Fréttabréf Ættfræðifélagsins - 01.10.2004, Page 17
Fréttabréf Ættfræðifélagsins í október 2004
Ingimundur Eiríksson flutti til Akureyrar og virðist hafa
látið þar nokkuð til sín taka. Hann er einn 60 bæjarbúa
sem undirrita bænaskjal til konungs 1849 uni að fá að
byggja þar kirkju. Þar stendur I. Eiríksson jernsmed,
við hliðina á undirskrift sýslumannsins sjálfs.
Af almanaki Ólafs S. Thorgeirssonar sést að
Ingimundur deyr í Mountain 22. júní 1898 þá búinn
að vera vestra í 15 ár og kominn á 88. aldursár.38 í
Sögu Norður-Dakoda er stuttlega minnst á hann og
sagt að hann hafi tekið virkan þátt í uppbyggingu og
starfi safnaðarins.39
Ingimundur virðist hafa látið nokkuð til sín taka
m.a. í safnaðarmálum á Akureyri, en hann er einn 60
bæjarbúa sem undirrita bænaskjal til konungs 1849
um að fá að byggja þar kirkju. Þar stendur /.
Eiríksson jernsmed, við hliðina á undirskrift
sýslumannsins sjálfs.40
Sigríður
7. Sigríður yngsta barn Eiríks og Önnu, og sjöunda
bam Eiríks, fæðist 1812. Hún giftist Alexíusi Jóns-
syni b. á Nauthól við Reykjavík, ættuðum úr Kjós.
Þau eignuðust að minnsta kosti fjögur böm: Ingi-
mund, Önnu, Eirík og Margréti. Ut frá Eiríki
Alexíussyni er kominn mikill ættbálkur á Akranesi.
Hann var m. a. afi Ólafíu Þorvaldsdóttur húsmóður á
Hálsi í Kjós, sem drukknaði ásamt manni sínum í
Meðalfellsvatni 1947. Sigríður er einnig formóðir
Ingu Þóra Geirlaugsdóttur konu sr. Jóns Dalbú Hró-
bjartssonar og Harðar Geirlaugssonar sem var
deildarstjóri hjá Sementsverksmiðju ríkisins.41
„Tvíbaka, bolla, kringla, krans..“
Þegar kemur að bömum Eiríks Hjörtssonar og
Ragnhildar síðustu konu hans vex vitneskja mín
nokkuð, ekki síst vegna þess að við afkomendur
þeirra hafði faðir minn töluvert samband þegar hann
var að alast upp, þótt ekki kynntist hann ömmu sinni
Rannveigu sem dó áður en hann fæddist.
Anna
8. Anna, elsta bam þeirra Eiríks Hjörtssonar og
Ragnhildar Guðmundsdóttur frá Deild, var fædd
1823. Hún átti Eirík Eiríksson járnsmið í Reykjavík.
Hann hrökk út af þilskipi og drukknaði aðeins 41 árs
árið 1867.421 Sögu Reykjavikur hælir Klemens Jóns-
son myndarskap Önnu en hún bjó ásamt Eiríki manni
sínum, eins og Hjörtur hálfbróðir hennar um tíma, í
Friðbjarnarhús á
Akureyri. Þetta hús,
sem nú er friðlýst,
byggði Ingiinar Eiríks-
son járnsmiður, sonur
Eiríks Hjörtssonar um
1849.
Stöðlakoti en þar voru um 1870 fjórir bæir. Þau
hjónin bjuggu í Suðurbænum. Anna var m. a. amma
Önnu Guðbrandsdóttur konu Brynjólfs tannlæknis
Bjömssonar og Ingibjargar Guðbrandsdóttur, „Imbu
Brands“ sund- og leikfimikennara, sem margir hafa
heyrt um og um var ort:
„Tvíbaka, bolla, kringla, krans,
þetta gefur hún Imba brands.“
og
„Imba brands, Imba Brands,
kennir bæði hopp og dans.“
Stórskáldið
Guðríður (Birgitta Guðríður) dóttir Önnu varð seinni
kona Steingríms Thorsteinssonar skálds og rektors
Menntaskólans í Reykjavík. Þau áttu sex böm m. a.
Axel Thorsteinsson fréttamann og Þórunni Tostrup
Thorsteinsson sem lést fyrir örfáum árum í
Kaupmannahöfn, háöldruð. Þórunn sagði mér að hún
myndi eftir Önnu ömmu sinni rúmliggjandi í
Stöðlakoti, en gamla konan hafði þá fengið slag. Þó
teygði hún sig eftir kandísmola og gaf Þórunni litlu
þegar hún kom í heimsókn til hennar. En annars
sagði Þórunn að ætt móður sinnar hefði fallið mjög í
skuggann af ætt stórskáldsins.
En Steingrímur var eins og kunnugt er sonur
Bjarna Thorsteinssonar amtmanns á Stapa.
Steingrímur fékk Guðríði, þá unga stúlku, til þess að
hugsa um heimilið fyrir sig og son sinn eftir dauða
konu sinnar og þau fóru fljótlega að draga sig saman.
Steingrímur var 54 ára þegar þau áttu sitt fyrsta barn
og þau voru búin að eiga þrjú börn áður en þau giftu
sig. Stórskáldið hefur ef til vill ekki verið alveg sátt
við að giftast þessari alþýðustúlku sem hann í bréfi
til vinar síns í Kaupmannahöfn segir þó að sé orðin
sér einkar kær.43
Sagt var að þegar skólasveinar hins lærða skóla
fréttu að Steingrímur væri farinn að gera hosur sínar
grænar fyrir Guðríði, þá hafi þeir staðið á fætur allir
sem einn þegar Steingrímur kom inn í skólastofuna,
bukkað sig og sagt „Gudda, Gudda“, (God dag, God
dag)- við lítinn fögnuð Steingríms!
Jón
9. Níunda barnið er Jón, því enn á ný er reynt að
koma Jónsnafninu upp, en án árangurs.
Jón er fæddur um 1824 og sagður eins árs í
sóknarmannatali 1825. Fleiri sögum ferekki af honum.
http ://w w w. vortex. is/aett
17
aett@vortex.is