Dagblaðið Vísir - DV - 25.05.2005, Síða 40
Préitíijkot Við tökum við
fréttaskotum allan sólarhringinn. Fyrir hvert fréttaskot sem
birtist, eða er notað í DV, greiðast 3.000 krónur. Fyrir besta
fréttaskotið íhverri viku greiðast 7.000 krónur. Fullrar
^jiafnleyndar er gætt. *-* Q r* f) r
SKAFTAHLÍÐ 24,10S REYKJAVÍK [ STOFNAÐ1910 ] SÍMISSOSOOQ
690710"111117
• Undirbúningur
fyrir tökur á banda-
rísku stórmyndinni
Flags Of Our Fathers
er í fullum gangi
þessa dagana og
þykir líklegt að Is-
land verði einn
tökustaða. Clint Eastwood leik-
stýrir og meðframleiðandi hans
er Steven Spielberg. Kvikmynda-
gerðamenn frá Malpaso Prod-
uctions, fyrirtæki Eastwood,
komu hingað til
lands til að
skoða aðstæður
en fyrir tökurnar
vantar auðar,
svartar sand-
strendur. Þar
verða teknar inn-
rásarsenur með bátum, spreng-
ingum og bókstaflega öllu
tengdu stríði. íslensk kvik-
myndafyrirtæki verjast fregna af
tökunum, enda má búast við því
að barist verði um hituna...
Fara bændurnir í
hundana?
Karl Frímannsson„7e/
ekki að samþykktin hafi
úrslitaáhrifen úrræðin
eru fyrir hendi."
Sveitarstjóm F.yjafjarðarsveitar
virðist ætía að skera upp herör gegn
lausagangi hunda í sveitínni. Sveitar-
stjómin gaf út samþykkt á síðasta ári
þar sem ferðafrelsi ferfætlinganna í
sveitinni er skert verulega. Hundur
má til að mynda aldrei ganga laus á
almannafæri og þarf að vera ör-
merktur þannig að hægt sé að bera
kennsl á skepnuna með óyggjandi
hætti. Eftirlitsmaður í sveitinni má
leita aðstoðar lögreglu ef þörf krefur
og yfirvöld mega aflífa dýrið að upp-
fylltum ákveðnum skilyrðum.
Leitað var álits sveitarstjórans,
Bjarna Kristjánssonar, en hann vildi
ekkert tjá sig um málið. Bóndi sem
DV tahði við, vildi ekki láta nafns
síns getið vegna hættu á að valda
innansveitarerjum. Hann sagði þó
að sér þætti einkennilegt að setja svo
stífar reglur um hundahald í sveit
jafn dreifbýlli og Eyjafirði. Það hlytu
að teljast einkennilegir búsiðir að
ist þá. Þá em úrræðin fyrir hendi,“
sagði Karl.
Gangnamenn
Gangnamenn hafa
alltaf notast við
hunda og hundar eru
á flestum bæjum.
hafa hund sinn bundinn á
hlaði.
Annar bóndi, Jón
Jónsson að Stekkjar-
flötum, hafði þetta
að segja: „Þessar
reglur em nú fýrst og
fremst settar til þess
að hafa úrræði ef eitt-
hvað kemur uppá með
dýrin. Eyjarfjarðarsveitin
er blönduð byggð og við
þurfum að geta tekist á
við mál sem koma upp. Við
höfum nú ekkert verið að eltast við
menn og gá hvort hundar séu
tjóðraðir í hlaði, enda það ekki hug-
myndin sem liggur að baki. Það er
erfitt að setja reglur sem ná aðeins
yfir hluta sveitarinnar, og þannig
ákváðum við að fara þessa leið.“
Karl Frímannsson, skólastjóri
Hrafnagilsskóla taldi ekki að sam-
þykktin hefði afgerandi áhrif í sveit-
inni. „Hundar hafa endmm og
sinnum sótt hér inn á skólalóðina og
það hefur bmgðið við að börn hræð-
Bœndur æfir í EyjaMI Hóla
að allffa huada a laiisagingi
Kanadabúar búast við Markúsi
I Sendiherra og kandídat
Guðmundur Eiríksson þykir
einkar glæsilegur fulltrúi lands
og þjóðar og Markús Örn er
vissulega þéttur á velli.
Samkvæmt heimildum DV stefn-
ir nú allt í að Markús Örn Antonsson
núverandi útvarpsstjóri verði gerður
að sendiherra í Kanada. Mun Guð-
mundur Eiríksson sendiherra þar
vera að hugsa sér til hreyfings en
hann komst í fréttir í vetur þegar
The National Post staðhæfði að náið
samband væri milli hans og
Adrienne Clarkson landsstjóra í
Kanada. Guðmundur hafn-
aði því í samtali við DV og
sagði Post hafa lagt land-
stjórann í einelti um langt
skeið og þetta væri liður í
því.
í blaðinu var Guðmund-
ur, sem þykir einkar
heillandi og standa
sig með afbrigðum
vel í samkvæmislífinu, kallaður „The
silver-haired, silver tonged Eiriks-
son“.
Hvort Markús örn Antonsson nái
að rísa undir því að vera svo glæstur
fulltrúi lands og þjóðar er svo spurn-
ing. Guðmundur var í gær staddur á
ráðstefnu í Noregi og náðist ekki í
hann til að fá þetta staðfest. Þá svör-
uðu hvorki Davíð Oddsson utanrík-
isráðherra né
Markús skila-
boðum.
Sýningu seinkað til að
styggja ekki ráðamenn
„Við frestum sýn-
ingunni til að hún
rekist ekki á við há-
tíðahöldin," segir
Kristján B. Jónasson,
þróunarstjóri Eddu
útgáfu, en í gær var
ljósmyndasýningin
Andlit norðursins
kynnt á Austurvelli.
Þar verða sýndar
þrjátíu ljósmyndir úr samnefiidri bók
ljósmyndarans Ragnars Axelssonar á
steypustöplunum sem hafa verið á
Austurvelli undanfarin tvö ár.
Ráðamenn fettu fingur út í ljós-
myndasýning-
RAX og bakhjarlarnir Undirbúa Andlit
norðursins fyrir Jónsmessu.
á hátíðahöldin. Davíð Oddsson, þá-
verandi forsætisráðherra, kom þeim
skOaboðum áleiðis að hann væri ekki
ánægður með uppsetninguna og
Halldór Blöndal, forseti Alþingis,
skrifaði bréf til Þórólfs Ámasonar, þá-
verandi borgarstjóra, og krafðist
fundar með honum vegna málsins.
Það var annað ár slíkrar sýningar en
sumarið áður stóð sýning Yann Arth-
us-Bertrand, Jörðin séð frá himni, at-
hugasemdalaust á vellinum frá mán-
aðamótum maí og júm'.
Nú er komið til móts við ráða-
menn og verða Andlit norðursins því
opnuð 24. júní, á Jónsmessu.
www.markisur.com
Dalbraut 3, 105 Reykjavík • Nánari upplýsingar í síma
567-7773 og 893-6337 um kvöld og helgar
VILTU SKJÓL Á
VERONDINA?
MARKISUR