Ný saga - 01.01.1987, Page 7

Ný saga - 01.01.1987, Page 7
ÍRSKUR SVIKARI RÆÐISMAÐUR Á ÍSLANDI Castlereagh lávarður. írlands- málaráðherra 1798-1801 og utanrlkisráðherra Breta 1812- 22. Reynolds var skjólstæð- ingur hans og það var Castle- reagh sem vildi endilega senda hann til íslands. að gylla boðið, t.d. var lofað að útvega sonum hans tveim- ur stöður, ef hann vildi taka þetta embætti að sér. Af þessu má ljóst vera, að Castlereagh var talsvert í mun að Reynolds yrði ræðis- maður á íslandi. En hvers vegna? Svo virðist, að Reyn- olds sjálfum hafi í fyrstu fund- ist torskilið hvers vegna utan- ríkisráðherrann væri að bjóða honum þessa „furðu- legu stöðu'1.4 Að sögn sonar hans kom þó skjótt í ljós, að Castleragh ætti nú í vök að verjast á hinum pólitíska vett- vangi, og hugsanlegt væri að atburðirnir frá 1798 mundu koma til umræðu á ný og þar- með nafn Reynolds. Því teldi Castlereagh heppilegast að „fjarlægja hann úr konungs- ríkinu''. Hin pólitíska staða var í stuttu máli eftirfarandi: í kjölfar Napoleonsstyrjalda fylgdi efnahagskreppa í Bret- landi og var þar ærið róstu- samt. Uppþot og fjöldafundir róttækra manna ógnuðu stjórnvöldum.5 Stjórnvöld reyndu eftir megni að bæla niður óróann með því að draga forystumennina fyrir lög og dóm. 1 einum af þessum réttarhöldum yfir meintum uppreisnarmönnum, sem haldin voru seint á árinu 1816, var Reynolds útnefndur í kviðdóminn. Réttarhöldin vöktu mikla athygli og var það vatn á myllu stjórnar- andstöðunnar í Englandi þegar það uppgötvaðist að hér væri á ferð sá sami Reyn- olds og hafði ljóstrað upp um félaga sína í írsku uppreisn- inni árið 1798. Castleregh lá- varður, fyrir hönd stjórnar- innar, væri hér bersýnilega að setja alræmdan svikara og skjólstæðing sinn í kviðdóm- inn til að tryggja dómsúr- skurðinn sér í hag. Hið póli- tíska ástand var því kvíðvæn- legt, ekki aðeins fyrir Castlereagh, en einnig fyrir Reynolds, sem gæti hæglega misst lífeyri sinn og aðstöðu í kjölfar falls hins fyrrnefnda. Það virðist því hafa verið af þessum ástæðum, að Reyn- olds sá sér þann kost vænstan að þiggja ræðismannsem- bættið á íslandi. í lok mars 1817 fékk hann síðan erindis- bréf sitt.6 Honum virðist hins vegar ekki hafa legið neitt á að halda norður á bóginn. Um sumarið 1817, bæði í júní og júlí, var Reynolds til umræðu í breska þinginu.7 Þar mátti heyra stjórnarand- stöðuna, fræga Whigga á borð við Henry Brougham og Sir Francis Burdeít, lýsa hinum nýskipaða ræðismanni sem hinum versta glæpamanni og morðhundi. Castlereagh lá- varður var nú ekki aðeins utanríkisráðherra Breta heldur og einnig leiðtogi neðri deildar þingsins, og sem slíkur helsti talsmaður stjórnarinnar þar. 1 júní var Vlnarfundurinn 1815. Þar var fram- tíðarskipan Evrópu rædd. Bæði Castlereagh og Rosenkrantz voru fulltrúar þar. Castlereagh spurður að því, hvort hann væri í raun búinn að gera þennan alræmda njósnara að ræðismanni og í umræðunum í júlí í þinginu var Reynolds ásakaður um að hafa myrt tengdamóður sína. Castlereagh varði hann ötul- lega. Það fór á ekki á milli mála að hér var á ferðinni skjólstæðingur stjórnar- innar. Var það greinilega álit stjórnarandstöðunnar, að það væri til háborinnar skammar að gera þennan glæpamann að ræðismanni hans hátignar Bretakonungs. Eftirtektarvert er, að við umræðurnar í þinginu gekk stjórnarandstaðan út frá því, að Reynolds hafi verið skipað- ur ræðismaður á Möltu. Ekki er ljóst hvernig á þeim mis- skilningi stóð, en Castlereagh leiðrétti hann ekki, og er lík- legasta skýringin sú, að stjórnin vildi halda áfanga- stað Reynolds leyndum. Ekki bætti úr skák að um þetta leyti kom út í London bæklingurinn The Political History of T. Reynolds Esq, sem var síður en svo til þess fallinn að fegra kappann. Allt þetta umtal varð til þess að Reynolds fór að bæra á sér og lagði loks af stað til Danmerk- ur í lok júlí 1817.8 Af ofangreindu er ljóst, að veigamikil ástæða fyrir skip- 5
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Ný saga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ný saga
https://timarit.is/publication/806

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.