Fréttabréf Ættfræðifélagsins - 01.11.2007, Blaðsíða 19

Fréttabréf Ættfræðifélagsins - 01.11.2007, Blaðsíða 19
Fréttabréf Ættfræðifélagsins í nóvember 2007 Tryggvi fór til jarðarfarar bróður síns, en fórst í umferðarslysi á heimleið. Þetta var á Kalifomíu ámm Halldórs Laxnes. Hann hafði kynnst þeim bræðmm, og skrifaði um þá minningarorð í Heimskringlu 21. nóvember 1928. Vonandi kemur þetta að einhverjum notum. Kveðja, Sigþór Guðmundsson, Kt. 170731-4339 Hlíðartuni 27, 780 Höfn Símar: 478-4168; 862-4168 Netfang: sigthorgud@simnet.is Fyrirspurnir Casey Johnson sendir fyrirspurn frá Kanada. Hann spyr um frænda sinn sem hann telur að hafi heitið annað hvort Kristján Jónsson eða Björn Jónsson og hafi verið einn af fyrstu forsætisráðherrum Islands. Einnig spyr hann um langafa sinn sem hét Skúli Jónsson. Hann gæti, segir Casey, hafa verið bróðir Kristjáns/Björns. Casey segist ekki geta lesið eða skilið íslensku en er þakklátur fyrir allar upplýsingar. Fréttabréfið getur séð um þýðingar ef þörf er á því. Svör sendist til Fréttabréfsins, hvort sem er á ensku eða íslensku og til caseyjohnsonlive@ hotmail.com] Olwen Jones frá Ástralíu spyr um Dana sem hvílir á íslandi: Einn forfeðra minna sem var danskur er jarðaður á Islandi. I kirkjubók Mandö stendur: Jens Outzen Pedersen, skibstömmermand med Skipper Niels Knudsen dette er anfört i overenstemmelse med een beretning fra Skipperen med hvem han foer. Döde: 4 Aug 1821 42 ár gammel Begravet i Island. Ef einhver getur veitt mér einhverjar upplýs- ingar, sem ég greiði með ánægju fyrir, yrði ég glaður. Eg bý í Ástralíu en hef oft heimsótt Dan- mörku og nú sýnist mér komið að því að ég verði að heimsækja ísland. Ég hef sent fyrirspum til Kirkjugarðanna en ekki fengið neitt svar. Virðingarfyllst Olwen Jones 1 Miller Road Heathmont Victoria 3135 Australia Vigdís Sigurðardóttir: Móðir Hlínar Johnson I síðasta fréttabréfi er spurt um Hlín Johnson. Móðir hennar hét Arnfríður Guðrún Sigurðardóttir f. 30.7.1854 á Ingjaldsstöðum í Reykjadal, d. 21.2. 1933, hún var húsfreyja á íshóli í Bárðdardal. Ég hef ekki heyrt að hún hafi haft annað nafn, enda fædd hér á landi og fór ekki út fyrr en gift kona. Kveðja, Vigdís Sigurðardóttir, borgum@simnet.is Höskuldur Einarsson frá Vatnshorni var snilldarhagyrðingur. Hann var í bak og fyrir ættaður úr Þingeyjarsýslunni. Faðir hans var úr Kinninni (Köldukinn) en móðir hans úr Mývatnssveit. Landskunnar eru vísur hans um Húnvetninga og fóru þær af skiljanlcgum ástæðum fyrir brjóstið á mörgum þar í sveit. Þessar eru trúlega frægastar: Ljúga, stela, myrða menn, meiða vesalinga þessu tryði ég öllu enn upp á Húnvetninga. Þegar mín er gróin gröf og grasið vaxið kringum hlotnast mér sú guða gjöf að gleyma Húnvetningum. Helst vil ég að Húnvetningar haldi kjafti og éti skít, sérstaklega Svínvetningar, sem ég nánast fyrirlít. Þingeyingar voru að vonum ánægðir með sitt skáld, þótt hann byggi sunnan heiða á óðali konu sinnar á Vatnshorni í Skorradal. En eitthvað fyrtist hann við sína gömlu sýslunga því svo orti hann: En svo þegar að er gáð artir Þingeyinga finnst mér vera fagurt ráð jlestra Húnvetninga. Og þegar hann svo eignaðist húnvetnska tengdadóttur, Bryndísi Júlíusdóttur, og sonur hans gerðist bóndi á Mosfelli í sjálfum Svínadal í Húnavatnssýslu snerist blaðið við og hann orti: Unga fagrafoldu klœða forlög engin mega þvinga. Fyrirgef mér faðir hœða fúkyrðin um Húnvetninga. http://www.ætt.is 19 aett@aett.is

x

Fréttabréf Ættfræðifélagsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttabréf Ættfræðifélagsins
https://timarit.is/publication/885

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.