Ný saga - 01.01.1987, Side 82

Ný saga - 01.01.1987, Side 82
Höfundar eða skrásetjarar, aðrir en sögumenn, eru mikilvægur hluti af hefðinni og eiga auk þess manna mestan þátt í að móta hana. Casals, Leonóra Kristín, Alec Guinness); sleppt ennfremur bókum með fleiri en einum sögumanni (Árni og Lena Bergmann, alkóhólistar Jón- asar Jónassonar, viðmælend- ur Þorsteins Matthíassonar); og sleppt frásögnum af dul- ræna sviðinu (Aðalheiður Tómasdóttir). Samt er af nógu að taka. Sumar minningabækurnar eru hluti af fjölbindaverki. Halldór E. lýkur tveggja binda sögu; minningar sr. Emils og Tómasar Þorvalds- sonar spanna aðeins uppvaxt- arárin og gætu þess vegna orðið lengri en tvö bindi hvor- ar. Hvað Kristján Albertsson heldur áfram er ekki gott að segja. Og Hulda hefur ritað gríðarlanga bók um minna en tvo áratugi ævi sinnar; með sömu frásagnarbreidd á hún mörg bindi eftir. Þrettán bækur, flestar vönduð rit og vel gerð, marg- ar fróðlegar og efnismiklar, sumar að makleikum mikið seldar — og þá líka mikið lesnar. Þessar bækur og aðrar þeim áþekkar eru augsýni- lega verulegur hluti þess sem ritað er, prentað og lesið um sögu 20. aldar á fslandi. Og að sama skapi er ekki lítils um vert fyrir söguáhuga og sögu- þekkingu í landinu hvernig til tekst í þessari grein bókiðju og hvaða vinnubrögð þar vinna sér hefð. Höfundar eða skrásetjarar, aðrir en sögumenn, eru mikil- vægur hluti af hefðinni og eiga auk þess manna mestan þátt í að móta hana. Höfundar og skrásetjarar Bók Emils Björnssonar er gefin út sem hrein sjálfsævi- saga: sögumaður einn og fyrirvaralaust tilgreindur sem höfundur, enda ber bók- in með sér að hann er ritfær í besta lagi. Hlöðver Johnsen og Jón Steingrímsson eru á sama hátt höfundar sinna bóka. Halldór E. Sigurðsson og Hulda Á. Stefánsdóttir eru einnig höfundar að minning- um sínum, en tilgreindir menn er búið hafi bækurnar til prentunar. í því þarf í rauninni ekki að felast miklu meira en sú þjónusta — og að- hald um leið — sem bóka- forlög eiga réttu lagi að veita hvaða höfundi sem er. Prent- búnaðarmenn bera a.m.k. ábyrgð á réttri íslensku og stafsetningu (og fyrstu próf- örk?), en væntanlega ekki á því að gáta efnisatriði. Og það yfirlætislausa stílöryggi, sem gerir hægan straum endurminninga Huldu að kosti fremur en galla, hlýtur að vera hennar eigið; annars hefði Hjörtur Pálsson gert meira en að búa handrit til prentunar. En svo eru átta bækur þar sem höfundur eða skrásetjari er annar en sögumaður. í útlöndum mun tíðkast að fela skrásetjarann og setja sögu- mann upp sem höfund, jafn- vel þótt hann hafi ekki skrifað einn staf af sögu sinni eigin hendi; er þá hinn ósýnilegi höfundur kallar ritvofa („ghost writer" á ensku). Hin íslenska hefð, að líkamna vof- una undir fullu nafni, er tvímælalaust heilbrigð og heppileg; samsvarar þeirri blönduðu ábyrgð sem sögu- maður og skrásetjari bera í raun á afrakstri samvinnu sinnar. Sögumaður er auð- vitað að jafnaði meira en einber heimildarmaður. Hann hefur ríkan tillögu- rétt — og að meira eða minna leyti neitunarvald — um með- ferð skrásetjarans á efnivið sínum. En að eigna honum einum höfundarréttinn gerir í senn ábyrgð hans óþarflega þunga, t.d. á orðalagi, og svig- rúm skrásetjara óþægilega þröngt. Þó að skrásetjarar hafi að sjálfsögðu misjafnar þarfir í því efni. Þórunn Valdimarsdóttir og Gylfi Gröndal birta t.d. bæði langa skrá um prentaðar heimildir; og er það ekki einungis hjálpargagn handa forvitnum lesendum, heldur sjálfstæðis- yfirlýsing þeirra sem ábyrgra höfunda og landamerkja- samningur þeirra við sögu- menn sína: skrásetjari og ekki sögumaður ber ábyrgð á þvi efni sem til heimildarritanna er sótt. (Aðrir skrásetjarar nefna ritaðar heimildir án þess að telja þær upp, og er þar víst stundum átt við úrklippusöfn sögumanna eða annað úr þeirra fórum.) Skematíska flokkun á minningabókum er einfaldast að gera eftir frásagnarhætti: Ævisaga þar sem höfundur segir frá sögumanni í 3. persónu; sjálfsœvisaga þar sem sögumaður segir frá sjálfum sér, eða skrásetjari fyrir hans hönd, í 1. persónu, og viðtalsbók þar sem sögu- maður og skrásetjari ávarpa hvor annan í 2. persónu. 80
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116

x

Ný saga

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ný saga
https://timarit.is/publication/806

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.