Morgunblaðið - 23.12.2010, Blaðsíða 40
40 DAGBÓK
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. DESEMBER 2010
Sudoku
Frumstig
8 4 1 5
8
9 3 1 2
5
2 3 6 5
6 1 9
4
3 4 8
6 2 4 9 5
3 8 1 4
1 3
6 8 4 3 5
2 7
1 6 5
7 1 8
2 3
2 5 7 8
1 5 7
1 3 6
7 8 2 1
8 6
5 4
3 9 5 6
2 6 8 5 3
7
9
4 5 8 9 6 1 3 2 7
7 1 6 3 4 2 8 9 5
9 3 2 5 8 7 1 6 4
3 2 9 4 7 5 6 8 1
5 6 1 2 3 8 4 7 9
8 4 7 1 9 6 2 5 3
2 7 3 8 5 4 9 1 6
6 8 4 7 1 9 5 3 2
1 9 5 6 2 3 7 4 8
9 4 5 1 2 8 6 3 7
1 7 2 6 3 9 5 4 8
3 6 8 7 5 4 9 1 2
5 2 7 3 8 6 1 9 4
8 3 4 9 7 1 2 6 5
6 1 9 2 4 5 8 7 3
4 5 6 8 1 3 7 2 9
2 9 3 5 6 7 4 8 1
7 8 1 4 9 2 3 5 6
5 6 8 3 2 1 9 7 4
7 2 3 9 4 6 8 5 1
4 1 9 7 5 8 6 2 3
8 7 2 1 9 3 4 6 5
6 3 1 4 8 5 2 9 7
9 5 4 6 7 2 3 1 8
3 9 7 5 6 4 1 8 2
1 8 5 2 3 9 7 4 6
2 4 6 8 1 7 5 3 9
Efsta stigMiðstig Lausn síðustu sudoku
Þrautin felst í því að fylla
út í reitina þannig að í
hverjum 3x3-reit birtist
tölurnar 1-9. Það verður
að gerast þannig að hver
níu reita lína bæði lárétt
og lóðrétt birti einnig töl-
urnar 1-9 og aldrei má tví-
taka neina tölu í röðinni.
Í dag er fimmtudagur 23. desember,
357. dagur ársins 2010
Orð dagsins: Þú hefur breytt eftir
mér í kenningu, hegðun, ásetningi,
trú, langlyndi, kærleika, þolgæði.
(Tím. 3, 10.)
Víkverji hefur verið að velta þvífyrir sér að nú væri kominn
tími til að hann hæfi fyrirtækja-
rekstur. Ástæðan fyrir því að þetta
hvarflaði að Víkverja var sú að hann
hleraði að fyrir kreppu sakir yrðu
fleiri fyrirtæki til sölu en ella. Vík-
verji hefur aldrei verið innmúraður í
íslenskt viðskiptalíf, en þrotlausar
yfirlýsingar um gagnsæi gerðu að
verkum að hann óttaðist ekki að það
yrði til trafala.
x x x
Því verður Víkverji alltaf jafn-hissa þegar hann fréttir af því
að nú sé sala enn eins fyrirtækisins
(rétt að taka fram að hér er ekki átt
við fyrirtækið N1) komin á lokastig
án þess að hann hafi heyrt neitt um
að hún væri á millistigi, hvað þá
byrjunarstigi. Þannig hefur Víkverji
misst af hverju fyrirtækinu af öðru
vegna þess að hann vissi ekki að til
stæði að selja þau, nú síðast þegar
hann heyrði að brátt yrði gengið frá
sölu á Heklu, gömlu og rótgrónu fyr-
irtæki, sem meðal annars selur al-
þýðubíla af gerðinni Volkswagen.
x x x
Víkverji reynir ætíð að líta ábjörtu hliðarnar og þess vegna
ætlar hann ekki að agnúast út af
þessu máli, þótt viðskiptalífið fari
vissulega á mis við krafta hans. Það
hvarflar hins vegar að Víkverja að
lifðum við ekki á tímum gagnsæis
myndi sennilega aldrei spyrjast að
öll þessi fyrirtæki, sem nú eru að
skipta um eigendur, hefðu yfir höfuð
verið seld.
x x x
Ef Víkverji væri önuglyndur aðeðlisfari myndi hann ef til vill
segja: Vont er þeirra ógagnsæi, en
verra þeirra gagnsæi.
x x x
Víkverji er hins vegar afskaplegaljúfur í lund, bjartsýnn og telur
að allt muni að lokum fara á allra-
besta veg. Því þakkar Víkverji
gagnsæið, þótt það hafi reynst hon-
um gagnslaust og fjárfestingarhug-
sjónir hans séu ein rjúkandi rúst.
víkverji@mbl.is
Víkverjiskrifar
Krossgáta
Lárétt | 1 íþróttagrein, 8
sakar um, 9 eimurinn, 10
óhreinka, 11 blóms, 13
beiskt bragð, 15 hestur,
18 mannvera, 21 hreinn,
22 aflaga, 23 klampinn,
24 laus við fals.
Lóðrétt | 2 útskagi, 3 bjálf-
ar, 4 grenjar, 5 refum, 6
andmæli, 7 venda, 12 stings,
14 bókstafur, 15 ástand, 16
heiðursmerki, 17 yfirhöfn,
18 kuldastraum, 19 matn-
um, 20 beitu.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt: 1 áleit, 4 bátur, 7 ærnar, 8 lítri, 9 fíl, 11 tóra, 13 kann, 14
sækir, 15 serk, 17 álka, 20 frá, 22 mylur, 23 sátum, 24 apann, 25
ræður.
Lóðrétt: 1 ágætt, 2 elnar, 3 torf, 4 ball, 5 totta, 6 reisn, 10 ískur,
12 ask, 13 krá, 15 summa, 16 rulla, 18 látið, 19 aumur, 20 Frón,
21 ásar.
6
8
11
15
22
1
24
12
3
10
17
21
4
9
13
18
23
14
5
19
7
20
2
16
Skák
Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is
1. e4 e6 2. d4 d5 3. Rc3 Bb4 4. e5
Re7 5. a3 Bxc3+ 6. bxc3 b6 7. Dg4
Rg6 8. a4 Ba6 9. Bxa6 Rxa6 10. h4
h5 11. De2 Rb8 12. Bg5 Dd7 13. a5
Rc6 14. axb6 cxb6 15. Df3 Rge7 16.
Re2 0-0-0 17. Rf4 g6 18. 0-0 Kb7 19.
Hfb1 Hb8 20. c4 Rxd4 21. Da3 Rec6
22. c3 Rf5 23. cxd5 exd5 24. Hb5
Ka8 25. Rxd5 Ra5 26. Db4 Dc6
Staðan kom upp í opnum flokki
Ólympíumótsins í skák sem lauk sl.
október í Khanty-Mansiysk í Rúss-
landi. Bandaríski stórmeistarinn
Gata Kamsky (2.705) hafði hvítt
gegn kollega sínum Ivan Fernandez
Morovic (2.580) frá Chile. 27.
Rxb6+! Hxb6 28. Dxa5 Hb7 29.
Hxb7 Dxb7 30. Bd8! Kb8 31. e6!
He8 32. Bc7+! Kc8 33. exf7 Hf8 34.
He1 Hxf7 35. He8+ Kd7 36. Hd8+
og svartur gafst upp.
Hvítur á leik.
Brids
Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is
Rétt og rangt. N-Enginn.
Norður
♠10432
♥Á7
♦ÁD
♣DG1094
Vestur Austur
♠G6 ♠ÁD987
♥9842 ♥DG10
♦7632 ♦10984
♣K63 ♣5
Suður
♠K5
♥K653
♦KG5
♣Á872
Suður spilar 3G.
Er sannleikurinn afstæður? Óneit-
anlega sjást þess stundum merki við
spilaborðið. Það sem er venjulega rétt
reynist vera kolrangt. Norður vekur á
Standard-laufi og austur stingur inn
spaðasögn. Suður doblar fyrst nei-
kvætt, en stekkur síðan í 3G við 2♣
makkers. Útspilið er ♠G og austur kall-
ar.
Sagnhafi verður að brjóta öll venju-
leg bridslögmál til að vinna þetta spil –
með því að afþakka fyrsta slaginn. Ef
hann drepur á ♠K getur vestur nýtt
innkomu sína á ♣K til að spila í gegnum
♠10xx í borði. Vörnin fær þá fjóra spa-
ðaslagi. Þetta fyrirbyggir suður með
því að dúkka ♠G. Austur fær vissulega
tvo slagi á spaða í viðbót, en það er allt í
lagi.
Óskar ugla: „Sérkennilegt spil. Vinn-
ingsleiðin felst í því að spila af sér slag.“
23. desember 1878
Í Ísafold birtist auglýsing sem
samkvæmt Sögu daganna
markar upphaf jólaauglýs-
ingaflóðsins. Hún var svo-
hljóðandi: „Jóla- og nýárs-
gjafir. Ýmsir munir mátulegir
í jóla- og nýársgjafir eru til
sölu við niðursettu verði í
Siemsens verslun.“
23. desember 1906
Samkomuhúsið við Hafn-
arstræti á Akureyri var vígt. Í
því er samkomusalur sem
rúmaði þriðjung bæjarbúa og
var lengi sá stærsti á landinu.
Leikfélag Akureyrar hefur
haft þar aðsetur frá stofnun,
árið 1917.
23. desember 1956
Morgunn lífsins, þýsk kvik-
mynd með íslenskum skýring-
artextum, var frumsýnd í
Gamla bíói. Myndin var byggð
á skáldsögu Kristmanns Guð-
mundssonar.
23. desember 1968
Til átaka kom í miðborg
Reykjavíkur milli lögreglu og
fólks sem mótmælti þátttöku
Bandaríkjamanna í Víetnam-
stríðinu. „Svívirðileg árás lög-
reglunnar á almenning,“ sagði
Þjóðviljinn. Átök þessi hafa
verið nefnd Þorláks-
messuslagurinn.
23. desember 1980
Blysför var farin frá Hlemmi
og niður Laugaveg í Reykja-
vík til að mótmæla vígbún-
aðarkapphlaupinu. Slíkar frið-
argöngur hafa síðan verið ár
hvert á Þorláksmessu.
Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson.
Þetta gerðist …
Skúli Hansen fagnar sextugsafmæli sínu í dag og
ætlar af því tilefni út að borða með konu sinni og
börnum. Það verður þó engin skata á matseðlinum
segir Skúli. „Hún er nú ekki fyrir það blessunin en
ég reikna með að við feðganir förum í skötu í há-
deginu.“ Annars segir hann ekki standa til að
halda sérstaklega upp á daginn, það verði gert við
betra tækifæri. Afmælisdagurinn vilji hálfpartinn
gleymast og renna saman við jólahátíðina.
Skúli er matreiðslumeistari og var hann áður
meðal annars yfirmatreiðslumaður á Hótel Holti
og Arnarhóli þar sem nú er Hótel 101. Þá var hann
síðar yfirmatreiðslumaður og veitingamaður á Skólabrú. Á þeim ár-
um stóð Skúli oft fyrir skötuveislum á Þorláksmessu en hann segir
þær vinsælli nú en þá. „Þá voru þetta helst eldri menn. Nú eru yngri
menn farnir að koma inn.“
Einn afmælisdagur er Skúla öðrum eftirminnilegri, en á þessum
degi fyrir tíu árum kvæntist hann eiginkonu sinni, Sigríði Stefáns-
dóttur, og fagna því þau einnig brúðkaupsafmæli sínu í dag. „Það var
bara boðið í afmæli en ekkert látið sérstaklega vita að það væri brúð-
kaup í gangi. Þetta var bara svona óvænt,“ segir Skúli. kjartan@mbl.is
Skúli Hansen er sextugur í dag
Gifti sig á afmælisdaginn
Nýirborgarar
Ísafjörður Auður Diljá
fæddist 5. september kl.
11.06. Hún vó 3.032 g
og var 50 cm löng. For-
eldrar hennar eru
Berglind Ósk Aðal-
steinsdóttir og Hörður
Ingi Kristinsson.
Flóðogfjara
23. desember Fjara m Flóð m Fjara m Flóð m Fjara m Sólaruppr. Sólsetur
Reykjavík 1.19 0,4 7.31 4,3 13.52 0,4 19.56 3,8 11.23 15.31
Ísafjörður 3.23 0,3 9.25 2,4 16.01 0,3 21.48 2,0 12.10 14.54
Siglufjörður 5.33 0,3 11.46 1,4 18.11 0,1 11.55 14.35
Djúpivogur 4.46 2,3 11.02 0,4 16.56 2,0 23.06 0,2 11.02 14.51
Sjávarhæð miðast við meðalstórstraumsfjöru Sjómælingar Íslands/Morgunblaðið
(21. mars - 19. apríl)
Hrútur Eina rétta leiðin til að ráðast í stór-
virki er að ganga til verksins með jákvæðu
hugarfari. Einhver þarf á ráðleggingum þín-
um að halda.
(20. apríl - 20. maí)
Naut Kannski leynist eitthvað í geymslunni
sem þú hefur engin not fyrir lengur. Taktu til
og hentu, það er svo gott fyrir sálina.
(21. maí - 20. júní)
Tvíburar Undanfarið hefurðu sett velferð
einhvers annars ofar þinni eigin. Haltu þínu
striki ótrauð/ur hvað sem hver segir.
(21. júní - 22. júlí)
Krabbi Þú ert ánægð/ur og full/ur af krafti.
Með því að vasast í of mörgu sjálfur stefnir
þú árangrinum í hættu.
(23. júlí - 22. ágúst)
Ljón Þú gætir þurft að ganga gegn vilja
hóps sem þú átt samskipti við. Ef einhver
svo mikið sem gerir þér einn greiða skaltu
ekki vera að hugsa um að borga hann til
baka.
(23. ágúst - 22. sept.)
Meyja Loksins opinberast þér leyndardómur,
sem þú hefur velt vöngum lengi yfir. Aðrir
hafa tekið ákvarðanir sem þú verður að
sætta þig við.
(23. sept. - 22. okt.)
Vog Vinalegt eðli þitt kemur að góðum not-
um í dag. Vertu ekkert að hafa áhyggjur af
jólunum því þau líða hjá í rólegheitunum.
(23. okt. - 21. nóv.)
Sporðdreki Það virðast gott ráð að drekkja
áhyggjunum í einhverjum framkvæmdum.
Gerðu ráð fyrir að fá lán, gjafir eða kaup-
auka, hugsanlega í gegnum maka þinn.
(22. nóv. - 21. des.)
Bogmaður Það er eins og stjörnurnar hafi
útbúið fyrir þig sérstakan vandamálapakka
sem þú auðveldlega getur opnað þegar þér
hentar. Svo geturðu líka sleppt því ef þú vilt.
(22. des. - 19. janúar)
Steingeit Það getur verið varasamt að fara
um ókunnar slóðir án nokkurs undirbúnings.
Kafaðu undir yfirborð hlutanna til þess að fá
fram hvað þeir þýða í raun og veru.
(20. jan. - 18. febr.)
Vatnsberi Það er farsælla að velta hlutunum
fyrir sér en að bregðast strax við. Hafðu
þetta í huga og taktu mark á gagnrýni.
(19. feb. - 20. mars)
Fiskar Taktu meira tillit til annarra og gerðu
þér grein fyrir að þarfir manna eru mismun-
andi. Þú lumar á hæfileikum sem þú ættir að
sýna öðrum.
Stjörnuspá