Fréttablaðið - 08.12.2011, Blaðsíða 26

Fréttablaðið - 08.12.2011, Blaðsíða 26
8. desember 2011 FIMMTUDAGUR26 Umsjón: nánar á visir.is Með því að fjárfesta í hlutabréfasjóði nýtir þú þau tækifæri sem verða til með nýskráningum í Kauphöll Íslands og færð betri áhættudreifingu en ef þú myndir kaupa einstök hlutabréf. Hvernig nýti ég tækifærin? Komdu í heimsókn eða fáðu fjárfestingaráðgjöf þér að kostnaðarlausu í síma 440 4900. Þú getur einnig fjárfest í sjóðum okkar í gegnum Netbanka Íslandsbanka. Allar nánari upplýsingar er að finna á www.vib.is Íslandsbanki | Kirkjusandi | 155 Reykjavík | Sími 440 4900 | vib@vib.is | www.vib.is EFNAHAGSMÁL Slitastjórn Lands- bankans hefur greitt út fyrstu hlutagreiðslu til forgangskröfu- hafa bankans. Samtals var greitt út jafnvirði um 432 milljarða króna. Þar af fóru 354 milljarð- ar króna til tryggingasjóða inn- stæðueigenda í Bretlandi og Hollandi, að mestu vegna Icesave- reikninganna. Alls nema kröfur sjóðanna tveggja í bú Landsbank- ans um 1.130 milljörðum króna, eða um 86% af samþykktum for- gangskröfum. Af þeirri upphæð er Tryggingasjóður innstæðueigenda á Íslandi (TIF) í ábyrgð fyrir 674 milljörðum króna, eða um 51% af öllum samþykktum forgangskröf- um, vegna tryggingar á lágmarks- innstæðum upp að 20.887 evrum. Greiðslurnar voru inntar af hendi 2. desember síðastliðinn. Halldór Backman, sem situr í slitastjórn Landsbankans, segir greiðsluna skiptast jafnt niður á alla forgangskröfuhafa. „Þeir sem voru með samþykkt- ar kröfur fengu greiðslurn- ar til sín. Í tilvikum þeirra sem eru með kröfur sem enn er ekki búið að leysa endanlega úr var samsvarandi hlutfall lagt inn á geymslureikninga. Liðlega 31% af forgangskröfum var greitt út í þetta skiptið.“ Alls nema forgangskröfur í bú Landsbankans 1.319 milljörðum króna. Langstærstur hluti þeirra er vegna útgreiðslu trygginga- sjóðs innstæðueigenda í Bretlandi og Hollandi til aðila sem geymdu peninga á innlánsreikningum í Landsbankanum fyrir hrun. Þorri þeirrar upphæðar var geymdur á Icesave-netreikningunum. Upphæðin sem nú var greidd út, 432 milljarðar króna, var í fjór- um mismunandi gjaldmiðlum: 740 milljónir punda, 1.110 millj- ónir evra, 710 milljónir dala og 10 milljarðar króna. Umreiknað í íslenskar krónur er virði útgreiðsl- unnar 432 milljarðar. Samkvæmt upplýsingum frá slitastjórninni er langstærsti hluti upphæðarinnar geymdur í bönkum erlendis, meðal annars í Bretlandi og Noregi. Eignir þrotabús Landsbankans eru nú metnar á 1.353 milljarða króna. Þær eiga því að duga fyrir öllum forgangskröfum auk þess sem almennir kröfuhafar munu fá 34 milljarða króna til að skipta á milli sín. Matið miðast við gengi íslensku krónunnar 22. apríl 2009. Það er gert til að tryggja jafnræði kröfuhafa. Ef miðað er við geng- ið í dag nema eignir búsins 1.285 milljörðum króna og myndu duga fyrir 97% forgangskrafna. Halldór segir það ekki liggja fyrir hvenær næsta greiðsla verði greidd út til kröfuhafa. Það fari eftir því hversu vel gangi að selja eignir og safna í sjóði. „Við greiðum út þegar við teljum það hæfilegt. Nú erum við búin að greiða allt út sem við getum í bili og það er of snemmt að segja til um hvenær næsta greiðsla verður. Það er ekki útilokað að hún verði á næsta ári.“ thordur@frettabladid.is Bretar og Hollendingar fá fyrsta hluta Icesave-skuldar Þrotabú Landsbankans greiddi út 432 milljarða króna til kröfuhafa 2. desember. Þar af fóru 354 milljarðar króna til tryggingasjóða innstæðueigenda í Bretlandi og Hollandi. Óljóst hvenær næsta greiðsla verður. SLITASTJÓRN Halldór Backman segir það ekki vera útilokað að næsta greiðsla verði innt af hendi á árinu 2012. Það fari eftir því hversu vel takist að selja eignir og safna í sjóði. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Helsta seljanlega eign þrotabús Landsbankans er 67% hlutur í bresku matvöruverslanakeðjunni Iceland Foods. Í september síðastliðnum hófst formlegt söluferli á hlut Landsbankans og 10% hlut skilanefndar Glitnis í keðjunni. Breskir fjölmiðlar hafa sagt frá því að 1,3 milljarðar punda, um 240 milljarðar króna, hafi borist í eignarhlutina. Þar hefur einnig verið greint frá því að skilanefnd Landsbankans vilji fá 1,5 milljarða punda, um 280 milljarða króna, fyrir hlutinn. Skilanefndin hefur sagt opinberlega að þrotabúið gæti enn ákveðið að halda eignarhlutnum, berist ekki viðunandi tilboð. Heimildir Fréttablaðsins herma að enn séu nokkrir bjóðendur að skoða kaupin og gert sé ráð fyrir einhverjum endanlegum tilboðum. Stefnt er að því að söluferlinu ljúki í janúar. Söluferli Iceland Foods lýkur í janúar VIÐSKIPTI Velta á fasteignamark- aðinum á höfuðborgarsvæðinu jókst um 30,3% á milli október og nóvember 2011. Á sama tíma- bili fjölgaði kaupsamningum um 20,9%. Þetta kemur fram í nýjum tölum sem Þjóðskrá birti í gær. Alls var fjöldi þinglýstra kaup- samninga um fasteignir 475 í nóvember og heildarvelta nam 14,6 milljörðum króna. Meðal- virði hvers kaupsamnings var því 30,8 milljónir króna. Mestu við- skiptin voru með eignir í fjölbýli, fyrir 9,5 milljarða króna. Við- skipti með eignir í sérbýli námu 4,3 milljörðum króna og viðskipti með aðrar eignir námu 800 milljónum króna. - þsj Fasteignamarkaður: Velta jókst um tæpan þriðjung FASTEIGNIR Alls var 475 kaupsamn- ingum þinglýst í nóvember. VIÐSKIPTI Matsfyrirtækið Stand- ard & Poor‘s (S&P) hækkaði gær mat sitt á lánshæfi Trygginga- miðstöðvarinnar (TM). Í tilkynningu sem S&P sendi frá sér af þessu tilefni segir að TM hafi náð eftirtektarverðum árangri við að auka hagkvæmni í rekstri. Þá segist S&P búast við því að rekstur fyrirtækisins muni áfram ganga vel á næstu misserum. Sigurður Viðarsson, forstjóri TM, segir þetta afar ánægjuleg tíðindi. - mþl Horfur TM góðar: S&P hækkar mat sitt á TM 301 PUNKTUR er skuldatryggingaálag ríkissjóðs, sem hefur lækkað um 14 prósent á einni viku.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.