Morgunblaðið - 07.10.2010, Blaðsíða 25
MINNINGAR 25
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. OKTÓBER 2010
✝ Fredrick WilliamLindeman fæddist
29. ágúst 1937 í Plain-
view, Texas. Hann lést
í Sun City, Arizona 9.
september 2010.
Foreldrar hans
voru Henry Otto Lin-
deman og Lillie May
Jewell Hammons.
Systkini Fredricks eru
Sally VanGilder, Al-
vena Spain, Homer
Lindeman og Rhoda
Lindeman sem lést ár-
ið 2006.
Fred kvæntist árið 1966 Sonja
Jean Brix og ættleiddu þau tvö börn,
Pamelu og David, en hann fórst í
slysi 14 ára gamall. Fred og Sonja
slitu samvistir.
Fred hóf sambúð með Ingu Árna-
dóttur 1987 í Kaliforniu. Vegna
starfa sinna bjuggu
þau síðan í Seattle og
Virginia. Við starfslok
fluttu þau til Arizona
þar sem Fred lést.
Sonur Ingu og Jans
Eriks Mustad er Arn-
stein Mustad, fæddur í
Osló 28. maí 1961.
Arnstein starfar við
skútusiglingar og við
að ferja báta. Hann
býr í San Francisco.
Fred starfaði hjá
SAS-flugfélaginu í 30
ár eða frá 1957-1987
er hann fór á eftirlaun. Eftir það rak
hann eigið fyrirtæki og starfaði
einnig við fasteignasölu.
Minningarathöfn um Fred fer
fram í Arizona í dag, 7. október
2010. Hann verður jarðsettur í Tex-
as.
Sambýlismaður, sálufélagi og stoð
og stytta Ingu systur minnar hann
Fred er látinn. Harmdauði öllum sem
hann þekktu. Að því komst ég þegar
ég í kjölfar dauða hans fór til systur
minnar í Arizona. Fred kynntist ég
ekkert, fjarlægðin mikil og sam-
bandið stopult. Nútíminn gerir mikl-
ar kröfur og erfitt að brúa miklar
fjarlægðir. Eftir tveggja vikna dvöl í
kjölfar andláts Fred og eftir að hafa
fylgst í síma og netsambandi með
baráttu hans við krabbamein í höfði
og baráttu þeirra beggja fyrir áfram-
haldandi lífsvon veit ég að dauðinn er
svipaður hvar sem við búum.
Eftir að hafa dvalist í Arizona og
kynnst því góða fólki sem Fred og
systir mín hafa verið samvistum við
undanfarin ár er ég rólegri en ég ella
hefði verið. En í sorg er maður oftast
einn. Sorgin yfirgefur mann aldrei,
en vonandi dofnar hún. Systur minni
sendum við fjölskyldan samúðar-
kveðjur. Við hugsum til þín og erum
með þér í huganum.
Guðný Helga Árnadóttir.
Mig langar í örfáum orðum að
kveðja góðan vin minn Fred sem ég
virti og dáðist mikið að. Hann var
sambýlismaður Ingu Árnadóttur,
æskuvinkonu minnar frá Keflavík, og
kveður hún hann nú með miklum
söknuði eftir yfir 20 ára sambúð.
Fred var einstakur maður og hafði
alla þá kosti sem einn mann prýða.
Hann var hjálpsamur, skemmtilegur
og þægilegur í alla staði og vildi allt
fyrir alla gera á sinn ljúfa og rólega
máta.
Fred kynntist ég hér heima á Ís-
landi og svo í fleiri ferðum hans hing-
að og hafði hann góða nærveru og féll
hann mér strax vel í geð.
Inga og Fred bjuggu víða í Banda-
ríkjunum vegna starfa sinna, t.d. í
Los Angeles og Seattle og síðustu
þrjú árin í Arizona þar sem við höfum
átt yndislega tíma saman á þeirra fal-
lega heimili og gert okkur margt til
ánægju og ég notið gestrisni þeirra í
hæsta máta. Einnig ferðuðumst við
saman og nutum stórfenglegrar nátt-
úrufegurðar sem staðurinn hefur upp
á að bjóða.
Á meðan á heimsókn minni til
þeirra í annað skipti til Arizona stóð
greindist Fred með heilaæxli og til að
undirstrika hvað hann var einstakur
hafði hann meiri áhyggjur af því að
eyðileggja frí mitt hjá þeim heldur en
að hafa áhyggjur af sjálfum sér, en
þetta dæmi er einmitt lýsandi fyrir
hans einstaka persónuleika.
Fred gekkst undir þrjár heilaað-
gerðir og lést í kjölfar þeirrar síðustu
eftir mjög erfið og langvinn veikindi.
Innilegustu samúðarkveðjur til
elsku Ingu og aðstandenda.
Hvíl í friði.
Ég fel í forsjá þína,
Guð faðir, sálu mína,
því nú er komin nótt.
Um ljósið lát mig dreyma
og ljúfa engla geyma
öll börnin þín, svo blundi rótt.
(Matthías Jochumsson.)
Anna Þorgrímsdóttir.
Ég hitti Fred fyrst þegar hann og
Inga hófu sambúð á Manhattan
Beach í Kaliforníu en ég kom til
þeirra þegar þau voru nýflutt. Fred
var hæglátur maður, það fór lítið fyr-
ir honum og hann var einstakt ljúf-
menni. Fred var laghentur og jafnan
iðinn við að lagfæra ýmislegt á heim-
ili þeirra.
Þegar Inga og Fred hófu sambúð
var Fred nýhættur hjá SAS eftir 30
ára farsælt starf, en það síðasta sem
hann gerði áður en hann hætti var að
ráða Ingu til starfa. Hann rak einnig
sitt eigið fasteignafyrirtæki.
Fred var vel liðinn af samstafs-
mönnum sínum enda var það einn af
hans eiginleikum að leggja rækt við
slík samskipti. Inga og Fred fluttu til
Seattle árið 1994 en Ingu hafði verið
boðin stöðvarstjórastaða hjá SAS,
Fred hóf þá einnig að vinna við fast-
eignir. Ég man það svo vel þegar þau
fluttu þangað að þá sagði Inga mér að
henni dytti ekki í hug að reyna að
keyra eða rata um borgina því að hún
hefði hann Fred og hann væri sá sem
sæi um að rata. Við Ragnar heimsótt-
um þau til Seattle og ekki brást Fred
því hann var iðinn við að sýna okkur
þessa fallegu borg og helsta um-
hverfi hennar.
Fred kom nokkrum sinnum til Ís-
lands og þegar Inga varð 50 ára
komu þau heim og hélt hann henni
veglega veislu. Þau nutu þess að
vera hér heima, hitta ættingja og
vini og borða íslenskan mat en hann
hafði mikið dálæti á íslenska lamba-
kjötinu og þau Inga héldu oft veislur
heima hjá sér og Fred eldaði þá
gjarnan íslenskt lambalæri fyrir
gesti þeirra.
Árið 2001 tóku þau sig aftur upp
og fluttu til Virginíu en Ingu hafði
boðist sama starf hjá SAS á Wash-
ington-Dulles-flugvelli. Þá var komið
að Ingu að bjóða Fred starf og réð
hún hann í vinnu og talar hún oft um
það hversu mikil stoð hann var henni
á þessum erilsama tíma þegar þau
voru í Virginíu.
Stuttu eftir að þau komu þangað
kom ég í heimsókn og á meðan Inga
var að vinna fórum við Fred í sann-
kallaðan menningartúr til Wash-
ington DC, heimsóttum Smithsoni-
an-safnið og skoðuðum merkar
byggingar og minnismerki í borg-
inni. Fred var einstaklega fróður um
borgina og hvergi var komið að tóm-
um kofunum hjá honum í þeim efn-
um.
Fred var óþreytandi að spyrja um
land og þjóð, hann hafði mikinn
áhuga á íslenskri menningu og kom
það mér verulega á óvart hversu
fróður hann var um íslenska hestinn,
gangtegundir hans og liti.
Árið 2005 ákváðu þau að flytja til
Arizona þar sem þau ætluðu að eyða
ævikvöldinu saman og settust að í
Peoria. Fred og Inga voru góðir vinir
og gerðu margt saman, hjóluðu og
spiluðu tennis. Fred líkaði vel á þess-
um stað og þau eignuðust góða og
trausta vini sem reyndust Fred sér-
staklega vel í hans veikindum. Árið
2007 greindist Fred með krabba-
mein í höfði og í framhaldinu gekkst
hann undir skurðaðgerð. Fred
gekkst undir þriðju skurðaðgerðina
26. júlí sl. og eftir það hrakaði heilsu
hans hratt og hann lést á líknarheim-
ili í Sun City, Arizona að morgni 9.
september 73 ára að aldri.
Elsku Inga mín, við fjölskyldan
vitum að missir þinn er mikill og
biðjum góðan guð að styrkja þig í
sorg þinni.
Guðrún og Ragnar.
Fredrick William
Lindeman
✝
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
MARÍA ÖGMUNDSDÓTTIR,
Holtsgötu 4,
Ytri Njarðvík,
lést mánudaginn 27. september á Landspítalanum
við Hringbraut.
Útförin fer fram frá Ytri Njarðvíkurkirkju föstudaginn
8. október kl. 14.00.
Sæmundur Þ. Einarsson,
Ingigerður Sæmundsdóttir, Bjarni Jóhannsson,
Ögmundur Sæmundsson, Heiða Ingólfsdóttir,
Baldur Sæmundsson, Harpa Kristín Einarsdóttir,
Sigríður Sesselja Sæmundsdóttir, Hleiðar Gíslason,
barnabörn og barnabarnabarn.
✝
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir,
afi og langafi,
ÓLAFUR FEILAN MARINÓSSON
fyrrverandi bryti,
Háaleitisbraut 44,
Reykjavík,
verður jarðsunginn frá Fríkirkjunni í Reykjavík
föstudaginn 8. október kl. 15.00.
Annalísa Jansen,
Anna Margrét Ólafsdóttir, Pétur Gunnarsson,
Sigrún Erla Ólafsdóttir, Ágúst Birgisson,
Guðrún Birna Ólafsdóttir, Eyþór Bjarki Sigurbjörnsson,
Brynjar Marinó Ólafsson, Þórný Þórðardóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Ástkær vinur, faðir, afi og bróðir,
JÓHANNES INGÓLFUR JÓNSSON,
lést föstudaginn 1. október á hjúkrunarheimilinu
Eir, Hlíðarhúsum 7 í Reykjavík.
Hann verður jarðsunginn frá Árbæjarkirkju
mánudaginn 11. október kl. 11.00.
Þeim sem vilja minnast hans er bent á Parkinson-
samtökin.
Ólöf Sigríður Stefánsdóttir,
Ásta Guðrún Jóhannesdóttir,
Jón Kristinn Jóhannesson,
Elísa Rós Natansdóttir,
systkini, vinir og vandamenn.
✝
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og
langamma,
JÓHANNA BJARNFREÐSDÓTTIR,
Boðaþingi 5,
Kópavogi,
lést mánudaginn 4. október.
Útförin fer fram frá Kópavogskirkju föstudaginn
15. október kl. 13.00.
Sigrún Ingólfsdóttir, Einar Gunnar Bollason,
Dóra Hlín Ingólfsdóttir, Erlingur Kristjánsson,
Svanhvít Eygló Ingólfsdóttir, Guðmundur H. Jónsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
JÓHANNA GUÐFINNA JÓNSDÓTTIR,
Brúnalandi 20,
Reykjavík,
sem lést föstudaginn 1. október, verður jarðsungin
frá Bústaðakirkju þriðjudaginn 12. október
kl. 13.00.
Þeir sem vilja minnast hennar láti Krabbameinsfélag Íslands njóta þess.
Sverrir Helgason,
Óskar Sverrisson, Eiríksína Kr. Hafsteinsdóttir,
Jón Sverrir Sverrisson, Margrét Steindórsdóttir,
Helgi Sverrisson, Sigurborg Kristín Stefánsdóttir,
Sigríður Ragna Sverrisdóttir, Sigurbjörn Jón Gunnarsson
og barnabörn.
✝
Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir og afi,
ÁSGEIR JÓNSSON
fyrrv. skókaupmaður,
Garðatorgi 17,
Garðabæ,
lést miðvikudaginn 29. september.
Útförin fer fram frá Vídalínskirkju, Garðabæ,
föstudaginn 8. október kl. 13.00.
Þeim sem vilja minnast hans er bent á Minningar-
kort Sólvangs, www.solvangur.is, sími 590 6500.
Guðríður Jónsdóttir,
Erling Ásgeirsson, Erla Þorláksdóttir,
Anna Ásgeirsdóttir,
Ingibjörg E. Ásgeirsdóttir, Hallgrímur Jónasson,
Ásgeir Ásgeirsson, Unnur Steinsson,
afabörn og langafabörn.
✝
Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir, amma
og langamma,
SIGURLAUG FJÓLA KRISTMANNSDÓTTIR
fyrrum húsfreyja,
Hvammi í Vatnsdal,
Þorragötu 5,
Reykjavík,
sem lést á gjörgæsludeild Landspítalans í Fossvogi
miðvikudaginn 29. september, verður jarðsungin frá
Fossvogskirkju mánudaginn 11. október kl. 13.00.
Hallgrímur Guðjónsson,
Hafsteinn Gunnarsson, Ásta Jónsdóttir,
Ingibjörg Rósa Hallgrímsdóttir, Gísli Ragnar Gíslason,
Þuríður Hallgrímsdóttir, Finnbogi Kjartansson,
Margrét Hallgrímsdóttir, Gunnar Þ. Jónsson,
barnabörn og barnabarnabörn.