Morgunblaðið - 15.02.2010, Qupperneq 19
Umræðan 19
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 15. FEBRÚAR 2010
Grunnur að góðu lífi : : 535_1000
Fasteignasala . Íbúðarhúsnæði . Skúlatún 2 . 105 Rvk
Þorlákur Ó. Einarsson
lögg. fasteignasali
stakfell.is
Þórhildur Sandholt
lögfr. og lögg. fast.sali
Fax 535 1009
! "
Galtalind KÓP - 4ra herb.
113,3 fm fjögurra herb. íbúð á 3. hæð auk
6,2 fm sérgeymslu á jarðhæð. Björt stofa, 3
svefnh., Þvottah. í íbúð. Parket og flísar á
gólfum.
Kjarrhólmi - 4 herb.
90 fm íbúð á þriðju hæð. Íbúðin er parketlögð
nema bað er flísalagt. Svefnherbergi rúmgóð.
Þvottah. í íbúð.
Verð 20,4 millj.
Stórikriki - einbýlishús
301,6 fm hús á einni hæð, þar af 46,8 fm bíl-
skúr. Húsið er fokhelt. Í húsinu er gert ráð fyr-
ir þremur barnah. auk hjónah. með sérbað-
og fatah. Eldhús með eyju. Stór stofa.
Skaftahlíð - 4ra herb.
119,0 fm íbúð + 30,1 fm bílskúr. Eignin skipt-
ist í forstofu, gestasn., 3 svefnh. Bað er end-
urgert og með tengi fyrir þ+þ. Tvennar svalir.
Verðtilboð.
Gullengi - 5 herb.
122,5 fm íbúð á 3. hæð auk 10,8 fm geymslu í
kjallara, skilast fullbúin án gólfefna, en með
flísalögðum bað- og þvottahúsgólfum. Sér
inngangur af svölum.
Vesturberg - endaraðhús
213,7 fm endaraðhús, þar af 30,9 fm inn-
byggður bílskúr. Nýlega var eignin steinuð og
pússuð að utan. Eignin er í grónu hverfi.
Áhvílandi hagstæð lán.
Dunhagi - 5 herb.+ stúdíóíbúð
m/sérinng.
153 fm alls. Íbúðin er 126 og skiptist í góða
stofu og sérborðstofu. Endurnýjað bað. Eld-
hús með hvítri fulningainnr. og nýlegum tækj-
um, 3 svefnh. Á jarðhæð er 26 fm stúdíóíbúð
með sérinng. Verð 29,9 millj. GÓÐ KAUP.
Skipalón - 50 ára +
Glæsileg 120 fm 3ja herbergja íbúð á annarri
hæð í lyftuhúsi með stæði í bílageymslu. Sér-
smíðaðar innréttingar með granít borðplötum.
Tvö baðherbergi, eitt innaf hjónaherbergi.
Ásholt - 3ja herb.
133,7 fm þar af 26 fm stæði í bílskýli. Gengið
úr borðstofu á verönd. Afgirtur, upplýstur
garður. Húsvörður. Falleg eign í hjarta
Reykjavíkur. Einnig til sölu atvinnuhúsnæði á
jarðhæð.
: : 535_1000.is
JÓHANN Páll Sím-
onarson ryðst enn
fram á ritvöllinn í
Morgunblaðsgrein 6.
febrúar til varnar af-
ar sértækum einka-
hagsmunum mjög fá-
menns minnihluta
landsmanna, sem
beitir öllum tiltækum
ráðum til að viðhalda
flugstarfsemi í Vatns-
mýri á kostnað mikilsverðra al-
mannahagsmuna borgarbúa og
annarra landsmanna. Frá flugvall-
arkosningunni 2001 hefur sam-
gönguráðherra haldið úti virkum
rithópi úr röðum þessa minni-
hluta, sem aldrei hefur fundið hjá
sér þörf fyrir haldbær rök og
sanngirni heldur skákað í skjóli
baneitraðs atkvæðamisvægis í
málflutningi sínum. Jóhann, sem
nýlega sóttist eftir umboði til að
ráðskast með hagsmuni borgarbúa
í ráðhúsi Reykjavíkur á næsta
kjörtímabili, nær áður óþekktum
lægðum í málflutningi sínum með
aðdróttunum og dylgjum í garð
undirritaðs, með hreint ótrúlegum
útúrsnúningum, fáfræði og lítils-
virðingu fyrir almannahag íbúa í
Reykjavík og með grófum afflutn-
ingi á málstað Samtaka um betri
byggð.
Alkunna er að Vatnsmýrarvöll-
urinn, sem samgönguyfirvöld
þröngva með ofbeldi upp á borg-
arbúa, hefur á liðnum áratugum
splundrað byggðinni á höfuðborg-
arsvæðinu og valdið Reykvík-
ingum og öðrum landsmönnum
ólýsanlegu tjóni. Því er afar mik-
ilvægt nú að kjósendur spyrji
sjálfa sig og frambjóðendurna,
sem gefa kost á sér til
starfa í borgarstjórn
Reykjavíkur á næsta
kjörtímabili, hverjir
séu brýnustu hags-
munir borgarsam-
félagsins, hvernig
megi stöðva stjórn-
lausa útþenslu byggð-
ar og hvernig megi
þess í stað byggja
borgina inn á við til
mikilla hagsbóta fyrir
Reykvíkinga og aðra
landsmenn. Allan lýð-
veldistímann og enn lengur hafa
þingmenn af landsbyggðinni ráðið
lögum og lofum í veigamestu
fastanefndum Alþingis í skjóli
mikils misvægis atkvæða og beitt
þar illa fengnu valdi yfir allri
áætlanagerð, ákvörðunum og ráð-
stöfun fjármuna á sviði sam-
gangna gegn hagsmunum mikils
meirihluta landsmanna í höf-
uðborginni.
Á vef Alþingis eru nú rafrænar
upplýsingar um skipan 9 manna
samgöngunefndar og 11 manna
fjárlaganefndar á 63 löggjaf-
arþingum frá árinu 1954 til ársins
2009 (74. – 137. löggjafarþing). Á
þessum 63 þingum áttu Reykvík-
ingar alls 29 nefndarsæti í sam-
göngunefnd, 0,46 sæti af 9 að
meðaltali eða 5,1%. Á sama tíma-
bili áttu Reykvíkingar alls 69
nefndarsæti í fjárlaganefnd, 1,05
sæti af 11 að meðaltali eða 10%. Á
40 þingum á tímabilinu áttu Reyk-
víkingar engan fulltrúa í sam-
göngunefnd og á 25 þingum engan
í fjárlaganefnd. Á 28 þingum á
sama tímabili (63 þing) áttu hvorki
Reykvíkingar, aðrir höfuðborg-
arbúar né Suðurnesjamenn full-
trúa í samgöngunefnd og engan á
9 þingum í fjárlaganefnd. Verðugt
rannsóknarefni er að Reykvík-
ingar virðast hafa risið upp 1956
en verið kveðnir rækilega í kútinn
1959: á þremur þingum áttu þeir 5
fulltrúa í fjárlaganefnd en engan
næsta aldarfjórðunginn!
„Yfirburðir“ landsbyggðarþing-
manna í þessum nefndum eru yf-
irþyrmandi og þingmenn af höf-
uðborgarsvæðinu veigra sér einatt
við þátttöku í nefndarstörfunum.
Þannig handstýra landsbyggð-
arþingmenn nánast í einrúmi og
að eigin geðþótta öllum ákvörð-
unum, áætlunum og skiptingu op-
inbers framkvæmdafjár. Alvarleg
birtingarmynd þessa gjörspillta
fyrirkomulags eru knappar fjár-
veitingar til stofnbrauta á höf-
uðborgarsvæðinu allan lýðveld-
istímann, sem ógna lífi og limum
borgarbúa í æ ríkari mæli. Árið
2009 var hlutdeild svæðisins 2,5%
af vegafé þó 70% af tekjum vega-
sjóðs hljótist af umferðinni þar. Á
árinu 2010 er gert ráð fyrir að
ekkert vegafé komi í hlut borg-
arbúa en áratuginn þar á undan
var meðaltalið um og innan við
25%.
Í svari við tilmælum Samtaka
um betri byggð í nóvember 2007
um jöfnun milli kjördæma við
skipan í samgöngunefnd og fjár-
laganefnd sagði Sturla Böðvarsson
þáverandi forseti þingsins að nið-
urröðun í þær væri alfarið háð
óskum einstakra þingmanna
hverju sinni. Ekkert er þó fjær
sanni eins og úttektin á meðfylgj-
andi skýringarmynd sannar,
reglufestan er alger og nið-
urnjörvuð áratug eftir áratug. Til
grundvallar þessu gjörspillta fyr-
irkomulagi er þegjandi sam-
komulag landsmálaflokkanna.
Landsbyggðararmar þeirra fá
flestum kröfum sínum framgengt
á landsfundum fjórflokksins í
skjóli atkvæðamisvægisins, þ.m.t.
skipan í þingnefndirnar. Er nema
von að svona kerfi hrynji til
grunna? Í skugga þessa spilling-
arvefs beita flugvallarsinnar sér
reglulega gegn höfuðborgarbúum í
áróðursherferðum á síðum dag-
blaða og klykkja gjarnan út með
skoðanakönnunum á kostnað
skattgreiðenda.
Eftir Örn
Sigurðsson
» Í samgöngunefnd Al-
þingis þrífst gjör-
spillt verklag handstýr-
ingar, sjálftöku og
misbeitingar valds gegn
borgarsamfélaginu í
skugga atkvæðamis-
vægisins
Örn Sigurðsson
Höfundur er stjórnarmaður í Sam-
tökum um betri byggð.
Reykvíkingar, er þetta lýðræðið í lýðveldinu?
Eyrnalokkagöt
sími 551 2725