Fréttablaðið - 08.12.2011, Blaðsíða 94

Fréttablaðið - 08.12.2011, Blaðsíða 94
8. desember 2011 FIMMTUDAGUR78 VILDARÁSKRIFT AÐ STÖÐ 2 SPORT INNIHELDUR 512 5100 STOD2.IS VERSLANIR VODAFONE VERSLANIR OG ÞJÓNUSTUVER SÍMANS 800 7000 Á MORGUN KL. 21.20 ÍSLAND KÍNA Íslensku landsliði hefur enn á ný tekist það ótrúlega. Nú keppa Stelpurnar okkar í fyrsta skipti á HM og við fylgjumst með ævintýrinu beint frá Brasilíu. Sjáðu leiki íslenska liðsins í beinni á Stöð 2 Sport. ALLIR LEIKIR Á BESTA TÍMA! 09. des. 21.20 Ísland – Kína 11. des. 16.20 16 liða úrslit (1 leikur í opinni dagskrá)* 12. des. 19.05 Forsetabikar (1 leikur í opinni dagskrá)* 14. des. 16.20 8 liða úrslit 16. des. 19.05 Undanúrslit 18. des. 19.05 Úrslitaleikurinn (í opinni dagskrá) *Ef Ísland er að spila Þorsteinn J. & gestir fyrir og eftir alla leiki Íslands Eftir minn feril verð ég ekki með nein réttindi. Ef mig langar til dæmis að eignast barn þá fæ ég ekkert fæðingarorlof. RAGNA INGÓLFSDÓTTIR AFREKSÍÞRÓTTAMAÐUR AFREKSÍÞRÓTTIR Ragna Ingólfsdóttir keppir nú að því að tryggja sér þátttökurétt á Ólympíuleikunum í Lundúnum á næsta ári. Til þess þarf hún að keppa víða erlendis á sterkum mótum en þegar hún er hér heima æfir hún tvisvar á dag. Ragna er 28 ára gömul og hefur í raun verið atvinnumaður í sinni íþrótt í tæpan áratug. En hún rétt skrimtir, að eigin sögn. „Ég fæ ekki neinn pening til þess að lifa á,“ sagði Ragna þegar Fréttablaðið ræddi við hana í gær. „Allir styrkir sem ég fæ fara aðeins í útlagðan kostnað og þá helst fyrir keppnisferðalögum. Ég verð að skila inn kvittunum til að fá peninginn greiddan út.“ Sama upphæð 2002 og 2011 Ragna fær B-styrk úr afreks- mannasjóði ÍSÍ, en hann er 80 þúsund krónur á mánuði. „Sú upp- hæð er sú sama og ég var að fá árið 2002. Það gefur augaleið að ég gat notað þann pening betur þá en í dag,“ segir Ragna, sem fær þó aldrei peninginn til að lifa sínu daglegu lífi. „Sá peningur er aðeins fyrir útlögðum kostnaði vegna keppnisferðalaga.“ Ragna hefur því verið dugleg að koma sér á framfæri og leitað til fyrirtækja til að sækja sér styrki. „Svörin sem ég fæ þessa dagana eru nánast öll þau sömu – það eru allir að skera niður og geta lítið styrkt mann.“ Það sem hún fær þó fyrst og fremst frá fyrirtækjum er þjón- usta og varningur – máltíðir, næringarefni, íþróttavarningur, líkamsræktarkort og svo fram- vegis. „Ég fæ því engan pening til að kaupa mér mat yfir daginn eða bensín á bílinn. Ég á í raun ekki neitt og skulda bara,“ sagði hún, en Ragna tók sér námslán á meðan hún var í háskólanámi, á sama tíma og hún undirbjó sig fyrir Ólympíu- leikana í Peking árið 2008. Fengi ekki fæðingarorlof „Eftir minn feril verð ég ekki með nein réttindi. Ef mig langar til dæmis að eignast barn fæ ég ekkert fæðingarorlof,“ segir hún. „Ég hef aldrei getað verið í vinnu eins og allir aðrir í kringum mig. Það eina sem ég hef gert til að afla mér tekna er að taka að mér kennslu í einkatíma eða þjálfa á milli æfinga. Þess fyrir utan er ég mjög oft í keppnisferðum.“ Ragna hefur líka reynt að selja ýmsan varning til að verða sér úti um pening, til að mynda í gegnum Facebook. Hún skrifaði þar pist- il fyrr í vikunni þar sem hún lýsti gremju sinni yfir því hversu illa henni gengi að láta enda ná saman. „Fólk virðist ekki vilja kaupa vörur af mér þegar þær eru aðeins ódýrari annars staðar. Þá fékk ég nóg.“ Ragna segist ekki vita um neina aðra á heimslistanum í einliðaleik í badminton kvenna sem þurfi að glíma við þessi vandamál í svo miklum mæli. Keppinautarnir á launum „Þessar stelpur sem ég hef verið að keppa við úti eru á launum frá hinu opinbera sem eru á við atvinnuleysisbætur. Þær búa í Ólympíuþorpum þar sem þær þurfa ekki að leggja út fyrir hús- næði og mat. Þær fá þjálfun og meðhöndlun hjá sjúkraþjálfurum sem fara líka með þeim í keppnis- ferðalög. Þær þurfa ekki að bóka flugferðir og hótelgistingu, sem ég þarf að eyða miklum tíma í sjálf,“ segir Ragna. Ég er mitt eigið fyrirtæki „Það má því segja að ég sé að reka mitt eigið fyrirtæki og það er í ótrúlega mörg horn að líta svo að þetta gangi allt upp. En þetta er eitthvað sem ég ætti ekki að vera að gera – ég ætti bara að hafa áhyggjur af því að æfa og keppa.“ Hún segist, þrátt fyrir allt, ekki sjá eftir þessum árum. „Það er draumur flestra íþróttamanna að keppa á Ólympíuleikum og ég er mjög ánægð með að hafa fengið að upplifa það. En ég veit ekki hvað ég mun gera eftir næstu Ólympíu- leika enda er staða mín ekki góð. Þegar íþróttaferlinum lýkur á ég ekkert – ekki íbúð, bíl eða neinar eignir yfir höfuð. Það er ómetan- legt að keppa á Ólympíuleikum en ég get vel séð fyrir mér að efni- legir íþróttakrakkar muni frek- ar enda á vinnumarkaðnum en að feta þessa slóð. Ísland er að drag- ast langt aftur úr í þessum efnum og þarf að bæta úr því ef ekki á illa að fara.“ eirikur@frettabladid.is Þegar íþróttaferlinum lýkur á ég ekkert Ragna Ingólfsdóttir er í fremstu röð á heimsvísu í sinni íþrótt en á erfitt með að ná endum saman um hver mánaðamót. Opinberir styrkir duga aðeins fyrir útlögðum kostnaði á ferðalögum og hún þarf sjálf að leita annarra leiða til að eiga fyrir lágmarks framfærslu. ERFITT AÐ NÁ ENDUM SAMAN Ragna Ingólfsdóttir hugsar um að ná endum saman á hverjum degi. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.