Ný saga - 01.01.1987, Síða 46

Ný saga - 01.01.1987, Síða 46
Á HEIMDALLI SUMARIÐ 1898 — VARÐGÆSLA OG VEISLUHALD herskip, þ.e. beitiskipin Heimdallur eða Hekla. Þau voru hins vegar mjög eyðslu- frek á kol og iná ætla, að vegna þess hafi þeim verið haldið minna úti en annars hefði verið. Frá árinu 1906 tók Fálkinn við gæzlunni, en hann var sérsmíðaður til þessa verkefnis og mun ódýr- ari i rekstri. Bretar hófu fiskveiðar með botnvörpu við ísland um 1890, og hafði það orðið til þess að íslendingar settu fram kröfur um aukna land- helgisgæzlu. Danir urðu við þessum kröfum, en brezka heimsveldið svaraði með því að senda herskip á íslands- mið sumurin 1896 og 97. Hafa þær aðgerðir af sumum verið nefndar þorskastríð. Þessi ár- in var mikið rætt um marka- línur fyrir togveiðar í Faxa- flóa, en ekki náðist um þær samkomulag til frambúðar. Þegar Heimdallur kom til Is- lands vorið 1898, má því gera ráð fyrir, að foringjum hans hafi verið ofarlega í huga að sinna gæzlu í Faxaflóa. Meðal yfirmanna á Heim- dalli sumarið 1898 var ungur sjóliðsforingi Sigurd Vald- emar Hansen að nafni. Hann var þá á þrítugsaldri og hafði það verkefni að sjá um kennslu fyrir sjóliðsforingja- efni um borð. Hann var áhugamaður um ljósmyndun og hafði allan búnað, sem þurfti til þess að taka og fram- kalla ljósmyndir. Mun hann hafa tekið fjölda ljósmynda þetta sumar og sendi síðan myndir til ýmissa vina sinna á íslandi. S.V. Hansen hélt dag- bók í íslandsferð sinni sumar- ið 1898 og er hún nú heimild að háttum danskra varðskips- manna, sem hér verður fjall- að um. Sigurd V. Hansen sjóliðs- foringi Beitiskipið (krydseren) Heimdallur lagði úr höfn í Danmörku 29. marz og hélt þá til Færeyja. Þar var skipið í nokkra daga, en hélt síðan til íslands og var við Dyrhólaey 8. apríl. Úthaldið við ísland stóð síðan til 27. ágúst, en þaðan var haldið aftur til Færeyja og verið þar til 17. september. Til Danmerkur kom skipið síðan 23. septem- ber eftir nær hálfs árs útivist. Hér verður eingöngu fjallað um úthaldið við ísland, en það stóð í 142 sólahringa. Lítum nú nánar á, hvernig varð- skipsmenn skiptu tíma sínum milli skyldustarfa í landi og skyldustarfa á sjó. Þá kemur í ljós, að varðskipið var 86 sólarhringa í landi og þar af um 40 í Reykjavík og Hafnar- firði og 56 sólarhringa á sjó og þar af 20 í Faxaflóa. Þegar Heimdallur kom, stóð vetrarvertíð sem hæst og var áherzla lögð á að gæta ver- tíðarsvæðisins við Faxaflóa. Því var skipinu eingöngu haldið til gæzlu í Flóanum síðari hluta aprílmánaðar. Ekki voru gæzluferðir langar og var gjarnan haldið út frá Reykjavík eða Hafnarfirði að morgni, lónað um Flóann og er Syðra-Hraun oft nefnt, en síðan lagzt við akkeri á Njarð- vík, Krossvík eða Flekkuvík. Næsta morgun var síðan litið eftir togurum og svo haldið inn til Reykjavíkur um kvöld- ið. —Á eftirlitsferð á Kirkju- vogi í Höfnum 29. apríl kom í ljós, að íslenzkur bátur var við hvern einasta togara, og hafa hér vafalaust verið á ferð menn, sem hirtu úrgangsfisk eða tröllafisk hjá Bretanum. I maí var haldið áfram gæzlu í Faxaflóa og farin eftirlitsferð til ísafjarðar sem stóð í 10 daga. Ekki var farið inn á Breiðafjörð, en hins vegar komið við bæði á Dýra- firði og Önundarfirði. Þar var ekki að vænta brezkra togara, en þar voru hvalveiðistöðvar og virðist sem eigendur þeirra, fjölskyldurnar Berg og Ellefsen, hafi verið í miklu uppáhaldi hjá dönsku varð- skipsmönnunum, að minnsta kosti þetta sumar. Heildarút- haldið í maí skiptist svo, að skipiðvar 12sólarhringaásjó og 19 í landi. Fyrstu tveim dögunum í júní var varið til þess að taka kol í Reykjavík, enda var nú fram undan lengsta sigling sumarsins, 20 daga eftirlits- ferð til Austfjarða. Þar var lengst dvalizt á Seyðisfirði, en dagana 22. og 23. júní var leg- ið á Eskifirði og þar tekin kol að nýju. Lunganum úr fjórum dögum í þessum mánuði var því eytt til þess að fylla skipið kolum. Úthaldið á sjó var líka lengst i þessum mánuði, og skiptist hann raunar í tvo jafnlanga hluta, 15 sólar- hringa á sjó og 15 í landi. Snemma í júlí lagði Heim- dallur úr Reykjavíkurhöfn og hélt til Akureyrar. Virðist sem varðskipsmenn hafi litið þá voru hér við land stór gang- mikill dönsk her- skip, þ.e beitiskip- in Heimdallur eða Hekla. 44
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116

x

Ný saga

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ný saga
https://timarit.is/publication/806

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.