Morgunblaðið - 06.08.2010, Qupperneq 18

Morgunblaðið - 06.08.2010, Qupperneq 18
18 FréttirVIÐSKIPTI | ATVINNULÍF MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 6. ÁGÚST 2010 Bjarni Ólafsson bjarni@mbl.is Útibú verktakafyrirtækisins ítalska, Impregilo, var nýlega úrskurðað gjaldþrota af héraðsdómi þrátt fyrir að hafa verið afskráð fyrir um ári. Garðar Valdimarsson, lögmaður Impregilo á Íslandi, segir að búið sé að leggja fram beiðni við héraðsdóm um að úrskurðurinn verði dreginn til baka. „Í fyrsta lagi telur Impregilo að gallar hafi verið á auglýsingu stefnunnar, en fleira kemur til,“ seg- ir Garðar. „Impregilo SpA Ísland er ekki sjálfstætt dótturfélag ítalska félagsins, heldur útibú þess. Það er ekki hægt að gera hluta fyrirtækis gjaldþrota, eins og úrskurður hér- aðsdóms virðist gera ráð fyrir.“ Garðar segir að við afskráningu útibúsins hafi allar skuldbindingar þess flust yfir á móðurfélagið á Ítal- íu og því beri að gera hugsanlegar kröfur á það, en ekki afskráð útibú- ið. Deilt um endurgreiðslu Gerðarbeiðandi í málinu var sýslumaðurinn á Eskifirði og snýst það um greiðslu opinberra gjalda. Impregilo hefur í gegnum tíðina tekist á við skattayfirvöld um greiðslu opinberra gjalda og í febr- úar síðastliðnum féll dómur í Hæsta- rétti þar sem íslenska ríkið var sýknað af kröfum Impregilo um end- urgreiðslu á sköttum, sem greiddir höfðu verið af launum erlendra starfsmanna við Kárahnjúkavirkjun. Voru mennirnir hér á landi á vegum tveggja portúgalskra starfsmanna- leiga. Komst Hæstiréttur að þeirri nið- urstöðu að það fé sem Impregilo SpA hefði skilað vegna staðgreiðslu af launum erlendu starfsmannanna væri ekki ofgreitt þar sem íslenska ríkið hefði átt réttmæta kröfu til fjárins. Réttur til endurgreiðslu væri á hendi gjaldandans, en ekki Impregilo, sem hafði milligöngu um að uppfylla skattskyldu annarra. Verður ekki gjald- þrota að hluta til  Útibú Impregilo á Íslandi tekið til gjaldþrotaskipta Morgunblaðið/Steinunn Ásmunds Verkamenn Fjöldi erlendra starfsmanna vann við byggingu Kára- hnjúkavirkjunar á vegum ítalska verktakafyrirtækisins Impregilo. Impregilo » Impregilo var stofnað árið 1959 og er skráð í kauphöllinni í Mílanó á Ítalíu. » Tekjur árið 2009 námu 2.706 milljörðum evra, and- virði um 420.000 milljarða króna. » Hagnaður fyrirtækisins á árinu 2009 nam 77,6 millj- ónum evra. Þau þáttaskil urðu í bílamenn- ingu Bretlands í síðasta mánuði að sala á dísil- knúnum bílum var meiri en á þeim sem nota bensín. Hagsýn- isjónarmið ráða þar væntanlega miklu en dísilknúnir bílar eyða á bilinu 15-20% minna eldsneyti en bensínbílar. Verðmunur á bensíni og dísilolíu er lítill og því hagstæð- ara að keyra dísilbíl. Af nýskráðum bílum í Bretlandi í síðasta mánuði voru 50,6% dísilknúin, 48% bens- ínknúin, og 1,4% knúin af öðrum orkugjöfum. Þessi þróun er talin til marks um það að bílakaupendur horfa til lengri tíma en áður. Dísilbílar eru jafnan dýrari og tekur það nokkurn tíma að vinna mismuninn upp með sparnaði í eldsneytiskaupum. Verð á dísilolíu hefur sveiflast þónokkuð undanfarin ár og þar að auki hafa verið brögð að því þar sem sam- keppnin er mest að bensínstöðvar hækki verð á dísilolíu til að nið- urgreiða bensínverð. Bílasala í Bretlandi hefur dregist saman í heildina, en ríkisstjórnin ákvað að greiða tímabundið fyrir bíla sem skilað var til eyðingar, í því skyni að ýta undir nýskráningar. Bretar kjósa dísilbíla Horfa til lengri tíma en áður Beðið í umferðinni Einar Örn Gíslason einarorn@mbl.is Afurðaverð á sjávarafurðum hefur meira en tvöfaldast í verði, mælt í ís- lenskum krónum, síðustu 5 árin. Heildarhækkunin nemur rúmum 120 prósentum, og kemur að miklu leyti til vegna veikingar krónunnar á tímabilinu. Hækkunin síðustu tólf mánuði hefur verið 5,4 prósent. Þetta kemur fram í skýrslu IFS Ráðgjafar, sem byggist á tölum Hagstofunnar um framleiðsluverð í júní, og tekur til allra afurðaflokka. Verðbreytingin í erlendri mynt er umtalsvert minni á þessu árabili, en verð hefur hækkað um 11,4 prósent, þó sveiflurnar hafi ekki verið sérlega miklar á fyrri helmingi þessa árs. Misjöfn staða eftir afurðum Erfitt efnahagsástand á lykil- mörkuðum fyrir saltfisk, á Spáni og í Portúgal, gerir það að verkum að verð á honum er enn með lægra móti. Verð á fiskmjöli hefur lækkað töluvert á árinu en er ennþá mjög hátt í sögulegu samhengi. Verð þess er nú 1490 bandaríkjadalir á tonnið, en fór hæst í 2000 dali fyrr á þessu ári. Sjófrystar botnfiskafurðir hafa hins vegar hækkað í verði upp á síð- kastið og er verð þeirra nú hagstætt fyrir íslenska framleiðendur. Stór hluti útflutnings Verð útfluttra sjávarafurða á fyrstu sex mánuðum þessa árs var tæplega 107 milljarðar króna (fob), en á sama tíma í fyrra var verðið 95 milljarðar, sem er tæplega 13 pró- senta hækkun. Sjávarafurðir voru næststærsti útflutningsliðurinn í krónum talið, á eftir iðnaðarvörum, á fyrri helmingi ársins. Hlutfall sjáv- arafurða af heildarútflutningi var þannig um 38,5%, en hlutfall iðnað- arvara öllu hærra, eða rösk 57%. Þess má geta að í samantekt Hag- stofunnar falla afurðir á borð við lax, silung og „fiskmeti“ undir aðra flokka en sjávarafurðir. Verðmæti sjávarafurða eykst enn  Sjávarafurðir hafa hækkað í verði um 5,4% síðasta árið, mælt í erlendri mynt Morgunblaðið/Ernir Löndun Útflytjendur sjávarafurða njóta góðs af hækkandi verði. Bæði Evrópski seðlabankinn og Englandsbanki ákváðu í gær að halda stýrivöxtum óbreyttum í sögu- legu lágmarki. Stýrivextir á evru- svæðinu eru 1% en 0,5% í Bretlandi. Evrópski seðlabankinn breytti ekki stýrivöxtum þó svo að ýmis já- kvæð teikn hafi verið á lofti yfir hag- kerfum evrusvæðisins að undan- förnu. Á fundi með blaðamönnum eftir að vaxtaákvörðunin var kynnt lagði Jean-Claude Trichet, seðla- bankastjóri Evrópu, áherslu á að þrátt fyrir að styrkur hagkerfa evru- svæðisins sýndi nú vaxandi styrk væri líklegt að vöxturinn yrði hægari á síðari helmingi ársins. Ennfremur sagði hann horfurnar ennþá ein- kennast af mikilli óvissu. Verðbólga á evrusvæðinu mælist nú um 1,7% sem er vel undir verðbólgumarkmiði bankans en það er undir 2%. Fjár- málamarkaðir endurspegla vænting- ar um að stýrivextir muni ekki hækka á evrusvæðinu fyrr en í fyrsta lagi seint á næsta ári. Þrátt fyrir það hélt evran áfram að styrkjast gagn- vart Bandaríkjadal á gjaldeyris- mörkuðum. Er sú þróun að miklu leyti rakin til vaxandi veikleika í bandaríska hagkerfinu og ótta um að hagvöxtur verði lítill á næstunni og atvinnuleysi haldist hátt. Steinn og sleggja í Bretlandi Þrátt fyrir að verðbólga mælist nú yfir viðmiðunarmörkum Englands- banka ákvað peningamálanefnd hans að hreyfa ekki við stýrivöxtum á fundi sínum í gær. Hins vegar ákvað bankinn að halda áfram bein- um kaupum á ríkisskuldabréfum til þess að auka peningamagn í umferð. Kaupunum er ætlað að styðja við hagvöxt en þeim fylgir sú áhætta að verðbólga geti fest sig í sessi. Verð- bólga í breska hagkerfinu myndi undir venjulegum kringumstæðum kalla á vaxtahækkun og þar af leið- andi má álykta sem svo að Englands- banki hafi meiri áhyggjur af hag- vaxtarhorfum en verðlagsþróun. Þar sem peningastefnunefnd bankans gefur ekki út yfirlýsingar þegar hún ákveður að halda vöxtum óbreyttum horfa menn til útgáfu næstu verð- bólguskýrslu bankans til þess að átta sig á forsendum á bak við vaxta- ákvörðunina. ornarnar@mbl.is Biðleikir í efnahagstafli  Óbreyttir stýrivextir á evrusvæðinu og í Bretlandi Reuters Óljósar horfur Jean-Claude Trichet, seðlabankastjóri Evrópu. ● Grísk stjórnvöld hafa mætt öllum þeim skilyrðum sem sett voru fyrir neyðaraðstoð Evrópusambandsins og Alþjóðagjaldeyrissjóðsins vegna skulda- kreppu gríska ríkisins. Samkvæmt til- kynningu frá ESB, AGS og Evrópska seðlabankanum sem birt var í gær þá munu stjórnvöld í Aþenu því að öllu óbreyttu fá níu milljarða evra greiðslu úr 110 milljarða evra björgunarsjóð sem settur var á laggirnar í maímánuði. Er þetta önnur greiðslan sem stjórnvöld- um berst og er áætlað að hún verði greidd út næstkomandi október. Mun AGS leggja fram 2,5 milljarða evra af heildarupphæðinni og önnur aðildarríki evrusvæðisins munu greiða afganginn. Samkvæmt tilkynningunni hefur fram- vinda efnahagsþróunarinnar í Grikk- landi verið í takt við þær væntingar sem efnahagsaðstoðin byggðist á. Gríska ríkið á réttri leið að mati ESB og AGS ● Enn fjölgar at- vinnulausum í Litháen og mæld- ist atvinnuleysið 15,3% í júlí. Í júní var það 14,90%. Það þýðir að 330.600 manns eru án atvinnu í landinu en alls eru íbúar Litháens 3,3 milljónir talsins. Spá Seðlabanka Litháens hljóðar upp á allt að 17% atvinnuleysi í ár. Þegar Litháen gekk í Evrópusambandið árið 2004 var atvinnuleysið yfir 12% en minnkaði jafnt og þétt árin á eftir. Í des- ember 2007 mældist atvinnuleysið 4,3%. En frá þeim tíma hefur það auk- ist jafnt og þétt eftir því sem Litháen hefur sokkið dýpra í efnahagslægðina. Atvinnuleysi í Litháen Vilnius í Litháen ● Skuldabréfavísitala GAMMA hækkaði um 0,39 prósent í gær og endaði í 194,26 stigum. Verðtryggði hluti vísitöl- unnar hækkaði um 0,54 prósent og sá óverðtryggði lækkaði um 0,01 prósent. Velta á skuldabréfamarkaði nam 10,65 milljörðum. Úrvalsvísitala Kauphallarinnar lækk- aði um 1,04 prósent í gær. Gengi bréfa Össurar lækkaði um 1,75 prósent og bréf Marels lækkuðu um 0,55 prósent. bjarni@mbl.is Verðtryggð bréf hækka ÞETTA HELST…                                          !"# $% " &'( )* '$* ++,-.. +,,-/0 ++1-,2 3/-420 +4-,++ +1-105 ++.-/. +-.2.3 +,+-/0 +51-34 ++,-1+ +,,-5 ++2-3+ 3+-/.5 +4-,14 +1-140 ++.-.5 +-.223 +,+-5, +51-2. 3+/-430, ++,-,4 +,,-41 ++2-55 3+-/41 +4-432 +1-20. ++.-12 +-.,+3 +,3-+3 +52-+2

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.