Ný saga - 01.01.1987, Side 57

Ný saga - 01.01.1987, Side 57
ÓLAFUR FRIÐRIKSSON OG KRAPOTKIN FURSTI hugsun hans voru á skjön við ríkjandi viðhorf meðal jafnaðarmanna. Þetta var einkar áberandi á „brautryðj- endaárunum", á tímabilinu 1910-1917. Þar bar hæst þau áhrif sem Ólafur varð fyrir af kenningum rússneska furst- ans Peter Krapotkins, eins helsta hugmyndafræðings anarkista. Hvernig skyldu þau áhrif hafa birst í skril'um Ólafs á þessum tíma? Það er helsta viðfangsefni þessarar greinar að leita svara við því. í KAUPMANNAHÖFN Árið 1906 hélt Ólafur Friðriksson til Kaupmanna- hafnar að nema bókhald og dvaldist þar til ársins 1914. Þar í borg kynntist hann Guðjóni Baldvinssyni frá Böggvisstöðum og sagðist hafa talað við hann löngum stundum um jafnaðarstefn- una. Hann hafi verið minnis- stæðastur þeirra manna er hann kynntist í Danmörku.4 Guðjón féll frá langt fyrir ald- ur fram og reit Sigurður Norðdal grein í tímaritið Rétt 1917 í minningu hans. Þar sagði að Guðjón hafi verð anarkisti og einkum sótt hug- myndir sínar til Krapotkins fursta.5 Það má því Ijóst vera að Ólafur hafði góðan aðgang að kenningum hins rússneska anarkista. Árið 1910 var haldið í Kaupmannahöfn þing 2. alþjóðasambands sósíal- demókrata (lögjafnaðar- manna). Ólafur skrifaði um það grein í blaðið Norðurland en í henni má finna ákveðnar vísbendingar um áhrif Krapotkins á hugsun Ólafs. Hann vitnaði meðal annars til hinnar þekktu sjálfsævisögu lurstans og sagði byltingar- konuna Alexöndru Kollontaj ágætt dæmi um rússneska konu eins og þær sem Krapotkin lýsti í fyrrnefndri bók. Þá sagði Ólafur að hug- mynd lögjafnaðarmanna væri göfug. „Hitt er annað mál, að vera samdóma lögjafnaðar- mönnum um leiðina að tak- markinu (þeir vilja sem kunn- ugt er láta hið opinbera taka að sér alla framleiðslu og flutninga)".6 Ekki er fráleitt að ætla að Ólafur hafi með þessari athugasemd vísað til hugmynda anarkista, sem voru á móti sterku ríkis- valdi.7 ANARKISMI í EIM- REIÐINNI Það verður ekki fullyrt hér hvort áhrif Krapotkins á póli- tíska hugsun Ólafs Friðriks- sonar hafi verið djúptæk eða Peter Krapotkin 1842-1921. Hann hafði mikinn áhuga á landa- fræði, náttúru- fræði og garð- yrkju og notaði þekkingu sína á þessum sviðum við pólitiska kenn- ingasmíði. langæ. Á hinn bóginn er víst að kenningar furstans höfðu greinileg áhrif á viðhorf Ólafs til efnahagsmála. Ólafur reit grein í Eimreiðina 1910 er nefndist „Um fjárhag vorn og framtíð". Fjallaði hún um möguleika íslendinga til að auka iðnaðarframleiðslu sína með aukinni starfsemi hand- verksmanna og smáfyrir- tækja. Fljótt á litið mætti ætla ao bjartsýni hans á möguleika handv erksins hafi stafað af „frumstæðum" skilningi íslendingsins á iðju- þróun heimsins. Svo var þó ekki. Ólafur beitti þeirri hag- fræðikenningu sem Krapotk- in setti fram í bókinni Fields, Factories and Workshops til að rökstyðja álit sitt: Það leit út, sem dagar allra handiðna væru taldir, og á þessu byggði Karl Marx þá kenningu sína, að fyrirtæk- in hlutu stöðugt að renna saman og verða stærri og stærri ... Við þessa kenn- ingu halda flestir lög- jafnaðarmenn (sósíalistar) enn.8 Ólafur vitnaði neðanmáls 1 fyrrnefnda bók furstans þar sem sagði að Marx hefði vís- ast afneitað samrunakenn- ingu sinni ef hann hefði lifað fram yfir aldamótin 1900.9 Kenningar Krapotkins gengu þvert á hugmyndir marxista. Hann taldi að heimsmarkað- urinn myndi skreppa saman og þjóðirnar yrðu smám saman sjálfum sér nógar um iðnaðarvörur.10 Ólafur byggði á þessu í grein sinni og sagði „að einhverntíma í framtíðinni rnuni íbúar hvers lands framleiða allan eða megnið af iðnvarningi, sem þörf er á í því landi."11 Með þessa framtíðarspá í huga taldi hann líkt og Krapotkin 55
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116

x

Ný saga

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ný saga
https://timarit.is/publication/806

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.