Organistablaðið - 01.12.1971, Síða 6
Tónleikahald í Reyhjavík
Neskirkja. Fyrstu kirkjutónleikar
vetrarins voru í Neskirkju að þessu
sinni. Gospeltemaet frá Finnlandi hélt
þar tónleika 6. október. Þetta eru 6
ungir menn og konur, sem mynda lít-
inn sólistakór. Þau sungu ýmist með
eða án hljóðfæris. Einnig komu sumir
fram sem einsöngvarar.
Efnisskráin var tvískipt. I fyrri hlut-
anum var m. a. Stahat Mater eftir
Pergolesi, dúett úr messu í G-moll
eftir Baeh, verk eftir Buxtehude og
fleiri. I seinni hlutanum voru negra-
sálmar auk annars.
lláteigskirkja. Sunnudaginn 17. okt.
voru tónleikar í Háteigskirkju. Flytj-
endur voru organisti kirkjunnar Mar-
tin Ilunger og Svala Nielsen ásamt litl-
um söngflokk.
A efnisskránni voru verk eftir Bach
og Jón Leifs. Martin Hunger lék litla
orgelmessu úr ..Klavierúbung 3 Teil“
og 4 dúetta. Svala Nilsen söng lög op.
12a og kórinn söng undir stjórn Mar-
tins Ilungers 3 ísl. sálmalög op. 17h
og Alþýðulög op. 32.
IiústaSakirkja. Annan sunnudag í
Aðventu hélt kór Bústaðakirkju tón-
leika í hinni nývígðu kirkju safnaðar-
ins. Stjórnandi var organleikari safn-
aðarins, Jón G. Þórarinsson.
Fyrst á efnisskránni var kór úr
Júdas Maccaheus eftir Handel. Þá
var flutt kantata eftir Buxtehude, Das
Neugeborene Kindelein. Þriðja verk-
efni tónleikanna var nýtt verk eftir
Jón Ásgeirsson, sem samið var í tilefni
kirkjuvígslunnar. Þetta verk er gert
fyrir tenórsóló, kór og orgel, við texta
úr fjallræðunni, en endar á sálmalag-
inu Vor Guð er borg. Einsöngvari í
þessu verki var Friðhjörn G. Jónsson.
Síðasta verkefnið var messa í B-dúr
eftir Mozart. Einsöngvarar voru Guð-
rún Tómasdóttir, Margrét Eggertsdótt-
ir, Garðar Cortes og Hjálmar Kjartans-
son. Hljóðfæraleikarar sem aðstoðuðu
voru nemendur úr Tónlistarskólanum í
Reykjavík. Orgelleikari var Martin
Ilunger.
Dómkirkjan. Þriðja sunnudag í Að-
ventu voru kammertónleikar í Dóm-
kirkjunni. Helga Ingólfsdóttir, Rut
Ingólfsdóttir, Pétur Þorvaldsson, Jón
II. Sigurbjörnsson og Kristján Þ.
Stephensen fluttu Barok-tónlist m. a.
eftir J. S. Baoh.
G.
ihelzt eru notuð í kirkjum landsins eru: „Aðfangadagskvö 1 d jóla,“
„Á föstudaginn langa“ og „Jólaikvæði“.
Hér er ékki rúm til að geta nema nokkurra aðalatriða úr ævi
Sigvalda, en á jjessu ári kom út „Bókin um Sigvalda Kaldalóns" eftir
Gunnar M. Magnúss. Utgefandi cr Skuggsjá. I 'bókinni er mikinn
fróðleik að íinna og aftast í bókinni er skrá yfir sönglög hans.
Sigvaldi andaðist í Reykjavik 28. júlí 1946. Lög hans munu lifa
áfram með jijóðinni og eru honum verðugur minnisvarði.
Kristján Sigtryggsson.
6 ORGANISTAISLAÐIÐ