmiss konar prjónamála. Þegar ég
gerðist hönnuður hjá Pétri í M.A. Ei-
ríksson, sem var reyndar í sama húsi
í Auðbrekkunni, urðum við Gunn-
laugur samstarfsmenn því hann
framleiddi fyrir Pétur.
Þótt ég þyrfti árlega að skila nýrri
vörulínu hvarflaði það aldrei að mér
að ég myndi geta lært á mynstur-
gerðartölvuna og því þurfti Gunn-
laugur að sitja með mér yfir skjánum
og breyta því sem breyta þurfti. Það
að geta framkvæmt þessar lagfær-
ingar í tölvunni var auðvitað miklu
fljótvirkara en að teikna mynstrið
upp aftur og aftur á pappír og eins
þurfti bara að styðja á hnappa á
lyklaborðinu til þess að skoða mis-
munandi litasamsetningar Sá er vin-
ur er í raun reynist og það á svo sann-
arlega við um Gunnlaug. Samveru-
stundir okkar við tölvuna voru marg-
ar og oft langar og strangar þegar við
glímdum við stór mynstur eða erfið
eins og t.d. hestapeysur; fjórir fætur
hests á hreyfingu urðu okkur oft
snúnir – ekki síst vegna þess að lykkj-
urnar voru svo stórar og því skipti
sköpum að hver einasta lykkja væri
rétt staðsett þannig að fótaburðurinn
yrði réttur. Yfir þessu sat Gunnlaug-
ur með mér af einstakri þolinmæði og
reyndar varð hann jafn glaður og ég
þegar allt gekk að lokum upp. Þegar
stýristrimillinn fyrir prjónavélina var
tilbúinn hófst prufuprjónið og þá vor-
um við bæði mjög spennt að sjá
hvernig mynstrið og litasamsetning-
in skilaði sér.
En Gunnlaugur var ekki bara góð-
ur prjónamaður heldur var hann líka
umhyggjusamur yfirmaður og næmt
innsæi hans birtist í því að hann vissi
nákvæmlega hvað hentaði hverjum
og einum á vinnustaðnum.
Í biðtímum var oft spjallað um eitt
og annað og sjaldan var komið að
tómum kofunum hjá Gunnlaugi ef
mann vantaði ráðleggingar. Þá gilti
einu hvort það varðaði matargerð eða
stærri verklegar framkvæmdir;
Gunnlaugur gat alltaf leiðbeint.
Gunnlaugur var líka ástríkur fjöl-
skyldumaður og það færðist alltaf
sérstakur ljómi yfir andlit hans þegar
talið barst að fjölskyldumeðlimum og
þá ekki síst smáfólkinu. Síðustu árin
mín á prjónastofunni var Sigurður,
pabbi Gunnlaugs, að mestu hættur að
prjóna en hann var alltaf þarna og
tilbúinn til þess að gefa góð ráð ef á
þurfti að halda. Það fór ekki fram hjá
neinum að á milli þeirra feðganna
ríkti afar fallegt samband, grundvall-
að á einstakri væntumþykju og virð-
ingu.
Það er ekki auðvelt að horfast í
augu við þá staðreynd að Gunnlaugur
sé farinn héðan og með þessu stutta
endurliti vil ég þakka þessum öðlingi
ómetanlegt samstarf og einlæga vin-
áttu.
Mikill er söknuður ástvina Gunn-
laugs og bið ég þeim öllum Guðs
blessunar.
Ásta Björnsdóttir.
Kær vinur, fyrrverandi samstarfs-
maður og skólafélagi er horfinn á
braut svo snöggt með litlum fyrir-
vara. Við Gunnlaugur vorum jafn-
aldrar og skólafélagar úr Gaggó en
kynntumst fyrst náið þegar ég kom
til starfa sem framkvæmdastjóri hjá
Tinnu saumastofu 1987 og hann rak
sína eigin prjónastofu ásamt því að
þeir feðgar áttu helming í Tinnu.
Mjög náin samvinna var á milli þess-
ara tveggja fyrirtækja, Tinna á efstu
og miðhæð en prjónastofan í kjallar-
anum. Ég byrjaði í ágúst en í sept-
ember byrjar hrun ullariðnaðarins.
Kaupendur vörunnar gáfust upp eða
áttu í miklum erfiðleikum og það kom
mjög hart niður á þessum tveim fyr-
irtækjum sem áður höfðu verið í góð-
um málum. Allt í einu vorum við tvö
saman og samtaka farin að róa líf-
róður ásamt frábæru og stuðnings-
ríku starfsfólki til þess að bjarga fyr-
irtækjunum. Við unnum lengi dag og
nótt og áttum mörg samtölin svona
kl. þrjú að nóttu en þá var Gunnlaug-
ur að prjóna í kjallaranum og ég að
pressa á miðhæðinni. Við vorum ekki
alltaf sammála þennan rúma áratug
sem við unnum saman en ég man ekki
eftir rifrildi né æsingi, þökk sé Gunn-
laugi því það var ekki hans – ég hefði
kannski verið til – en samtaka tókst
okkur að láta fyrirtækin ganga en
mikið var það töff og tók mjög á.
Það fyrsta sem kemur upp í hug-
ann þegar ég hugsa til Gunnlaugs er
kærleikur, hvað honum var umhugað
um fólk, sýndi væntumþykju, alltaf
reiðubúinn til aðstoðar og gera vel og
sem best – naut þess að vera með
fólki. Ég man ullarfund á Hótel Loft-
leiðum, Gunnlaugur mættur á rauða
sendibílnum, hóaði í fólk, borð og
stólar aftur í, ostar, kex sulta og paté
og bjóða smá í kræsingar og hrista
saman hópinn fyrir fund og hafa
gaman af – dæmigert fyrir Gunnlaug.
Í byrjun júlí sl. hittumst við á Kan-
aríhátíð í Árnesi þar sem hann kom
með foreldrum sínum. Við stóðum úti
hress og spjölluðum en mér leið illa
og var ómöguleg. Þá kom umhyggju-
semin fram hjá Gunnlaugi og hann
fór niður á tjaldstæði til þess að
sækja töflu sem kæmi mér til góða og
hún virkaði. Næst heyrði ég í honum
þrem vikum seinna varðandi afmæli
pabba síns og þá sagði hann mér frá
veikindum sínum en ekki óraði mig
fyrir því að svona stutt væri eftir
enda var hann sjálfur uppfullur af
bjartsýni, baráttu og ákveðinn að
berjast og eiga einhvern tíma þótt
hann vissi hvernig þetta myndi enda
en staðráðinn í að taka foreldrana
með til Kanarí næsta vetur, fullur
baráttu og bjartsýni. Það duldist þó
fáum í afmæli Sigga í ágúst að Gunn-
laugur var veikur en krafturinn og
ákveðnin í að hafa mottóið „Maður er
manns gaman“ að leiðarljósi og taka
þátt var aðdáunarvert.
Að leiðarlokum vil ég þakka sam-
fylgdina og vináttu ásamt vináttu
hans við foreldra mína sem var mikil.
Hugur minn og samúð er hjá Gísl-
unni, Sigga, Bergþóru og fjölskyldu,
Huldu og litla syninum sem fær ekki
að kynnast elskandi afa, systrum og
fjölskyldum og ekki síst hjá Dúu og
Sigga því samband þeirra feðga var
einstakt og náið. Missir ykkar er mik-
ill og megi allar góðar vættir umlykja
ykkur.
Unnur S. Björnsdóttir.
Gunnlaugur Sigurður
Sigurðsson Bylgja HrönnNóadóttir
✝ Bylgja HrönnNóadóttir fædd-
ist í Ártúni á Tálkna-
firði 2. júlí 1960. Hún
lést á bráðamóttöku
Landspítalans við
Hringbraut 14. sept-
ember sl.
Minningarathöfn um Bylgju var í Sel-
fosskirkju 24. september.
Útför Bylgju var gerð frá Tálknafjarð-
arkirkju 26. september sl.
Meira: mbl.is/minningar
Minningar á mbl.is