Hugur - 01.01.2006, Page 115

Hugur - 01.01.2006, Page 115
Messías á Islandi 113 leggja eiginlegan og traustan grunn að kenningunni sjálfri. Með öðrum orð- um falla allar umræddar stefnur í flokk þeirra vísinda sem hvíla á vanhugs- uðum undirstöðum og hljóta því að leysast upp í innantóma afstæðishyggju. Veturinn 1905-06 hélt Husserl fyrirlestra við Háskólann í Göttingen þar sem hann gerði vitundina um tímann að viðfangsefni sínu. Lestrar þessir mörkuðu ákveðin tímamót í hugsun Husserls og eru þeir óspart lesnir nú á dögum ásamt síðari skrifum hans um tímann. Göttingen-lestrarnir komu út árið 1928, í eilítið niðursoðinni mynd, en að öðru leyti lét Husserl ógert að búa tímaathuganir sínar til prentunar.14 Lykilhugtökin í viðureign Husserls við upplifunina á tímanum lúta að því hvernig vitundin er ekki bundin við það sem blasir við sjónum „hér og nú“ heldur beinist hún ætíð fram í tímann og heldur þar að auki eftir ákveðnum þáttum hinnar liðnu upplifiinar. Til að skýra það sem hér er átt við tekur Husserl jafnan dæmi af því að hlusta á lag- stúf: að heyra lagið er eitthvað annað og meira en að heyra hvern tón út af fyr- ir sig, lokaðan inni í skýrt afmörkuðu núi - það útheimtir að við höfum ný- liðna tóna í huga og þar að auki leitar vitund okkar einnig fram í tímann og leitast við að „sjá fyrir“ komandi tóna (sér í lagi ef um er að ræða lagstúf sem við þekkjum). Vitundin tekur með öðrum orðum virkan þátt í tímaupplifun- inni, það er að segja í upplifuninni almennt, því að öll upplifun á sér stað í tíma. Vitundin er ekki aðeins óvirkur þiggjandi, heldur einnig virkur gerandi; og hún er ekki bundin við núverandi birtingu fyrirbærisins, sem Husserl nefnir frumbirtingu, heldur einkennist hún einnig af eftirheldni (Retention) sem lýtur að því liðna, og framleitni (Protention) sem beinist fram í tímann.15 Eftir útkomu Hugmynda I var Husserl orðinn frægur heimspekingur með fjöldann allan af efnilegum nemendum. Einn þeirra, og sjálfsagt sá frægasti, var Martin Heidegger (1889-1976). Hann gerðist aðstoðarmaður Husserls um tíma og að lokum fór svo að hann tók við prófessorsstöðu hans í Freiburg. Arið 1927 sendi Heidegger frá sér höfuðrit sitt Veru og tíma (Sein und Zeit) og bakaði sér við það óþökk Husserls, sem þótti fyrirbærafræðin þarna hafa tek- ið á sig nokkuð torkennilega mynd. Samband Heideggers og Husserls átti eft- ir að þróast til hins verra á fjórða áratug 20. aldar, enda var sá fyrrnefndi „ekta“ Þjóðverji en sá síðari af gyðingaættum. Sú saga verður þó ekki rakin hér.16 Á síðasta áratug ævi sinnar sendi Husserl frá sér nokkur verk sem mark- verð þykja: Formlega og forskilvitlega rökfræði (Formale und transzendentale Logik, 1929), Kartesískar hugleiðingar (Méditations cartésiennes, 1931),17 Kreppu evrópskra vísinda (Krisis der europáischen Wissenschaften, 1936) og að 14 Merkasta framlag Husserls til þessara rannsókna er tiltölulega nýkomið út: það eru svokölluð Bemau-handrit um timavitundina. Sjá Husserl, Die „Bemauer Manuskripte“ úber das Zeitbe- •wujltsein (1917/18). Husserliana XXXIII. Dordrecht, Kluwer Academic Publishers 2001. 15 Dan Zahavi gerir skipulega grein fyrir þessum hugtökum í grein sinni í þessu hefti, sjá s. 103-104. 16 Nasistar dæmdu heimspeki Husserls úrkynjaða af þeim sökum að hún héldi á lofti „hugsjón- inni um skynsemi sem gildi fyrir alla menn“ (sjá Moran, Introduction to phenomenology, s. 88). Með öðrum orðum: þeir skildu hann rétt... að öðru leyti en því að vandséð er í hverju úrkynj- unin í þessari eðlu hugmynd á að vera fólgin. 17 Bókin kom ekki út á þýsku fyrr en árið 1950.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170
Page 171
Page 172
Page 173
Page 174
Page 175
Page 176
Page 177
Page 178
Page 179
Page 180
Page 181
Page 182
Page 183
Page 184
Page 185
Page 186
Page 187
Page 188
Page 189
Page 190
Page 191
Page 192
Page 193
Page 194
Page 195
Page 196
Page 197
Page 198
Page 199
Page 200
Page 201
Page 202
Page 203
Page 204
Page 205
Page 206
Page 207
Page 208
Page 209
Page 210
Page 211
Page 212
Page 213
Page 214
Page 215
Page 216
Page 217
Page 218
Page 219
Page 220
Page 221
Page 222
Page 223
Page 224
Page 225
Page 226
Page 227
Page 228
Page 229
Page 230
Page 231
Page 232
Page 233
Page 234

x

Hugur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Hugur
https://timarit.is/publication/603

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.