Ný saga - 01.01.1987, Side 43

Ný saga - 01.01.1987, Side 43
,,EN ÞEGAR DAUIÐINN KEMUR SVO SEM EIN VOLDUG HETJA ljósdýrð og iðjuleysi handan við gröf og dauða." Þrátt fyrir sífellt návígi við dauðann var það auðvitað líf- ið sem gagntók fólk, vonin um langa og farsæla ævi. Senni- lega hafði lífsháskinn í för með sér að lífsþorsti fólks var meiri en við gerum oft ráð fyr- ir. AÐ HUGSA UM DAUÐANN Það væri örugglega verðugt verkefni að kanna til hlítar viðhorf íslendinga nú á dög- um til dauðans. Hvar þekkist það annars staðar að stærsta blað landsins birti daglega fjölda minningargreina um Pétur og Pál? Annað blað hef- ur gefið út sérstakt fylgirit sem eingöngu er lagt undir slíkar greinar. Breti nokkur sem kunnugur er hér á landi hafði eitt sinn á orði að réttast væri að kalla það rit „Death Magazine". I ríkisútvaprinu gefst daglega kostur á að hlýða á „Dánarfregnir og jarðarfarir". Ætli slíkur dagskrárliður sé ekki eins- dæmi í henni veröld? Gæti þetta bent til þess að viðhorf íslendinga til dauðans væru frábrugðin því sem almennt gerist meðal Vesturlanda- búa? Eða er hér einungis um að ræða einn af fylgifikskum fámennis þjóðarinnar? Og hvernig eigum við að túlka útbreiðslu spíritismans sem óvíða hefur verið meiri en hérlendis? Það á jafnt við um fortíð og nútíð að afstaðan til dauðans speglar lífssýn fólks á hverj- um tíma. Þróun sagnfræði- rannsókna síðustu ár bendir til þess að menn leitist æ meir við að túlka viðhorf til dauð- ans sem lykil að heimsskoðun genginna kynslóða. Hvað Is- land varðar þá bíða heimild- irnar í hrönnum eftir því að vera kallaðar til vitnis. Lík- ræður, erfikvæði og minn- ingargreinar eru gjöfular heimildir um hugarfar fólks og geta orðið til þess að bregða nýju og óvæntu ljósi á lífsviðhorf þeirra sem arf- leiddu okkur að þessu landi. í þessari grein hefur verið lögð áhersla á hversu fyrir- ferðamikill og sínálægur dauðinn var í lífi og hugsun fólks fyrr á tíð. Við sem nú lif- um skynjum fæst nálægð dauðans á sama hátt. En er ekki tilhugsunin um dauðann ætíð ásækin fyrir þann sem á annað borð hefur fyrir því að íhuga lífið og tilveruna? Öll skáld sem rísa undir nafni eru sífellt að takast á við dauðann í verkum sínum. Að hugsa um dauðann er að hugsa um lífið. Það liggur fyrir öllum að standa augliti til auglitis við „eina volduga hetju" sem engu hlífir eins og segir í Vídalínspostillu og vitnað var til í greinarheiti.48 Tilvísanir: l.Steinunn Sigurðardóttir: Tímaþjófurinn, Rvk. 1986, 145. 2.Philippe Ariés: L'homme devant la mort, París 1977. Bókin er m.a. til í enskri og þýskri þýðingu og studdist greinarhöfundur við þá síðastnefndu sem ber heitið Geschichte des Todes og kom upphaflega út 1980. Ef lesendur vildu kynna sér efni greinarinnar nánar þá skulu nefnd eftirtalin rit: John McManners: Death and the Enlightent. Changing Attitudes to Death among Christians and Unbelievers in Eightheenth- century France, Oxford, New York 1981. Mirrors of Mortality Studies ion the Social History of Death. Joa- chim Whaley ritstýrði. Lon- don 1981. Bjarne Hodnes: Á leve med döden. Folkelige forestillinger om döden og de döde, Oslo 1980. Troels Lund: Dagligt Liv i Norden i det 16de Aarhundrede. 14. Bind, Livsafslutning. Kh. 1901. 3. Biskupinn í Görðum. Sendi- bréf 1810-1853, Finnur Sigmundsson bjó til prent- unar. íslenzk sendibréf II. Rv. 1959, 302. 4. Loftur Guttormsson: Bernska, ungdómur og upp- eldi á einveldisöld. Tilraun til félagslegrar og lýðfrœði- legrar greiningar, Rv. 1983. Ritsafn Sagnfræðistofnun- ar 10, 146-147. 5. Lúðvík Kristjánsson: Vest- lendingar 1, Rv. 1953, 85. ó.Hannes Finnsson: „Um Barna-Dauda á íslandi," Rit þess íslenzka Lœrdóms-lista Félags 5 (1785), 118. 7. Þjóðólfur 10. apríl 1852. 8. fslenzkar þjóðsögurogævin- týri. Safnað hefur Jón Árna- son. Árni Böðvarsson og Bjarni Vilhjálmsson önnuð- ust útgáfuna, I. bindi, Rv. 1954. 406. O.Þjóðóljur, 27.1.1853 og 5.2.1854. 10. Þjóðólfur, 13.1.1866. 11. Pétur Pétursson: Hugvekj- ur. Til kvöldlestrar frá vetur- nóttum til langaföstu, Rv. 1858, 100, 94, 101 og 417-418. 12. Tómas Sæmundsson: Ræd- ur vid ims tækifœri, 1841, 190 og Pétur Pétursson: Hugvekjur, 134. \3.Klaustur-Pósturinn, 4 (1821) 8-9. XA.Vídalínspostilla, Páll Þor- leifsson og Björn Sigfússon bjuggu til prentunar. Rv. 1945, 395. 15.Halldór Laxness: Af skáld- um, 1972, 113. Þrátt fyrir sífellt návigi við dauð- ann var það auð- vitað lífið sem gagntók fólk, von in um langa og farsæla ævi. Að hugsa um dauðann er að hugsa um llfið. 41
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116

x

Ný saga

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ný saga
https://timarit.is/publication/806

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.