Austurland - 20.12.1989, Blaðsíða 17
JÓLIN 1989.
17
13. Á forsíðu AUSTUR-
LANDS 19. apríl kemur fram
að ákveðið hefði verið að loka
tilteknu frystihúsi í um hálfan
mánuð yfir sumarið. Ástœðan
fyrir lokuninni var:
A Sumarleyfi starfsmanna.
B Hrein og klár leti.
C Allir ætluðu til Spánar í sól-
ina.
D Frystivélarnar biluðu. i)
14. Pessi mynd var tekin á
Seyðisfirði í apríl en frá atburði
sem hún tengist er sagt á forsíðu
AUSTURLANDS 3. maí. En
hvers vegna voru þessir garpar
myndaðir?
A Þeir kepptu um Austfjarða-
meistaratitil í „Sjómanni".
B Þeir tóku þátt í námskeiði
Almannavarna.
C Þeir tóku þátt í námskeiði
Slysavarnaskóla sjómanna.
D Þeir æfðu sig fyrir kraftlyft-
ingamót.
15. Á forsíðu AUSTUR-
LANDS 1. júní er fjallað um
hugsanleg þyrlukaup Landhelg-
isgœslunnar og þar er haft eftir
yfirflugstjóra gœslunnar að
heppilegasta staðsetning hennar
vœri á ákveðnum stað á Aust-
fjörðum. Hver er þessi staður?
A Egilsstaðir.
B Norðfjörður.
C Gunnólfsvíkurfjall.
D Seyðisfjörður.
16. „Pað verður örugglega sól
og blíða“, er haft eftir Guð-
mundi Bjarnasyni í AUST-
URLANDl 15. júní. En til hvers
þurfti Guðmundur sól og blíðu?
A Hannvaráleiðísumarfrí.
B Hann var formaður afmæl-
isnefndar Neskaupstaðar og
vildi gott veður hátíðardagana.
C Hann var svartsýnn á gott
veiðiveður í laxveiðinni.
D Hannvaraðm^tmælaspám
veðurfræðinga.
17. / A USTULANDI 22. júní
er sagt frá vel heppnuðu móti í
Neskaupstað. Hvernig mót var
þetta?
A Sjóstangaveiðimót.
B Skátamót.
C Skákmót.
D Steypumót.
18. Á forsíðu þann 29. júní er
sagtfrá velsóttri sýningu á Egils-
stöðum. Pessisýning varnefnd:
A Úlfurinn ’89.
B Krabbinn ’89.
C Drekinn ’89.
D Griðungurinn ’89.
19. Pann 6. júlí segir AUST-
URLAND frá því að von sé á
nýrri vél í flugflota Flugfélags
Austurlands. Þessar tvœr á
mundinni voru til hjá félaginu
fyrir og er nýja vélin sömu teg-
undar og sú stœrri á þessarri
mynd. Hvaða tegund er það?
A Cessna.
B Piper Aztek.
C Piper Chieftain.
D Dornier.
20. „Brúnás gefur innréttingu“
segir á baksíðu AUSTUR-
LANDS 13. júlí. En hverjum
gaf Brúnás innréttingu?
A Sjálfsbjörgu.
B Kvennaathvarfinu.
C Forstjóranum.
D Frænda eins yfirmannsins.
21. „Þetta er ekki sumarfrí",
segir Margrét Frímannsdóttir al-
þingismaður í viðtali viðAUST-
URLAND 17. ágúst. Hvað var
það sem hún vildi ekki kalla
sumarfrí?
A Ferð sína til Spánar.
B Ferð í orlofshús að Einars-
stöðum.
C Ferð Fjárveitinganefndartil
Austurlands.
D Sumarferðalag Eyrbekk-
ingafélagsins.
22. Svavar Gestsson mennta-
málaráðherra reimar skóna sína
á tröppum húss hér eystra ogfrá
ferð Svavars og tilefni hennar er
sagt áforsíðu A USTURLANDS
24. ágúst. Hvar er ráðherrann
að reima skóna?
A í Neskaupstað.
B Á Egilsstöðum.
C Á Vopnafirði.
D Við Skriðuklaustur.
23. Á aðalfundi Sambands
sveitarfélaga i Austurlandskjör-
dæmi, sem haldinn vará Vopna-
firði í ágústmánuði var kjörinn
nýr formaður sambandsins.
Hann heitir:
A Hrafnkell A. Jónsson.
B Einar Már Sigurðarson.
C Björn Hafþór Guðmunds-
son.
D Sveinn Guðmundsson.
24. Tímamótum í sögu
Menntaskólans á Egilsstöðum
var fagnað í septembermánuði.
Hve gamall varð skólinn þá?
A 10 ára.
B 5 ára.
C 15 ára.
D 20 ára.
25. „Lyftan lenti í sumarleyf-
um“, sagði í fyrirsögn í AUST-
URLANDI 28. september.
Hvaða lyfta var það sem fjallað
var um?
A Ný skíðalyfta Egilsstaða-
búa.
B NýskíðalyftaSeyðfirðinga.
C NýskíðalyftaíOddsskarði.
D Ný lyfta í Hulduhlíð á Eski-
firði.
26. „Allar áœtlanir hafa
staðist", sagði viðmœlandi
AUSTURLANDS á baksíðu
blaðsins 5. október. Sá sem þetta
mœlti var:
A Ingi Már Aðalsteinsson
kaupfélagstjóri í Neskaupstað.
B Rúnar Pálsson umdæmis-
stjóri Flugleiða.
C Hlífar Þorsteinsson hjá
Austfjarðarleið.
D Jónas Hallgrímsson hjá
Austfar hf.
27. Pessi mynd er tekin þegar
lögregluþjónar í Neskaupstað
fylgdust með því er ólöglegur
varningur var vigtaður en varn-
ingur þessi var tekinn um borð
í báti í höfninni í Neskaupstað
og frá þessu er sagt í AUST-
URLANDI 12. október. Hvað
eru þeir að vigta?
A Smyglað svínakjöt.
B Smyglaða kjúklinga.
C Heimaslátrað kjöt.
D Smyglað áfengi.
28. Á forsíðu AUSTUR-
LANDS 26. október er sagt frá
hugmyndum um nýja námsbraut
við Menntaskólann á Egilsstöð-
um. Þessi námsbraut er:
A Skógræktarbraut.
B Skipstjórnarbraut.
C Vélstjórabraut.
D Landbúnaðarbraut.
29. Á forsíðu AUSTUR-
LANDS 9. nóvember er sagt frá
fundi sem Kaupfélagið Fram
stóðfyrir. Umhvaðfjallaðiþessi
fundur?
A Fjárhagsvanda Kaupfélagsins.
B Hvort mála ætti Kaupfé-
lagshúsið.
C Hvort súrmjólkin væri súr
eða ekki.
D Neytendamál.
30. Pessi mynd af varðskipinu
Óðni birtist áforsíðu A USTUR-
LANDS þann 16. nóvember.
Ástœða myndbirtingarinnar var:
A Skipið kom með landhelgis-
brjót í höfn.
B Fyrsta sendingin af bók
Lúðvíks um landhelgismálið var
að koma.
C Skipið var rekið frá bryggju
af óþekktum „bryggjuverði”.
D Einn skipverja varð sjó-
veikur og þurfti því í land. hb
Æviminningar
Hermanns Vilhjálmssonar
Vilhjálmur Hjálmarsson
' Konráðs
föðurbróðir minn
ÆVI SAG A
HERMANNS
VILHJÁLMS-
SONAR FRÁ
MJÓAFIRÐI.
Skráð af Vilhjálmi Hjálmarssyni
fyrr'erandi ráðherra.
Reykvíkingar þekktu Hermann undir
nafninu Hemmi, oft með viðurnefni dregið
af því að hann togaðist stundum á við
stráka um túkall eða krónu.
Vilhjálmur Hjálmarsson segir sögur
föðurbróður síns á gamansaman og
hugþekkan hátt. Þess vegna er unum að
því að lesa um hana þó að hún fjalli um
| óvenjulegt lífshlaup manns er aldrei fékk
I notið hæfileika sinna.
I
| FRÆNDI KONRÁÐS -
| FÖÐURBRÓÐIR MINN er bók fyrir þá
f sem vilja ÖÐRUVÍSI ævisögu sagða af
s hreinni snilld.
ÆSKAN