Morgunblaðið - 18.09.2010, Side 11
Morgunblaðið/RAX
Másandi Blaðamaður horfir einbeittur á handritið og másar fyrir hvolpinn.
DAGLEGT LÍF 11
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 18. SEPTEMBER 2010
„Svona sirka 10:00 – Vakna heima
hjá mömmu og pabba, á Fáskrúðs-
firði og bregð mér í snögga sturtu,
fæ mér léttan morgunmat (helst te
og ristað brauð með einhverju góm-
sætu áleggi). Eftir morgunmatinn
tek ég kassagítarinn úr töskunni og
renni yfir eitt til tvö lög, sem ég á
að kunna en verð að viðurkenna að
ég kann ekki nógu vel.
Um 12:00 – Tek fram sparifötin og
athuga hvort þurfi að renna yfir
skyrtuna með straujárni, þó svo að
það sé afskaplega hæpið. Ég elska
straufríar skyrtur.
Um 13:30 – Legg af stað heim til
Guðbjargar litlu systur, en hún er að
fara að skíra frumburðinn sinn í
dag.
Um 14:00 – Kem ættingjunum gíf-
urlega á óvart með því að syngja lít-
ið lag í skírnarathöfninni.
Um 15:00 – Athöfninni lokið og
komið að því að undirbúa veisluna á
eftir. Að sjálfsögðu hjálpast fjöl-
skyldan að við þetta, annað væri
bara rangt.
16:00 – Skírnarveisla með tilheyr-
andi tertuáti og sætindaneyslu.
Knúsum og kossum varpað á ætt-
ingja sem ég hitti því miður allt of
sjaldan.
17:00 – Sparifötunum og gítarnum
pakkað niður aftur og Daði bróðir
plataður til að keyra mig upp í Eg-
ilsstaði þar sem ég þarf að ná flugi
til Reykjavíkur.
18:10 – Fer í loftið. Þakka mínum
sæla fyrir að hafa einstakan hæfi-
leika til að sofa í flugvél þannig að
ég verð líklega sofnaður innan 5
mínútna.
19:10 – Lending í Reykjavík. Vakna
við að hjól vélarinnar strjúka flug-
brautina. Næ í gítarinn og sparifötin
og held heim. Ég hugsa að ég leggi
mig bara í smá stund í viðbót.
21:00 – Vakna og byrja að taka mig
til fyrir kvöldið. Sturta, tannbursti,
hárgel og rakakrem eru meðal
þeirra fjölmörgu hluta sem verða
mundaðir í þessu flókna en hálf-
sjálfvirka ferli.
22:30 – Haldið í Kópavoginn, nánar
tiltekið á Players þar sem hljóm-
sveitin mín, Góðir Landsmenn, leik-
ur fyrir dansi fram eftir nóttu. Ég
mæti ferskur og endurnærður og
klár í slaginn. Fer yfir minn hluta af
þeim tækjum og tólum sem notuð
verða við flutning eðal 80’s tónlist-
ar í nótt, syng í hálfum hljóðum eitt
eða tvö létt lög til að brýna radd-
böndin.
23:30 – Stíg á svið, gríp mér míkró-
fón í hönd og gef tóninn fyrir næstu
4 tímana eða svo.
00:00 – Formlegum laugardegi lýk-
ur, en fjörið heldur áfram svona
fram undir 5 í fyrramálið.“
Jónas Friðrik Steinsson
Tölvunarfræðingur, sirkusdýr og
söngvari
Hvað ætlar þú að gera í dag?
Góðir landsmenn Jónas ásamt öðrum meðlimum hljómsveitarinnar Góðir
landsmenn. Hann er t.h. fyrir miðju ásamt söngkonunni Katrínu Ósk.
Skírn á Fáskrúðsfirði, ball á Players
Rósa Guðný Þórsdóttir er yfirleikstjóri hjá Sýrlandi og sér um talsetningarnar. Hún segir að talsettar séu um tólf
til fjórtán teiknimyndaþættir hjá þeim á viku auk bíómynda.
„Við erum með tólf leikara á föstum samningi og svo helling af lausráðnum leikurum, börnum og unglingum,“
segir Rósa. „Mesti tíminn hjá mér fer í að finna rétta fólkið í hlutverkin. Það skiptir öllu að finna réttu röddina eða
leikara sem nær persónunni best, en við eltum voða mikið fyrirmyndina, sem er eðlilegt. Stundum ráðum við ekki
sjálf röddunum, þeir sem framleiða þættina eða myndirnar vilja samþykkja raddirnar í aðalhlutverkin og þá þarf
að senda prufur út.
Sýrland heldur talsetningarnámskeið reglulega, á haust- og vorönn, bæði fyrir börn og fullorðna og þar finnum
við oft hæfileikaríka krakka en við notum mestmegnis atvinnuleikara í fullorðinsdeildina,“ segir Rósa.
„Góður talsetjari þarf að geta beitt röddinni á fjölbreyttan hátt, notað mismunandi orku og svo er þetta spurn-
ing um tímasetningar og því geta söngvarar oft komið mjög vel út í talsetningum
því þeir hafa tilfinningu fyrir að koma inn á réttum stað og fyrir lengd á setn-
ingum.
Þetta er mikil þjálfun og það þarf einbeitingu, enda margt sem þarf að gera í
einu; horfa, hlusta, lesa og leika. Leikarar geta undirbúið sig og séð handritið og
mynd áður en talsett er en þjálfaðir leikarar þurfa þess ekki, sérstaklega ef þeir
eru búnir að kynnast karakternum.
Erfiðast er að talsetja leikið efni, þá er erfiðast að láta talið falla sem best að
varahreyfingunum.“
Beðin um ráðleggingar fyrir þá sem vilja talsetja segir Rósa:
„Aðalatriðið er að halda ekki aftur af sér. Það þarf að halda uppi orkunni, tala skýrt
og stundum hratt og beita röddinni vel. Gott er að ímynda sér að einhver sé að hlusta
eins og alltaf þegar talað er í hljóðnema. Það þarf að leika af lífi og sál og svo verður að
hafa gaman af þessu. Þetta er ekki einfalt mál.“
„Þetta er ekki einfalt mál“
TALSETNING
Skoðið yfirhafnir á laxdal.is
HAUSTYFIRHAFNIR
Í ÚRVALI
Laugavegi 63 • S: 551 4422
Diego
Fjörugur
drengur.