Ný saga - 01.01.1997, Page 76

Ný saga - 01.01.1997, Page 76
Jón Viðar Sigurðsson Fegurð kvenna skipti þá eins og nú töluverðu máli Ef konum og dætrum þingmanna var rænt var það ekki einungis áfall fyrir þing- manninn og vininn heldur einnig goðann En víkjum nú sögunni að kvennaránunum sjö. Sex af þeim eiga það sameiginlegt að það eru goðar eða menn sem þeir hafa tekið und- ir verndarvæng sinn, sem standa að baki þeim. Undantekningin er ránið á Ásgerði í Guðmundar sögu dýra. Goðarnir voru mikil- vægustu og valdamestu menn landsins, hinir eiginlegu landsfeður. Á Alþingi voru löggjaf- arstörf að mestu leyti í þeirra höndum, og heima í héraði héldu þeir flestum valdaþráð- um í hendi sér, svo sem búsetu, verðlagningu og löggæslu. Mikilvægustu eiginleikar goð- anna í pólitískum átökum þjóðveldisaldar voru gáfur og ráðsnilld sem endurspeglar að deilurnar voru tiltölulega friðsamlegar. Kænska var betri en vopnfimi og gjarnan not- uð til að útskýra hvers vegna einstökum goð- um vegnaði betur en öðrum.15 Vatnsfirðingum er lýst á eftirfarandi hátt. Þeir voru hinir „mestu höfðingjar. Páll var allra manna vænstr ok gerviligastr, en Snorri var lítill maðr ok vænn og forvitri ok skörungr mikill.“ Ekki er að sjá að ránið á Hallgerði hafi á nokkurn hátt dregið úr virðingu þeirra eða annarra goða sem stóðu í slíkum stórvirkjum. En hvers vegna rændu goðar eða létu ræna konum? Meginástæðan er pólitísk, það er að auðmýkja andstæðinga sína í hópi annarra goða og skjólstæðinga þeirra. Grundvöllur goðavalds voru hin gagnkvæmu bönd á milli goða og þingmanna. Án stuðnings þeirra hafði goðinn engin völd, goðorð hans gufaði upp ef svo má að orði kveða, og án verndar goðans var staða bænda óörugg. Aðalverk- efni goða í héraðsstjórninni var að varðveita friðinn í goðorðum sínum, það er meðal þing- manna sinna. Það skapaði traust og trúnað. Mistækist það var hætta á að bændur flyttust búferlum eða leituðu stuðnings annars goða. Goði varð að vernda þingmenn sína fyrir ágangi og áreitni annarra goða og þingmanna þeirra. Þingmennirnir voru undirstaða valda hans og þá varð goðinn að styðja skilyrðis- laust. Brygðist goðinn verndarhlutverki sínu átti hann á hættu að tapa bæði virðingu sinni og þingmönnum sem sáu hagsmunum sínum betur borgið í skjóli annarra goða. Ef konum og dætrum þingmanna var rænt var það ekki einungis áfall fyrir þingmanninn og vininn heldur einnig goðann. Hann hafði brugðist verndarskyldu sinni. Þess vegna voru kvenna- rán flokkuð til stórmála, sérstaklega þegar heldri manna konum var rænt. Fyrir karlmann fannst varla meiri niður- læging en að eiginkonu hans eða dóttur væri rænt. Það afhjúpaði máttleysi hans frammi- fyrir alþjóð. I samfélagi þjóðveldisaldar skipti heiður og æra meginmáli og brottnám eiginkonu eða dóttur setti svartan blett á æruna sem erfitt var að afmá. Þetta kemur berlega fram í hugtakanotkun frásagnanna, þar er talað um svívirðingu, ósæmð og að sýna ósóma í tengslum við kvennarán. Goð- arnir voru með kvennaránum ekki einungis að smána mótherja sína og stuðningsmenn þeirra, þeir voru einnig að ögra þeim og sam- tímis að sýna mátt sinn og megin. Einungis goðar gátu lítillækkað fólk á þennan hátt. Fegurð kvenna skipti þá eins og nú tölu- verðu máli. Hallur Þjóðólfsson hefur væntan- lega fallið fyrir fegurð Álofar og fengið leyfi Einars til að ræna henni. Án samþykkis Ein- ars var það óframkvæmanlegt. Að ræna konu sem naut húsaskjóls og verndar goða var svo mikil óvirðing við hann að hætta á drápi sem hefndaraðgerð var yfirvofandi. Samkvæmt sögunni er Hvamm-Sturla fullur fyrirlitningar á þessu framferði Einars og segir það illa gert að „veita vandræðismönnum á leið fram ok leggja þar við virðing sína.“ Sturlu saga er aft- ur á móti óvenju þögul þegar greint er frá dáðum Sveins Sturlusonar, sonar Hvamm- Sturlu. Sagt er frá brottnámi Valgerðar í fáum orðum og þagað þunnu hljóði yfir hinum „miklu ósátlum“ sem fylgdu í kjölfarið. Pólitískar og efnahagslegar orsakir kvenna- ránanna koma berlega fram í frásögnunum af Ásbirni Guðmundarsyni og konu Högna, og af Sturlu Sighvatssyni og brottnámi Jóreiðar. Þegar Jóreiður hafnaði bónorði Ingimundar Jónssonar nam Sturla hana á brott. Eftir að Jóreiður var komin að Sauðafelli tók Sturla að sér hlutverk hjónabandsmiðlara og reyndi að splæsa hana og Ingimund saman. Sturla vildi með þessu tryggja vini og fylgdarmanni auðæfi ekkjunnar Jóreiðar, samtímis sem gifting þeirra dró fé undan andstæðingum Sturlu, liðsmönnum Þórðar Sturlusonar. Jó- reiður varð síðar tengdamóðir Sturlu Þórðar- sonar og er ekki ósennilegt að gifting hans og
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Ný saga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ný saga
https://timarit.is/publication/806

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.