Morgunblaðið - 11.10.2009, Blaðsíða 17
Ummælin 17
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 11. OKTÓBER 2009
’
„En við skulum engu að
síður þakka fyrir það, að
frá því að hörmungarnar
dundu yfir höfum við
sem þjóð staðið okkur
betur en svörtustu spár
gerðu ráð fyrir.“
Jóhanna Sigurðardóttir í
stefnuræðu forsætisráðherra á Alþingi. Hún
hughreysti þjóðina með því, að þeir væru
virkilega til sem hefðu spáð því að þjóðin
stæði sig verr.
„Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráð-
herra að flytja skrifaða ræðu er ekki sér-
lega spennandi atburður, manni líður
soldið einsog það sé 1. maí á árunum
kringum 1960 og eftir nokkrar setningar
er mann farið að langa í kaffi og kleinur.“
Mörður Árnason, fyrrverandi þingmaður
Samfylkingarinnar, varð skyndilega svangur
við að hlusta á stefnuræðu forsætisráðherra.
„Það eina sem þú veist í fótbolta er að
þú veist ekki neitt.“
Guðjón Þórðarson knattspyrnuþjálfari eftir
að honum var sagt upp störfum hjá Crewe
Alexandra í Englandi.
„Við höfum ekkert við hann að gera hér.“
Ögmundur Jónasson fyrrverandi heilbrigð-
isráðherra um Alþjóðagjaldeyrissjóðinn, sem
hann vill að hverfi úr landi hið bráðasta.
„Í ræðu í fertugsafmæli hans sagði ég að
honum væri best líkt við rússneskan kló-
settpappír, svolítið grófur á yfirborðinu
en svo sannarlega betri en enginn þegar
á þyrfti að halda.“
Ármann Þorvaldsson, fyrrverandi banka-
stjóri Kaupþing Singer og Friedlander, um
Sigurð Einarsson stjórnarformann Kaup-
þings í bókinni Ævintýraeyjunni.
„Ég sé fyrir mér að ég og aðrir íslenskir
borgarar munum ganga fram og til baka,
stefnulausir á Austurvelli með smokk yfir
hausnum.“
Ásgeir Hvítaskáld, rithöfundur og kvik-
myndagerðarmaður, sem skilur ekki hvers
vegna skattgreiðendur eiga að borga fyrir
sukk Landsbankans.
„Við lifðum poppstjörnulífinu til fulls og
höndluðum þessa svokölluðu frægð sem
svo marga dreymir um. Guð má svo vita
hvað gerist næst.“
Addi Fannar gítarleikari Skítamórals, sem
fagnar tuttugu ára starfsafmæli um þessar
mundir.
„Og þegar hann fór upp á svið hugsaði
ég bara „Nei, nei, nei!“ og svo fór hann
að tala og ég hugsaði „Ó, nei, nei, nei!“
Bandaríska söngkonan Beyoncé Knowles
um alræmt axarskaft rapparans Kanye West
á tónlistarverðlaunum MTV fyrir skemmstu.
„Þó að markaðurinn muni hugsanlega
straumlínulagast eitthvað vegna
ástandsins held ég að Íslendingar verði
hliðhollir bókinni.“
Kristján Kristjánsson, útgefandi hjá Upp-
heimum á Akranesi.
„Já, þegar ég var að byrja var ég elítisti,
bjó í fílabeinsturni. Ef einhver var að búa
til tónlist sem mér fannst óáhugaverð þá
lítilsvirti ég hana. Núna er ég hins vegar
þakklát öllum sem búa til tónlist.“
Japanska listakonan Yoko Ono sem viður-
kennir að hún sé orðin umburðarlyndari
með árunum.
„Réttarhöldin verða skrípaleikur. Lengi
lifi Ítalía! Lengi lifi Berlusconi!“
Silvio Berlusconi eftir að hann var sviptur
friðhelginni.
„Það má skrifa smásögur á milljón vegu í
alls konar formi. Í rauninni er ekkert
smásagnaform til. Það er ímyndun, upp-
finning bókmenntafólks og rithöfunda
sem vilja algilda sjálfa sig og sín viðhorf.
Slík algildisviðhorf koma alltaf upp öðru
hvoru í umfjöllun um skáldskap og listir.
“
Birgir Sigurðsson rithöfundur sem var að
senda frá sér smásagnasafnið Prívat og
persónulega.
„Svo virðist sem lukkuriddarar frjáls-
hyggjunnar hafi látið greipar sópa í ís-
lensku atvinnulífi. Það eina sem er eftir
af fjölskyldusilfrinu – eru lífeyrissjóðirnir.
Og þeir eru stórskaðaðir eftir viðskiptin
við þetta fólk.“
Kristján Gunnarsson, formaður Starfs-
greinasambandsins, á þingi sambandsins á
Selfossi.
„Ég er alltaf meiddur og hef ekkert æft
síðustu daga en greinilegt er að ég á
bara að spila og gera minna af því að
æfa.“
Hlynur Morthens, markvörður handboltaliðs
Vals, sem fór á kostum í sigri á Akureyr-
ingum sl. fimmtudag.
„Ertu að gera grín að mér?“
Jakob Smári Magnússon, bassaleikari,
spurður hvort hann hafi fundið fyrir krepp-
unni.
„Eftir að ég öðlaðist meiri reynslu og
fékk aukna trú á sjálfan mig áttaði ég
mig betur á því að hvað ég get í fótbolta.
Ég gerði mér smám saman grein fyrir því
að ég gæti alveg eins orðið Íslandsmeist-
ari og leikmaður ársins.“
Atli Guðnason, FH, sem valinn var knatt-
spyrnumaður ársins 2009.
„Nú er ég með gott hjarta og blóð um all-
an líkamann. Með þjálfun hefur mér vax-
ið ásmegin með hverjum deginum og
læknar telja að ég ætti að vera kominn
með góðan byr í segl um jól.“
Jóhannes Kristjánsson eftirherma sem
kominn er heim eftir hjartaígræðslu.
„Ég vona að menn taki nú loks eftir því
hvað ég er góður söngvari.“
Bubbi Morthens í tilefni af nýju Egó-
plötunni.
Reuters
Ái Það er ekki alltaf tekið út með sældinni að leika
tennis, svo sem Serena Williams fékk að kynnast á
opna kínverska meistaramótinu fyrir helgi.
Reuters
Sæt Svissneska sauðkindin er hugguleg skepna. Því fengu
gestir að kynnast á landbúnaðarsýningu í Sankt Gallen í vik-
unni. Skyldu forfeður hennar hafa verið kanínur?
Dagskrá fjármálakvölda í októberog nóvember
22. október Aðalbanki Fjármálaskilningur
29. október Mjódd Fjármál heimilisins
5. nóvember Ísafjörður Fjármál heimilisins
12. nóvember Akranes Fjármál heimilisins
19. nóvember Hamraborg Fjármál heimilisins
Fimmtudagskvöld
eru fjármálakvöld
Landsbankinn mun í vetur bjóða upp á röð fjármálanámskeiða fyrir almenning undir yfirskriftinni
Fimmtudagskvöld eru fjármálakvöld. Markmið námskeiðanna er að auðvelda fólki að öðlast betri yfirsýn
yfir fjármálin svo því sé unnt að taka upplýstar ákvarðanir um fjármál heimilisins og móta fjárhagslega
framtíð fjölskyldunnar.
Skráning fer fram á landsbankinn.is og
í síma 410 4000.
Nánari upplýsingar um námskeiðin er
að finna á landsbankinn.is.
FJÁRMÁLARÁÐGJÖF | landsbankinn.is | 410 4000NB
Ih
f.
(L
an
d
sb
an
ki
nn
),
kt
.4
71
0
0
8
-2
0
8
0
.
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
3
9
2
8
4
O
kt
ó
b
e
r
N
ó
ve
m
b
e
r 1
2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30
Sun Mán Þri Mið Fim Fös La
u
2009
1 2 3
4 5 6 7 8 9 10
11 12 13 14 15 16 17
18 19 20 21 22 23 24
25 26 27 28 29 30 31