Birtingur - 01.04.1954, Page 6
Theodóra Thoroddsen
látin
Frú Theodóra Thoroddsen, skáldkona,
lézt í Re-ykjavík hinn 23. febrúar s.l. nírœÍS
að aldri, og var útför hennar gerð í kyrrþey
26. sama mánaðar.
Frú Theodóra er ein merkasta kona sem
uppi hefur verið á íslandi. Ótrauðrar bar-
áttu hennar við hlið manns síns, Skúla
Thoroddsen, jyrir óskoruðu frelsi lands og
þjóðar verður jafnan minnzt með þakklœti
og virðingu. Og þjóðlegu Ijóðrœnu þulurn-
ar hennar hinar fegurstu, þýðar eins og vor-
blœr og bjartar sem œvintýr, munu lifa með-
an íslenzk-tunga er töluð.
Það er ekki heiglum hent að leiða líf sitt
jrá sigri til sigurs í níutíu ár — sífellt í
fylkingu og jararbroddi þeirra sem hugsa
djarfast og stefna hœst í lífi og listum. Þeim
♦
mun betra er að minnast þeirra örfáu sem
lifað hafa svo langan dag án þess að flekka
skjöld sinn. Og jordœmi þeirra hvetur hina
ungu til dáða.
Píanótóuleikai
ólutonaiViðai
Jórunn Viðar hóf píanótónleika sína í Aust-
urbæjarbíói síðastliðið þriðjudagskvöld með
Moment Musicaux (1—4) eftir Schubert, ein-
földum en kröfuhörðum, og brast nokkuð á að
bókstaf þeirra og anda væri til skila haldið. í
Krómatískri fantasíu Bachs glitruðu tónarað-
irnar aftur fagurskýrar og hrynjandi, simbal-
ískur fyrnskublær yfir fremur grönnum tónin-
um; fúgan var miður sannfærandi — von að
þar verði aflfátt veikbyggðum höndum. Svo
hófst Kreisleriana Schumanns og hlustandinn
var töfrum tekinn, svo skáldlega er þar ruglað
reitum meistarans og kattarins, og svo lifandi,
örugg og listfeng var túlkun þessa vandleikna
verks. Svipaðri viðurkenningu hlaut flutningur
Chopinæfinganna þriggja, Scherzós í h-moll og
tveggja masúrka að sæta; — huganum varð
flogið til gömlu stefjanna, sem hún móðir okk-
ar raulaði í rökkrunum forðum og aldrei voru
dregin til stafs; hún hefði bara átt að sjá
draum sinn rætast í þessari dóttur, sem svo fer
höndum um hörpuna og fyrst og ein íslenzkra
kvenna ber öfundarheitið tónskáld. Hver veit
nema hún hafi líka verið nærstödd í einhverju
af auðu sætunum og kveðjulagið — rímnastef
Jóns Leifs — hafi einmitt verið kvæðalagið
hennar? Þ. Vald.
22
BIRTINGUR