Litli Bergþór - 01.04.2009, Side 7
Hvað segirðu til
• I desember kom snjóakafli sem varði um það
bil fram að jólum, þá fór að hlýna og rigna og hélst
veðrið þannig út janúar. í byrjun febrúar kólnaði
allverulega og var snjór og frost fram í miðjan
febrúar. Þá hlánaði í nokkra daga áður en frostið tók
til aftur og hefur verið nokkuð viðvarandi síðan þó
með hléum.
• íþróttadeild Umf.Bisk. hélt aðalfund sinn 11.
desember 2008 á Kaffi Kletti. Meðal hefðbundinna
aðalfundastarfa var tilnefning ungmenna fyrir
íþróttastarf árið 2007. Davíð Oskarsson fyrir
körfubolta, Rúnar Guðmundsson fyrir glímu, Eyrún
ída Guðjónsdóttir fyrir fimleika, Ástrún
Sæland fyrir körfubolta og glímu. Að
lokum var Rúnari og Ástrúnu veitt
viðurkenning sem íþróttamenn ársins
2007.
• Kvenfélag Biskupstungna hélt
jólamarkað í Aratungu þann 16.
desember. Þar var á boðstólum
ýmiss varningur, allt frá málverkum
til ullarsokka. Sungin voru jólalög
og var söngurinn annars vegar á
vegum kórs 2.-4. bekkjar grunnskóla
Bláskógabyggðar og hins vegar tóku
Steinunn Bjarnadóttir og Henríetta Osk
Gunnarsdóttir lagið við gítarundirspil.
• Messuhald um hátíðarnar var
með hefðbundnu sniði messur í öllum
kirkjum og aðventukvöld í þeim
flestum.
• Uppsveitadagatalið kom út í janúar en það er
gefð út af Skúla Sæland f.h. Menningarmiðlunar
ehf. í samstarfi við Sigurð Sigmundsson og
Skálholtsstað. I því eru að þessu sinni myndir teknar
af Sigurði og Sigurgeiri Sigmundssonum frá Syðra
Langholti í Hrunamannahreppi.
• Opnuð var ljósmyndasýning í Skálholti á vegum
sömu aðila sem heitir „Sveitasýn.
Sjónarhorn Sigga í Syðra á
uppsveitir Árnessýslu“ og sýnir
myndir Sigurðar frá Syðra-Langholti
og er hún opin nú síðari hluta vetrar.
• Magnús Einarsson í Kjarn-
holtum hélt upp á 60 ára afmæli sitt
þann 24. janúar og bauð hann vinum
og sveitungum til veislu í Aratungu í
tilefni af því.
# Þann 31. janúar var
þorrablót Tungnamanna haldið í
Aratungu með hefðbundnu sniði.
Skemmtiatriðin sá Haukadalssókn
um að þessu sinni og hljómsveitin
Leynibandið spilaði fyrir dansi.
Þorrablót eldri borgara var
haldið 6. febrúar og voru þar sýnd
sömu skemmtiatriði og á þorrablóti
Tungnamanna og síðan spilað á
harmonikku fyrir dansi.
• Uppsveitabrosið var afhent í fimmta sinn
núna eftir áramótin. Að þessu sinni kom það í hlut
læknanna hjá Heilsugæslunni í Laugarási þeirra
Péturs Skarphéðinssonar og Gylfa Haraldssonar fyrir
Fjölmenni skemmti sér við velheppnað þorrablót Haukadalssóknar. Ljósm. SS
Stoltir íþróttamenn: Ástrún, Davíð, Eyrún ída og Jóna Sigríður f.h. Rúnars bróður
síns. Ljósm. Aðalheiður Helgadóltir
7 Litli Bergþór