Fréttablaðið - 26.11.2011, Side 110

Fréttablaðið - 26.11.2011, Side 110
26. nóvember 2011 LAUGARDAGUR74 Tónlist ★★★ Meeting Point Song For Wendy Hægur taktur og þægileg stemning Song for Wendy er samstarfsverkefni Dísu Jakobsdóttur og Mads Mouritz. Dísa steig fram á sjónarsviðið með sína fyrstu plötu, sem hét einfaldlega Dísa, fyrir þremur árum og sýndi með henni að hún er hæfileikaríkur tón- listarmaður. Mads, sem er danskur, hefur verið að búa til tónlist í mörg ár og á að baki töluvert af útgefnu efni. Dísa og Mads eru kærustupar og eignuðust saman barn um það leyti sem platan var að að fara í fram- leiðslu. Meeting Point er lituð af sam- bandi parsins sem stendur á bak við hana. Ástin er áberandi í textunum og myndin á framhlið umslagsins sýnir tvö hjörtu takast í hendur. Lögin eru frumsamin, en textarnir byggja flestir á gömlum ljóðum. Tónlistin er ljúft og melódískt popp í hægum takti og daufum litum. Útsetningarnar eru lágstemmdar og smekklegar og hljómurinn er vandaður. Þetta er fín plata. Lagasmíðarnar eru ágætar og það er þægileg stemning í þessum tólf lögum. Þau Dísa og Mads syngja líka vel, bæði saman og hvort í sínu lagi. Meeting Point ristir kannski ekkert mjög djúpt, en þetta er samt fín plata sem vekur vonir um að þau Dísa og Mads eigi eftir að gera enn betri hluti í framtíðinni. Trausti Júlíusson Niðurstaða: Ljúf og þægileg plata frá Dísu Jakobs og Mads Mouritz. Britney Spears segir að draumafríið sitt sé skíðaferð með sonum sínum og kærasta. Poppsöng- konan viðurkennir í viðtali við blaðið Stylist að hæfileikar hennar í brekkun- um séu takmarkaðir en hún vilji gjarn- an læra. „Það væri yndislegt að fara í frí í snjóinn og drekka heitt súkkulaði með strákunum mínum.“ Spears viðurkennir einnig að hana langi stundum til að fara í dulargervi og fara út að borða óáreitt. Dreymir um að fara á skíði DRAUMAFRÍIÐ Britney Spears vill læra á skíði og drekka heitt súkkulaði með sonum sínum og kærasta. NORDICPHOTOS/GETTY Útgáfufélagið Ókeibæ hélt upp á útgáfu lífsstíls- og megr- unarbókar tískubloggsins Hola Lovers í bókaverlslun Máls og menningar á Laugavegi á fimmtudaginn. Margt var um manninn í boðinu þar sem veitingar voru frumlegar en beikon og vín var á boðstólnum. Höfundur bókarinn er tískubloggarinn h og kallar sig kyndilbera megrunar og fegrunar á Íslandi en í bókinni er að finna ýmsan fróð- leik um meðal annars kynlíf, barneignir, sambönd og femínisma. BEIKON Í BOÐI BROSMILDAR Þær Gréta Sigríður Einarsdóttir, Þorbjörg Matthíasdóttir og Sunna Guðný Högnadóttir tryggðu sér eintak af bókinni. FLETTU BÓKINNI Esther Þorvaldsdóttir og Hrafnkell Örn Guðjónsson skoðuðu bókina Hola Lovers.OKEIBÆ Hugleikur Dagsson og Ólafía Svansdóttir hjá útgáfufélaginu Ókeibæ(!)kur. TÍSKUBLOGGARINN H Höfundur bókarinnar hélt ræðu fyrir gesti og gangandi. Leikkonan Chloë Sevigny við- urkennir að hún hafi ekki mik- inn áhuga á tísku og leiðist að fara á tísku- sýning- ar. Þ essi ummæli Sevigny koma nokk- uð á óvart þ a r s em leikkonan er þekkt fyrir fatastílinn og er gjarn- an talin ein af helstu tískufyrir- myndum í heimi. „Ég keypti mér Birken- stock inni- skó um dag- inn og það sýnir hversu lítinn áhuga ég hef á tísku,“ segir Sevigny í viðtali við New York Times. Sevigny hlýtur þó að hafa gaman af sínum eigin tísku- sýningum en þrjú ár eru síðan Sevigny hóf að hanna fatnað í samstarfi við fatamerkið Open- ing Ceremony. Fatnaðinum hefur verið vel tekið enda segir Sevigny að flíkurnar séu ætlað- ar öllum konum. Finnst tísku- sýningar leiðinlegar LEIÐIST Chloë Sevigny leiðist að horfa á tískusýningar en hún er gjarnan talin ein helsta tískufyrirmynd í heimi. NORDICPHOTOS/AP
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.