Ritmennt - 01.01.1997, Side 22

Ritmennt - 01.01.1997, Side 22
ÖGMUNDUR HELGASON Jón Jónsson Borgfirðingur (1826-1912). RITMENNT Allt til ársins 1882 var Landsbókasafn eina opinbera safn jafnt ritaðs sem prentaðs máls hérlendis og var því skjölum eða gögn- um embættismanna einnig fenginn þar varðveislustaður. Það ár var stofnað til sérstaks safns að erlendri fyrirmynd fyrir þess konar varðveisluefni hér innan lands, svo sem var í Danmörku og meðal annarra nágrannaþjóða. Var nafn þess fyrst Lands- skjalasafn en var síðar breytt í Þjóðskjalasafn. Landsskjalavörður var þó ekki skipaður fyrr en árið 1900, og var þá fyrst tekið til viö að aðskilja frumskjöl eða embættisbækur frá almennum handritum í Landsbókasafni til afhendingar í skjalageymslur hins nýja safns. Færðist nokkur hiti í þessi skiptingarmál sem komu til úrskurðar landshöfðingja. Eftir voru höfð í Landsbóka- safni afrit af ýmsum embættisfærslum, jafnvel þótt ekki fyndust frumgögn þeirra. Þá varð að samkomulagi að afhent yrðu úr Landsskjalasafni þau handrit sem komin væru eða bærust þang- að og ættu fremur heima í Landsbókasafni. Árió 1898 var Guðmundur Þorláksson fenginn til að skrifa upp þau af skinnhandritabrotum Landsbókasafns sem mest væru máð og úr sér gengin. Um aldamót var síðan farið að huga að því að fá smám saman afrituð ýmis handrit sem lágu í söfn- um í Kaupmannahöfn. í því augnamiði var bréfabók Brynjólfs biskups Sveinssonar fengin að láni úr Árnasafni og afritaði Guð- mundur hana næstum alla, eða 13 þykk bindi, en síðar lauk Páll Eggert Ólason við það verk sem varð alls 15 bindi. Fleira efni var fengiö til afritunar á þessum árum, og einnig fór Páll til Kaup- mannahafnar og gerði meðal annars skrá yfir bréfritara í nokkrum stórum íslenskum bréfasöfnum sem vistuð höfðu ver- ið í Konungsbókhlöðu. í upphafi nýrrar aldar, árið 1901, festi Landsbókasafn kaup á handritasafni Hins íslenska bókmcnntafélags. Eru það 1610 bindi úr safni Hafnardeildar og 289 úr safni Reykjavíkurdeildar eða tæplega 2000 númer. Voru rnörg þessara handrita runnin frá Jóni Jónssyni Borgfirðingi. - Meðal merkra handrita í þessu safni má nefna sýslu- og sóknalýsingar er Hafnardeild stofnaði til að tillögu Jónasar Hallgrímssonar slcálds, vegna fyrirlrugaðrar ís- landslýsingar. Hafa margar þeirra verið búnar til útgáfu og prent- aðar á síðari árurn. Þá er að geta lcvæðahandrita Jónasar sjálfs og fleiri sleálda er dvöldust langdvölum í Kaupmannahöfn. Enn er ó- talin ein fegursta bólt safnsins, sem er sltrifuð 1693 af listamann- 18
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160
Side 161
Side 162
Side 163
Side 164
Side 165
Side 166
Side 167
Side 168
Side 169
Side 170

x

Ritmennt

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ritmennt
https://timarit.is/publication/859

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.